Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 22
Vikublað 14.–16. mars 201718 Menning
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Menningarmiðstöð
opnuð á Grandanum
n Verið að leggja lokahönd á Marshall-húsið n Nýló, Kling & Bang og Ólafur Elíasson opna á laugardag
F
rágangur og undirbúningur
fyrir opnun menningarmið-
stöðvar í Marshall-húsinu á
Grandanum í Reykjavík er
á lokametrunum – en hús-
ið verður formlega opnað næsta
laugardag. Nýlistasafnið og Kling &
Bang munu taka hvort sína hæðina
undir sýningarrými, Ólafur Elíasson
verður með vinnustofur á efstu hæð-
inni og eigið sýningarrými í öllum
suðurhluta byggingarinnar. Þar að
auk verður veitingastaður og bar á
jarðhæðinni.
Byggingin sem einnig hefur geng-
ið undir nafninu Faxaverksmiðj-
an var reist árið 1948 sem síldar-
bræðsla, og kom fé í byggingu hússins
meðal annars úr fjárhagsaðstoð sem
Íslendingar fengu frá Bandaríkjunum
eftir stríð og kennd er við George
Marshall, hershöfðingja og síðar
utan ríkisráðherra Bandaríkjanna.
Marshall-húsið hefur staðið autt
undanfarin ár en nýlega gerði Reykja-
víkurborg samning við eigandann,
HB Granda, um leigu til næstu
fimmtán ára og mun borgin fram-
leigja húsnæðið. Það eru arkitektarnir
Ásmundur Hrafn Sturluson og Stein-
þór Kári Kárason hjá Kurt og pí, og
Börkur Arnarson, galleristi í i8, sem
eru hvatamennirnir að verkefninu og
hafa unnið að því undanfarin ár.
Þegar ljósmyndara og blaða-
mann DV bar að garði upp úr hádegi
á mánudag var mikið líf í húsinu og
framkvæmdir í fullum gangi, iðnað-
armenn, arkitektar, galleristar og
listamenn hlupu um bygginguna og
unnu að því að allt yrði tilbúið fyrir
laugardag. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Stál og
steypa Fjöldi
iðnaðar-
manna er að
taka síðustu
handtökin fyrir
opnunina, til að
mynda er verið að
klára að mála, en hrá
grá steypa og hvítir veggir eru áberandi í
húsinu, til að mynda í aðalstiganum.
Allt að verða til Sýningarstjórar eru byrjaðir hengja upp verk sem sýnd
verða á opnunarsýningum Marshall-hússins. Í sýningarrými Nýlistasafns-
ins sem staðsett er á annarri hæðinni verður sýning á verkum Ólafs
Lárussonar opnuð.
Hátt til lofts Víða í Marshall-húsinu er hátt til
lofts, til að mynda í gamla túrbínusalnum þar sem
gengið er upp. Stórir gluggarnir hleypa inn mikilli
birtu auk þess sem útsýnið yfir Hörpu og á Esjuna
er tilkomumikið.
Lok, lok og læs Mikil
leynd ríkir yfir því
hvernig sýningar-
rými Ólafs Elíasson-
ar í suðurhluta
hússins mun líta út
og fengu blaðamað-
ur og ljósmyndari DV
ekki leyfi til að kíkja inn.
Skiltið komið upp Skilti með nafni hússins nýkomið upp á þá hlið hússins
sem snýr að höfninni. Veitingahúsarekstur verður á neðstu hæð hússins,
Nýlistasafnið verður á annarri hæðinni, Kling & Bang á þeirri þriðju
og vinnstofa Ólafs Elíassonar á efstu hæðinni. Í
suðurhluta hússins (til vinstri á myndinni)
verður sýningarrými Ólafs.
Myndir SiGtryGGur Ari
Kling & Bang Flotuð gólf
og hvítt sýningarrými á þriðju
hæð hússins.
Á
föstudag kemur út hjá
bókaútgáfunni Crymogeu
skáldsagan Musa eftir Sig-
urð Guðmundsson. Það er
fjórða skáldsagan frá Sigurði, sem
er einn þekktasti myndlistarmað-
ur þjóðarinnar, en áður hefur hann
sent frá sér bækurnar Tabula Rasa
(1993), Ósýnilega konan (2000) og
Dýrin í Saigon (2010). Eins og fyrri
verk Sigurðar dansar bókin á mörk-
um skáldsagnagerðar og ljóð- og
myndlistar, en í henni rekur Sigurð-
ur sögu sköpunarinnar frá aldin-
garðinum Eden til okkar daga, og
er aðalsöguhetjan fyrsti listamaður-
inn, Eva.
Þegar bókarhöfundur ætlar að
byrja að rekja söguna lendir hann hins
vegar fljótt í mikilli sköpunarþurrð
og getur hvorki skapað myndlist né
skrifað texta. Til að vinna á vandan-
um kallar hann til hjálpardís af netinu
sem hjálpar honum við að tengja sig
gömlum textabrotum, ljóðum og sög-
um sem smám saman tengja höfund-
inn betur við hina miklu kvenmynd
hans, músuna sem er upphaf sköp-
unarinnar og guðleg vera. n
kristjan@dv.is
Gefur út sína
fjórðu skáldsögu
Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður
sendir frá sér skáldsöguna Musa