Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 9
Vikublað 14.–16. mars 2017 Kynning - Heilsa 9 Hollustan heldur inn- reið sína á Grensásinn Bændur í bænum fluttir á Grensásveg 10 Þ au tíðindi hafa gerst að lífræni matvörumarkaðurinn „ Bændur í bænum“ hefur flutt frá Nethyl 2c yfir á Grensásveg 10, í húsnæði gömlu EJS-búðarinnar. Gunnar Örn Þórðarson hjá „Bændum í bænum“ er afar ánægður með þessa breytingu: „Ég held að það sé gott að fá aukna hollustu hingað í hverfið og að hún falli vel inn í þá fjölbreyttu starfsemi sem hér er að finna. Slag- orðið okkar er Borðaðu þér til bóta og það er í fullu gildi hér á Grensásn- um. Við leggjum áherslu á ferska, heilnæma matvöru og liggur metn- aður okkar í því að hafa alltaf fersku- stu vörurnar á boðstólum. Núna ligg- ur fyrir að auka vöruúrvalið, bæta við hreinlætisvörum og öðru sem okkur hefur þótt vanta í vöruúrvalið. En allt skal vera lífrænt og umhverfisvænt. Bændur í bænum er alvöru bændamarkaður. Við rekum einnig Garðyrkjustöðina Akur og sjáum því um vörunar okkar, allt frá því þeim er sáð þar til við afhendum þær yfir búðarborðið. Því erum við mjög stolt af. Aðrar vörur koma síðan frá öðrum lífrænum framleiðendum sem við erum í góðum tengslum við. Við seljum aðeins vörur sem standast okkar kröfur um lífræna framleiðslu, heiðarleika, gegnsæi og rekjanleika í viðskiptum. Við flytjum inn ávexti frá Eosta í Hollandi sem á vörumerkið Nature & more, og þurr- vöru frá Saltå kvarn í Svíþjóð. Við- skiptavinir geta spurt um hvaðeina sem snertir vörurnar, framleiðslu, flutning og matseldina. Hér er mikil sérþekking til staðar og oft eru fram- leiðendurnir sjálfir á staðnum. Við erum með mjólkurafurðir frá Biobú, útigrænmeti frá Hæðarenda og grænmeti og ost frá Skaftholti. Brekkulækur sér okkur fyrir lamba- og nautakjöti og Litla gula hænan sér okkur fyrir velferðarkjúklingi. Einnig erum við með hráfæðiskökur frá org- anic.is og þurrvörur frá Kaja Organic, svo fátt eitt sé nefnt.“ Besta leiðin til að kynna sér úr- valið er að koma í verslunina að Grensásvegi 10 en hún er opin virka daga frá kl. 11 til 18.15. Einnig er áhugavert og gagnlegt að skoða net- verslunina á slóðinni baenduri- baenum.is. n Kynning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.