Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 10
Vikublað 14.–16. mars 201710 Fréttir
Rukkaður um þrefalt
hærri tryggingu hjá TM
n Bifreiðartrygging kostaði tæplega hálfa milljón n TM segir fötlun engin áhrif hafa á iðgjöld
Þ
að greiðir enginn svona
hátt gjald. Ég er þess alveg
fullviss,“ segir Eggert Þór
Sveinbjörnsson í samtali
við DV. Iðgjald fyrir bíla-
tryggingu og kaskó hjá trygginga-
félaginu TM reyndist þrefalt hærra
en hjá samkeppnisaðila samkvæmt
tryggingarskírteini sem DV hefur
undir höndum. Sonur Eggerts, Svein-
björn Benedikt, hefur að sögn tryggt
hjá TM undanfarin ár en hætti í við-
skiptum síðastliðið haust vegna
svimandi hás iðgjalds.
Sveinbjörn, sem er 23 ára, er
spastískur, flogaveikur og fjölfatlað-
ur. Hann á bíl sem hann notast við
til að komast á milli staða en Mos-
fellsbær annast akstur-
inn, enda hefur Svein-
björn ekki ökuréttindi.
Bifreiðin er sérútbúin til
að mæta þörfum Svein-
björns sem notast við
rafmagnshjólastól. TM
hafnar því alfarið að fötl-
un viðskiptavina hafi
áhrif á fjárhæð iðgjalda.
Hefur þröng fjárráð
Eggert segir að þar sem
Sveinbjörn sé öryrki hafi
hann mjög þröng fjár-
ráð. Hann geti engan
veginn staðið undir
bifreiðatryggingu fyr-
ir tæplega hálfa milljón
króna.
Eggert segir við DV að sonur
hans hafi fengið bifreiðina afhenta
skömmu fyrir síðustu verslunar-
mannahelgi. Vátryggingartímabilið
í vátryggingarskírteini TM kveður á
um að tryggingartímabilið sé frá 22.
júlí 2016 til 30. júní 2017. Hann tek-
ur fram að hann hafi ekki fylgst með
gangi þess máls fyrr en forstöðu-
maður sambýlisins, sem Svein-
björn býr á, hafði samband við
hann. Þá hafði komið í ljós að
tryggingin var fallin úr gildi
vegna gjaldfallins reiknings.
Eggert segir að hann hafi brugð-
ist við með því að greiða 100 þúsund
krónur inn á trygginguna þannig að
hún tæki gildi. „Ég borgaði þeim 100
þúsund krónur því þeir ætluðu að
laga hana til,“ segir hann. Skömmu
síðar hafi hann fengið símtal frá for-
stöðumanninum vegna reiknings í
heimabanka Sveinbjörns, upp á um
40 þúsund krónur. Sú upphæð hafi
verið greidd og taldi Eggert að um
lokagreiðslu væri að ræða. Nokkru
síðar hafi annar reikningur borist
og með hafi fylgt greiðsluyfirlit fyrir
tryggingarárið. Þá hafi hann ákveðið
að grípa í taumana.
Segist engar skýringar fá
Hann segir að þrátt fyrir kröftug
mótmæli hafi TM ekki talið sig geta
lækkað gjaldið, sem hann segir að
sé fjarstæðukennt. Hann fái engar
haldbærar skýringar á þessari háu
fjárhæð og sýnir blaðamanni stað-
festingu frá TM um að sonur hans sé
tjónlaus á þeim tíma sem hann hafi
tryggt hjá TM, undanfarin þrjú ár.
Eggert sagði að sögn upp
tryggingunni hjá TM í lok septem-
ber og óskaði eftir tilboðum í bíla-
tryggingu, fyrir hönd sonar síns, frá
VÍS og Sjóvá. Hann gekk að tilboði
VÍS sem hljóðaði upp á um 143 þús-
und krónur fyrir ábyrgðartryggingu,
framrúðu- og kaskótryggingu. Tilboð
frá Sjóvá hljóðaði upp á 191 þúsund
krónur með tryggingu sem kallast
fjölskylduvernd. Hann fór þess á leit
við TM að fá hluta þeirrar upphæðar
sem greidd hafi verið endurgreidda,
miðað við dæmigert iðgjald. „Ég
talaði við þá í nóvember og vildi að
strákurinn fengi mismuninn greidd-
an til baka – ekki miðað við svona
gjald sem er algjörlega út úr korti.“
Hann segir að honum hafi ekki orðið
ágengt í þeim efnum.
Eggert segir að gjaldið fyrir
tryggingu á fyrri bíl Sveinbjörns
hafi verið eðlilegt – ekkert í líkingu
við þetta – og hann segist ekki skilja
þessa verðlagningu. Hann tekur fram
að flestir þeir sem hann hafi rætt við
hjá TM hafi verið ákaflega viðræðu-
góðir. Þar á meðal Kjartan fram-
kvæmdastjóri. En engu að síður skilji
hann ekki hvernig á þessu standi.
„Sonur minn er sakleysingi sem hefur
aldrei gert nokkrum manni nokkurn
skapaðan hlut. Hann er flekklaus á
allan hátt og með allt sitt á hreinu.
Mér finnst þetta algjörlega ólíðandi.“
Hann bætir við að tryggingin hjá TM
hafi vissulega markað ákveðin tíma-
mót, eins og fyrirtækið auglýsi, þó á
annan hátt en þeir leggi upp með.
Eggert segist verða að kyngja því
ef þetta sé gjald sem þeir leggja al-
mennt á ungt fólk, en hann trúi því
ekki að óreyndu. „Ég get ekki annað
en varað fólk við að skipta við TM ef
þetta er svona. Ég næ þessu ekki.“
Aldur og áhætta
Kjartan Vilhjálmsson, framkvæmda-
stjóri TM, segir við DV að félaginu sé
mjög þröngur stakkur sniðinn þegar
komi að umræðu um einstök mál,
við aðra en þá sem þar eiga í hlut.
Það má taka fram að Sveinbjörn er
sjálfráða. „Hins vegar er það þannig
að afsláttar kjör og áhættumat félags-
ins er háð ýmsum forsendum á borð
við aldur, fjölskyldusamsetningu,
umfang viðskipta, viðskiptalengd,
skilvísi, verðmæti hins vátryggða og
tjónasögu. Almennt er það því sam-
spil þessara þátta sem stýrir iðgjöld-
um í báðar áttir, hvort heldur til
hækkunar eða lækkunar.“
Hann segir að ekki sé lagt sérstakt
álag á iðgjöld ungmenna hjá TM.
„Það er hins vegar stefna félagsins
að viðskiptavinir greiði iðgjöld í
samræmi við áhættu og þegar kemur
að ökutækjum er mjög sterk fylgni
milli aldurs og tjónatíðni. Af þeim
sökum eru iðgjöld yngri ökumanna
í mörgum tilfellum hærri en þeirra
sem reyndari eru.“ Þá áréttar hann að
fötlun einstaklinga hafi engin áhrif á
fjárhæð iðgjalda. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Sonur minn er sak-
leysingi sem hefur
aldrei gert nokkrum manni
nokkurn skapaðan hlut.
Þarfur þjónn
Sveinbjörn notast við
rafmagnshjólastól og
bíllinn er lykillinn að
ferðafrelsi hans.
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á
góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Sportgleraugu
Red Bull sólgleraugu
kr. 14.950,-
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is