Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 2
Vikublað 14.–16. mars 20172 Fréttir
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
SmurþjónuSta
Leitin engan
árangur borið
Leit að Arturi Jarmoszko, sem
saknað hefur verið frá því um
síðustu mánaðamót, hefur enn
engan árangur borið. Unnið er að
málinu hjá Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu af fullum krafti.
Í því felst meðal annars að afla
gagna og yfirfara þau. Áherslan
hefur verið á að kortleggja ferðir
Arturs en björgunarsveitarmenn
gengu fjörur á mánudag.
Málið er rannsakað sem
mannshvarf og ekki er grunur
um refsiverða háttsemi í tengsl-
um við hvarf hans. Þá er ekki talið
að hann hafi farið úr landi. Fjöl-
skylda Arturs hefur sagt frá því
í fjölmiðlum að hana gruni að
eitthvað refsivert hafi átt sér stað
í tengslum við hvarf hans en lög-
reglan segir þær áhyggjur ekki
eiga við rök að styðjast.
Fjörur voru í gær gengnar
við Fossvog, Kársnes og út að
Álftanesi en síðustu upplýsingar
úr síma Arturs – áður en slokkn-
aði á honum – komu úr sendi í
Kópavogi. Það var aðfaranótt 1.
mars síðastliðinn. Sími Arturs
hefur ekki fundist. Þá segir Guð-
mundur Páll Jónsson lögreglu-
fulltrúi að rannsókn á tölvu hans
sé þegar hafin.
Fólk er beðið um að svipast
um í sínu nærumhverfi, til dæm-
is í vinnuskúrum, geymslum og
útihúsum.
Artur, sem er 25 ára, grann-
vaxinn, dökkhærður með stutt
hár, 186 sentimetrar á hæð og
með græn augu, er pólskur, en
hefur búið á Íslandi um all-
nokkurt skeið. Talið er að hann
sé klæddur í svarta úlpu eða
mittisjakka, bláar gallabuxur og
hvíta strigaskó. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir
Arturs, eða vita hvar hann er að
finna, eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við lög-
regluna í síma 444-1000.
n Lögmaður Guðmundar Spartakusar Ómarssonar segir
skjólstæðing sinn viðskiptamann í Suður-Ameríku
G
uðmundur Spartakus
Ómarsson, sem lögreglan
leitaði að vegna hvarfs Frið-
riks Kristjánssonar en gaf sig
loksins fram við hana þrem-
ur árum eftir hvarfið, rekur kalkverk-
smiðju í Suður-Ameríku þar sem
hann býr ásamt fjölskyldu sinni.
Þetta kom fram við aðalmeðferð í
Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem
Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður
rekur mál fyrir hönd Guðmundar
Spartakusar gegn fjölmiðlamannin-
um Sigmundi Erni Rúnarssyni. Sig-
mundur Ernir fjallaði um fréttir sem
birtust í suðuramerískum fjölmiðl-
um og og drógu upp óhugnanlega
mynd af Guðmundi Spartakusi.
DV reyndi að ræða við Vilhjálm
eftir aðalmeðferðina á fimmtudag,
til að spyrja nánar um kalkverk-
smiðju Guðmundar, en Vilhjálmur
vildi ekki svara spurningum blaða-
manns.
Tilraun til að þagga niður málið?
Þess má geta að Friðrik Kristjánsson
hefur verið saknað frá árinu 2013.
Nú eru því liðin tæp fjögur ár
síðan síðast heyrðist frá honum.
Þá var hann staddur í Brasilíu á
leið yfir landamærin til Paragvæ.
Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmað-
ur Sigmundar Ernis, sagði við að-
almeðferð málsins að Guðmundur
Sparta kus hafi ekki gert annað en að
forðast lögreglu, aldrei tjáð sig opin-
berlega um málið eða haft samband
á einhverjum tímapunkti við lög-
regluna meðan á leitinni að Friðriki
stóð, þrátt fyrir að augljóst væri að
lögreglan væri að reyna að ná tali af
honum vegna hvarfsins.
Það eina sem komið hafi frá Guð-
mundi Spartakusi væru hótanir um
stefnur sem beint væri gegn íslensk-
um fjölmiðlamönnum og væru ekk-
ert annað en tilraun til þess að þagga
málið niður í fjölmiðlum, bæði um
mannshvarfið og kalkverksmiðju
hans í Suður-Ameríku.
Segir engan hafa reynt
að tala við Guðmund
Vilhjálmur sagði það ekki rétt að
Guðmundar Spartakusar hefði verið
leitað, þrátt fyrir að um það hafi ver-
ið skrifaðar fréttir, og hélt því fram
við aðalmeðferð málsins að enginn
hafi reynt að ná tali af honum vegna
hvarfs Friðriks Kristjánssonar og
enginn hafi reynt að ná í fjölskyldu
hans til þess að koma áfram skila-
boðum. Þá sé Guðmundur Spar-
takus með Facebook-síðu og sömu
sögu sé að segja af henni.
Það þótti lögmanni Sigmund-
ar Ernis mjög óvenjulegt þar sem
skrifað hafi verið um hvarf Frið-
riks allt frá árinu 2013. Í tæp fjög-
ur ár hafi skjólstæðingur Vilhjálms
ekki gefið sig fram en þess í stað
ákveðið að ráðast á íslenska fjöl-
miðla þar sem þeir væru auðveld
skotmörk. Þá greindi lögmaður Sig-
mundar Ernis einnig frá því að ekki
væri verið að höfða neitt dómsmál
í Suður-Ameríku gegn miðlinum
ABC Color en hann er fyrsti mið-
illinn sem birti fréttir þess efnis að
Guðmundur Spartakus væri valda-
mikill eiturlyfja smyglari þar í landi.
Vilhjálmur vildi þó meina að slík
málshöfðun væri í undirbúningi.
Vildi fá fram lögregluskýrslur
Þetta er ekki fyrsta og ekki síðasta
dómsmálið sem rekið verður hér
á landi í nafni Guðmundar Spar-
takusar Ómarssonar. Hann hefur
stefnt nokkrum fjölda blaðamanna
og farið fram á peningagreiðslur og
afsökunarbeiðnir.
Fram hefur komið að fyrstu sam-
skipti Guðmundar Spartakusar við
íslenskt lögregluyfirvöld, vegna
hvarfs Friðriks, hafi verið tæpum
fjórum árum eftir hvarf hans. Gunn-
ar Ingi hvatti Vilhjálm fyrir dómi á
fimmtudag, til að leggja fram þær
lögregluskýrslur, fyrir hönd Guð-
mundar Spartakusar, sem til væru
um málið en þeirri beiðni var hafn-
að.
Dómur verður kveðinn upp í
málinu innan fjögurra vikna. n
SpartakuS Sagður
reka kalkverk-
Smiðju í paragvæ:
FriðrikS enn leitað
Guðmundur
Spartakus
Rekur að sögn
verksmiðju í
Suður-Ameríku.
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Týndur Friðriks hefur verið saknað frá
árinu 2013.
Lögmaður Vilhjálmur Vilhjálmsson er
verjandi Guðmundar.
Greiddi 667 þúsund í tryggingu
Í
slenskur karlmaður á fertugs-
aldri, fyrrverandi forstjóri og
þekktur maður í heimi viðskipta
á Íslandi, var á fimmtudag hand-
tekinn af lögreglunni Austin í Texas,
fyrir að beita fjölskyldumeðlim of-
beldi.
Lögregla handtók manninn um
miðja nótt, klukkan 02.15 að staðar-
tíma. Var hann færður á lögreglu-
stöð og skoðaður þar af heilbrigðis-
starfsmanni. Meint brot hans voru
færð til bókar klukkan 03.32, sam-
kvæmt upplýsingum sem DV
bárust frá lögreglunni í Austin.
Maðurinn var handtekinn
fyrir líkamsárás og fluttur í Travis
County Jail í Texas og var í haldi þar
til klukkan 16.47 á föstudag.
Honum var gert að greiða sex
þúsund dollara í tryggingarfé, eða
um 667 þúsund krónur, en sætir að
líkindum farbanni. Hann getur þó
óskað eftir leyfi til að ferðast.
Maðurinn hefur ekki hlotið refsi-
dóm, svo DV sé kunnugt um. n
Handtekinn
í Texas vegna
heimilisofbeldis Fangamynd Maðurinn er 39 ára gamall.