Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Blaðsíða 9
Vikublað 14.–16. mars 2017 Kynning - Heilsa 9
Hollustan heldur inn-
reið sína á Grensásinn
Bændur í bænum fluttir á Grensásveg 10
Þ
au tíðindi hafa
gerst að lífræni
matvörumarkaðurinn
„ Bændur í bænum“
hefur flutt frá Nethyl 2c
yfir á Grensásveg 10, í húsnæði
gömlu EJS-búðarinnar. Gunnar
Örn Þórðarson hjá „Bændum í
bænum“ er afar ánægður með
þessa breytingu:
„Ég held að það sé gott að
fá aukna hollustu hingað í hverfið
og að hún falli vel inn í þá fjölbreyttu
starfsemi sem hér er að finna. Slag-
orðið okkar er Borðaðu þér til bóta
og það er í fullu gildi hér á Grensásn-
um. Við leggjum áherslu á ferska,
heilnæma matvöru og liggur metn-
aður okkar í því að hafa alltaf fersku-
stu vörurnar á boðstólum. Núna ligg-
ur fyrir að auka vöruúrvalið, bæta við
hreinlætisvörum og öðru sem okkur
hefur þótt vanta í vöruúrvalið. En allt
skal vera lífrænt og umhverfisvænt.
Bændur í bænum er alvöru
bændamarkaður. Við rekum einnig
Garðyrkjustöðina Akur og sjáum því
um vörunar okkar, allt frá því þeim
er sáð þar til við afhendum þær yfir
búðarborðið. Því erum við mjög stolt
af. Aðrar vörur koma síðan frá öðrum
lífrænum framleiðendum sem við
erum í góðum tengslum við.
Við seljum aðeins vörur sem
standast okkar kröfur um lífræna
framleiðslu, heiðarleika, gegnsæi og
rekjanleika í viðskiptum. Við flytjum
inn ávexti frá Eosta í Hollandi sem á
vörumerkið Nature & more, og þurr-
vöru frá Saltå kvarn í Svíþjóð. Við-
skiptavinir geta spurt um hvaðeina
sem snertir vörurnar, framleiðslu,
flutning og matseldina. Hér er mikil
sérþekking til staðar og oft eru fram-
leiðendurnir sjálfir á staðnum.
Við erum með mjólkurafurðir frá
Biobú, útigrænmeti frá Hæðarenda
og grænmeti og ost frá Skaftholti.
Brekkulækur sér okkur fyrir lamba-
og nautakjöti og Litla gula hænan sér
okkur fyrir velferðarkjúklingi. Einnig
erum við með hráfæðiskökur frá org-
anic.is og þurrvörur frá Kaja Organic,
svo fátt eitt sé nefnt.“
Besta leiðin til að kynna sér úr-
valið er að koma í verslunina að
Grensásvegi 10 en hún er opin virka
daga frá kl. 11 til 18.15. Einnig er
áhugavert og gagnlegt að skoða net-
verslunina á slóðinni baenduri-
baenum.is. n
Kynning