Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Qupperneq 20
Vikublað 14.–16. mars 201716 Lífsstíll
n Heilinn vaknar endurnærður eftir 10 til 15 mínútna blund n Sama gildir um börn og fullorðna
Í
Evrópu sunnanverðri má finna
þess dæmi að miðdegisblundir
séu í hávegum hafðir. Spánverjar
hafa þann sið að leggja sig eftir há-
degið, yfir heitasta tímann. Þannig
hlaða þeir rafhlöðurnar og mæta
endurnærðir til vinnu á nýjan leik.
Þær eru ekki margar þjóðirnar sem
fylgja þessu fordæmi og víðast hvar
væri litið á blund á miðjum vinnudegi
sem veikleikamerki eða hreinlega leti.
Rannsóknir sýna að það getur
verið meinhollt að leggja sig yfir
daginn og raunar er það mikilvægur
hluti af dægursveiflu fólks. Studdur
blundur eykur árvekni fólks og af-
kastagetu og talað er um að 15 til 20
mínútur geti haft mikið að segja.
Sama gildir um börn og fullorðna
Í nýlegri rannsókn sem University
of Colorado Boulder stóð fyrir kom
í ljós að börn sem ekki lögðu sig
eftir hádegið voru ekki eins ánægð
og áhugasöm þegar leið á daginn.
Þau voru órólegri og gátu síður leyst
þrautir en börn sem lögðu sig með
reglubundnum hætti.
Rannsakendur við Berkeley-há-
skóla komust að því að það sama
gilti um fullorðna. Þeir sem lögðu sig
eftir hádegið áttu auðveldara með að
læra og mundu hluti betur. Niður-
staðan bendir til þess að heilinn
„endurræsist“ við hvíldina og eyði
óþarfa hugsunum út úr skammtíma-
minninu. Fyrir vikið verður hann
móttækilegri en ella fyrir nýrri þekk-
ingu eða nýjum upplýsingum.
Ekki á kostnað nætursvefns
Sérfræðingar segja að 10 til 20 mín-
útna blundur nægi til að fólk vakni
endurnært og tilbúið í komandi verk-
efni. Fólk nær ekki djúpsvefni á þess-
um tíma og er þess vegna eldsnöggt
að taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið. Ef maður sefur 30 mínútur
eða lengur er líklegt að maður vakni
upp ringlaður. Þá er maður að vakna
í þann mund sem maður er að kom-
ast á dýpra stig svefnsins. Fram kem-
ur að það sama gildi um 60 mínútna
svefn en hann geti aftur á móti verið
afbragðs góður fyrir minnið. Lengstu
blundirnir, þeir sem vara í um 90
mínútur þykja góðir fyrir þá sem
sváfu ekki nóg nóttina áður. Á þeim
tíma fer maður í gegnum öll stig
svefnsins og bætir fyrir vikið minnið
og eflir sköpunargáfuna.
Á heildina litið eru blundir til
þess fallnir að hjálpa manni – bæði
líkamlega og andlega – til að komast
í gegnum daginn. Það er hins vegar
alls ekki mælt með að maður fórni
nætursvefni í staðinn. Blundir ættu
að vera viðbót við góðan nætursvefn,
ef þeir eiga að gera það gagn sem til
er ætlast. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is Góður nætursvefn
Nokkur heilræði af doktor.is
n Sofðu eins mikið og nauðsynlegt er til
þess að þér líði vel næsta dag, ekki minna
og ekki meira. Of langur svefn getur truflað
svefnmunstrið.
n Reglulegur fótaferðartími og reglulegur
háttatími styrkir líkamsklukkuna og leiðir
til betri svefns.
n Líkamleg áreynsla í formi daglegrar
hreyfingar leiðir til betri svefns.
n Hungur truflar svefn og sama gildir um
að vera of saddur.
n Forðast á örvandi drykki að kvöldi,
sérstaklega með koffeini s.s. kaffi, te, kóla-
og orkudrykki, suma hverja.
n Áfengi getur hjálpað spenntum manni
að sofna en það truflar svefninn og sama
gildir um tóbak.
n Tryggja þarf ró í umhverfi og huga áður
en lagst er til svefns. Forðast að taka
áhyggjurnar með í rúmið.
n Gefðu líkamanum skilaboð um að hann
sé að fara í hvíld með því að dempa ljósið
og hætta tölvuvinnu/sjónvarpsáhorfi
tímanlega fyrir svefn.
n Gott rúm bætir svefninn og í herberginu
ætti að vera hæfilegur hiti, myrkur og
kyrrð.
n Ekki liggja andvaka í rúminu, farðu fram
í smástund og gerðu eitthvað allt annað
og reyndu svo aftur að sofna.
n Svefnlyf geta hjálpað í stuttan tíma en
notkun þeirra til lengri tíma er árangurs-
laus og jafnvel skaðleg.
Þreyta við
skrifborðið
Stuttur blundur
getur gert krafta-
verk. En varast
skal að sofa of
lengi. Mynd 123rf.coM
Eykur árvEkni
og b tir minni