Morgunblaðið - 03.03.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Félagsleg og efnahags-
leg glæpastarfsemi“
Stéttarfélag í Hollandi kærir Samskip Samskip benda á undirverktaka
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hollenska stéttarfélagið FNV hefur
lagt fram kæru til lögreglu í Hollandi
vegna illrar meðferðar Samskipa á
vörubílstjórum frá Austur-Evrópu.
Þetta kom fram í hollenska frétta-
skýringaþættinum EenVandaag í
vikunni. Í þættinum er viðtal við
rúmenskan vörubílstjóra sem starfar
hjá undirverktaka Samskipa en hann
segist vera með 35 þúsund krónur í
grunnlaun á mánuði. Hollenskir
vörubílstjórar eru með rúmlega 236
þúsund krónur í grunnlaun á mánuði
og telur FNV þetta vera mismunun.
Vörubílstjórarnir hafa ekki gistiað-
stöðu þegar þeir ferðast milli landa
og verða margir að láta duga að sofa í
gámum fyrirtækisins meðan beðið er
eftir næstu verkefnum. Edwin Ak-
tema frá FNV kallaði þetta fé-
lagslega og efnahagslega glæpa-
starfsemi í þættinum.
Skorast ekki undan ábyrgð
Fyrirtækið sem vörubílstjórarnir
starfa hjá er undirverktaki Samskipa
og segir Pálmar Óli Magnússon, for-
stjóri Samskipa, að þeir muni rifta
samningi við verktakann ef satt
reynist. „Það er alveg klárt að við er-
um ekki að skorast undan því að við
berum ábyrgð á að þeir sem vinna
fyrir okkur fari eftir lögum og
reglum. Þegar við ráðum til okkar
undirverktaka þá óskum við eftir
upplýsingum frá þeim um það að þeir
geti staðfest að þeir fari eftir lögum
og reglum. Ef menn brjóta lög þá
segjum við upp samningum við slíka
aðila,“ segir Pálmar. Samskip sögðu
upp samningi við tvo undirverktaka í
fyrra sökum þess að þeir höfðu ekki
farið eftir reglum.
Alþjóðlegar flutningareglur
„Við erum að flytja 900.000 gáma-
einingar á ári innan Evrópu og erum
með 26 starfsstöðvar í 16 Evrópu-
löndum þannig að varan á uppruna
sinn víða. Þegar gámar koma frá
Austur-Evrópu og enda inni í Hol-
landi koma þeir auðvitað með bíl-
stjórum frá þeim upprunalöndum,“
segir Pálmar. Lög og reglur þess
lands þar sem ráðningarsambandið
er gilda um vörubílstjórana. Í Cabo-
tage, samevrópsku reglunum um
flutning vara innan Evrópska efna-
hagssvæðisins, má vörubílstjóri
starfa í ákveðnum verkefnum í því
landi sem vörum er skilað. Sem
dæmi er vörubílstjóra frá Rúmeníu
heimilt eftir flutning til Hollands að
taka að sér verkefni innanlands. Það
er háð ákveðnum skilyrðum en hann
má ekki hafa viðveru í landinu of
lengi svo hann gangi ekki í störf hol-
lenskra vörubílstjóra. „Þessi um-
ræða ber keim af nokkru sem er vel
þekkt í Evrópu um frjálst flæði
vinnuafls og frjáls viðskipti milli
landa. Það blasir við að kaupmáttur
og velmegun í Evrópulöndunum er
mismunandi. Þannig er auðvitað
launamunur milli fyrirtækja og bíl-
stjóra eftir löndum. Þetta er eitt af
því sem Evrópusambandið þarf að
glíma við á pólitískum forsendum.
Það virðist við fyrstu sýn að þessar
athugasemdir FNV séu þannig að
þeir eru að reyna að verja störf hol-
lenskra bílstjóra en það er þeirra að
svara því,“ segir Pálmar.
Þá segir Pálmar að þeir hafi ekki
séð kæruna frá FNV. „Við höfum
engar upplýsingar um að það hafi
verið lögð fram kæra nema það sem
kom fram í þessum fréttaþætti. Ef
það reynist rétt og lögreglan
ákveður að skoða það nánar verður
haft samband við okkur. Við munum
auðvitað skoða þessi mál hjá fyrir-
tækinu, sem er nefnt í hollensku
fréttinni, og hefur verið að starfa hjá
okkur. Ef það reynist rétt að þeir
hafi ekki verið að fara eftir lögum þá
segjum við upp samningnum við þá.“
Skjáskot úr fréttaþættinum EenVandaag
Aðstaðan Vörubílstjórar hjá undirverktökum Samskipa hita sér vatn.
Biðin Skjáskot úr fréttaþættinum í Hollandi þar sem vörubílstjórar bíða í gámi Samskipa eftir næsta verkefni.
Í hnotskurn
» Vörubílstjórar sem starfa í
Hollandi eru á töxtum frá
heimalöndum sínum
» Vörubílstjóri frá Rúmeníu
hjá undirverktaka Samskipa er
með 35 þúsund krónur á mán-
uði í grunnlaun.
» Hollenskir vörubílstjórar eru
með 236 þúsund í grunnlaun á
mánuði.
» Ekki er séð fyrir gistingu eft-
ir akstur milli landa og því sofa
þeir í bílum sínum.
» Hafa komið sér upp mat-
araðstöðu í tómum gámum
Samskipa.
„Við þurfum að nýta okkur þessar
niðurstöður til þess að búa okkur til
áætlun um það til hvaða verkefna
við ætlum að ganga, hvernig við
ætlum að vinna, allir þeir aðilar
sem hafa komið að þessu,“ segir
Kristján Þór Júlíusson mennta-
málaráðherra. Í gær voru kynntar
niðurstöður úttektar Evrópumið-
stöðvar um menntun án aðgrein-
ingar á Íslandi.
Aðgerðaáætlun með vorinu
Af því tilefni skrifuðu fulltrúar
ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga,
kennara, skólastjórnenda og for-
eldra undir samstarfsyfirlýsingu
um að fylgja eftir markmiði
úttektarinnar. Næstu skref eru að
stofna stýrihóp samstarfsaðilanna
til að vinna aðgerðaáætlun sem af-
hent verði ráðherra með vorinu. Í
byrjun júní verði haldið málþing til
samtals og samráðs um það hvernig
best verði unnið með tillögur í út-
tektinni og þær tillögur sem gerðar
verða í aðgerðaáætluninni.
Skerpt á áætlunum
Í úttektinni kemur fram að skil-
greina þurfi hugtakið skóli án að-
greiningar betur og einnig hvernig
standa beri að framkvæmd mennt-
unar án aðgreiningar. Þörf er talin
á skýrari leiðsögn fyrir kennara um
það hvernig eigi að standa að inn-
leiðingunni og skerpa á áætlunum
innan skólakerfisins. Gefa þurfi
kennurum og öðru starfsliði skólans
tækifæri til að ígrunda störf sín.
helgi@mbl.is
Nýta niðurstöðurnar til að
gera áætlun um úrbætur
Kennarar þurfa betri leiðsögn um menntun án aðgreiningar
Morgunblaðið/Golli
Samstarf Stjórnvöld og hagsmuna-
samtök taka höndum saman.
Hæstiréttur stað-
festi í gær dóm
Héraðsdóms
Reykjavíkur þess
efnis að Trygg-
ingamiðstöðin eigi
að greiða Eiríki
Inga Jóhannssyni
rúmar 12,7 millj-
ónir króna í
skaðabætur
vegna sjóslyss
sem hann lenti í undan ströndum
Noregs árið 2012. Eiríkur hafði ráðið
sig sem vélstjóra á fiskiskipið Hall-
grím SI sem selt hafði verið til Nor-
egs. Var verkefni hans ásamt þremur
öðrum skipverjum að sigla skipinu til
Noregs. Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að Eiríkur hefði hlotið
varanlegt líkamstjón vegna slyssins.
Ágreiningur var um viðmiðunarlaun
við greiðslu bóta. Hæstiréttur mat
það svo að Eiríkur hefði verið kominn
nægjanlega nálægt námslokum til
fullra vélstjóraréttinda til að miða
bæri við meðallaun skip- og vél-
stjórnarmanna.
Afdrifaríkt atvik
Skip Eiríks var statt út af strönd
Noregs 25. janúar 2012 þegar óveður
skall á og gekk gríðarmikið brot yfir
skipið. Eiríkur komst einn í flotgalla
en aðrir skipverjar fórust með skip-
inu. Skipið sökk á innan við fimm
mínútum. Eiríkur var í sjónum í um
fjórar klukkustundir áður en norska
strandgæslan kom auga á hann úr
þyrlu og bjargaði honum.
Fær 12,7
milljónir
í bætur
Eiríkur Ingi
Jóhannsson
Eiríkur hafði
betur í Hæstarétti
Karlmaðurinn sem grunaður er um
að hafa verið valdur að dauða Birnu
Brjánsdóttur hefur viðurkennt að
hafa ætlað að smygla ríflega 20 kíló-
um af hassi til Grænlands með
togaranum Polar Nanoq. Hann neit-
ar hins vegar sem fyrr að hafa valdið
dauða Birnu. Þetta hafði Ríkisút-
varpið eftir Jóni H. B. Snorrasyni,
aðstoðarlögreglustjóra lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu í gær. Lög-
reglan telur sig hafa undir höndum
lífsýni sem tengi manninn við Birnu.
Héraðsdómur Reykjaness fram-
lengdi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
manninum um fjórar vikur.
Játar á sig
hasssmygl
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
víkurborgar hefur samþykkt að
auka þjónustu Strætó. Ekið verði
lengur á kvöldin og tekinn upp akst-
ur á nóttunni um helgar.
Strætisvagnar hætta almennt
akstri á bilinu hálf tólf til hálf eitt
virka daga. Hentar það illa fólki sem
sækir skemmtanir til miðnættis og
fólki sem vinnur vaktavinnu. Hafði
borginni meðal annars borist beiðni
frá Landspítalanum um að Strætó
æki lengur á kvöldin. Samþykktin
felur í sér að ekið verði til klukkan
eitt frá og með ágúst nk. Samkvæmt
upplýsingum Strætó kostar það 120
til 130 milljónir kr. aukalega. Er það
um 2% aukning á rekstrarkostnaði
fyrirtækisins.
Ráðið samþykkti að sérfræð-
ingum Strætó yrði falið að útfæra
tillögur um næturakstur með 30
mínútna tíðni, meðal annars um far-
gjöld á þeim tíma. Áætlað er að næt-
urakstur frá hálf tvö til fjögur að-
faranótt laugardags og sunnudags
kosti að minnsta kosti 60 milljónir
kr. aukalega. Svarar það til um 1%
aukningar á rekstrarkostnaði
Strætó.
Í minnisblaði Strætó sem lá fyrir
fundinum er því velt upp hvort ann-
að strætógjald eigi að gilda á nótt-
unni og hvort skipuleggja ætti sér-
stakar akstursleiðir úr miðbænum
með fáum stoppistöðvum þar. Þá
þurfi að huga að öryggismálum.
Tillagan fer til borgarráðs.
Strætó hefur kvöld-
og næturakstur
Kostnaður áætlaður 250 milljónir kr.