Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 16
Vikublað 14.–16. mars 20172 Með allt á hreinu - Kynningarblað
Bjóða einstaka þjónustu
í umsjón leiguhúsnæðis
Dekura
F
élagarnir Davíð Karl Wiium
og Davíð Vilmundarson eru
brautryðjendur í umsjón
og umsýslu eigna í skamm-
tímaleigu. Árið 2014 stofnuðu
þeir þjónustufyrirtækið Dekura sem
sérhæfir sig í viðhaldi á húsnæði sem
leigt er út í gegnum Airbnb og aðra
sambærilega vefi, til þess að létta
undir með leigusölum. Einnig sér-
hæfa þeir sig í umsjón gistiheimila
af öllum stærðum og gerðum. Það er
ótal margt sem þarf að huga að þegar
kemur að því að gera leigjandann
ánægðan. Fyrir utan það að íbúðin
þarf að vera í toppstandi og tandur-
hrein og allt aðgengi með besta móti
þegar nýr leigjandi bankar upp á, þá
þarf leigusali að vera til taks til að
hitta fólk á öllum tímum sólarhrings
og vera reiðubúinn til að leysa úr
hinum ýmsu vandamálum sem upp
geta komið. Þess vegna sér Dekura
einnig um öll samskipti við gesti.
Innifalið í heildarumsjón Dekura er
einnig allt lín, handklæði og annað
sem þarf að vera til staðar fyrir gesti
meðan á dvöl stendur.
Rekstur af þessu tagi getur verið
ansi tímafrekur og krefst töluverðra
fórna og umtalsverðrar skipulagn-
ingar af hálfu leigusala. Samhliða
fullri vinnu og skipulagningu getur
þetta verið ansi þungur baggi fyrir
leigusala að takast á við. Með hjálp
Dekura getur leigusali tekið á móti
töluvert fleiri viðskiptavinum og
fengið betri umsagnir, sem eykur
samstundis verðgildi íbúðarinnar og
leigutekjurnar sem af henni koma.
Dekura hefur síðan árið 2014 aðstoð-
að fjölda fólks við allt sem viðkemur
rekstri á eignum í skammtímaleigu.
Allt frá þrifum upp í alhliða umsjón
eignanna. Hjá fyrir tækinu starfa í
dag 12 manns sem sjá um hin ýmsu
verkefni og státar Dekura sig af einu
færasta þrifnaðar teymi í bransan-
um. Eftir fjögur ár í þessum rekstri
vita starfsmenn Dekura hvað til þarf
til að hafa eignir tilbúnar fyrir ferða-
menn.
Dekura er í nánu samstarfi við
teymi sérfræðinga í leyfismálum og
aðstoðar viðskiptavini sína við að
fá þau leyfi sem þarf, viðskiptavin-
inum að kostnaðarlausu, hvort sem
um er að ræða 90 daga leyfi eða full-
gilt gistileyfi.
Vegna aukinna umsvifa hefur
bæst í teymið, nýr framkvæmdastjóri
hefur tekið til starfa auk þess sem
Dekura hefur fært sig um set niður á
Skólavörðustíg í miðbæ Reykjavíkur.
Þar starfrækir fyrirtækið skrifstofu og
fullbúið þvottahús.
Til þess að panta þjónustu frá
Dekura má hafa samband í gegn-
um vefsíðu fyrirtækisins https://
dekura.is eða senda póst á netfangið
dekura@dekura.is. n
Fyrirtæki og húsfélög, gerum tilboð
ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.þrif.is | thrif@centrum.is
Hefur þú þörf fyrir
þrif
Dekura Davíð
Vilmundarson (t.v.)
og Davíð Karl Wiium.
MynD Sigtryggur Ari