Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.04.2017, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.4. 2017
VETTVANGUR
Atlantshafabandalagið, Nató,var stofnað árið 1949 og ereinu ári yngra en ég.
Sitthvað hefur drifið á dagana
síðan hjá okkur báðum, mér og
hernaðarbandalaginu, enda lítur
heimurinn allt öðru vísi út núna en
hann gerði fyrir 68 árum.
Þá stóðu austurheimurinn og
vesturheimurinn andspænis hvor
öðrum og voru báðir gráir fyrir
járnum. Árás á eitt aðildarríki okk-
ar jafngildir árás á okkur öll sagði
Nató-blokkin þar sem okkur Ís-
lendingum var skipað á bekk.
Svo leið Sovétkommúnisminn
undir lok, Varsjárbandalagið leyst-
ist upp en Nató var áfram við lýði.
Og eins og títt er með stofnanir,
ríki og bandalög, þá langaði Nató
til að fá að lifa
áfram. Nýjar
áherslur voru
fundnar og mát-
aðar inn í nýja
veröld.
Undir aldamót-
in hafði áhersl-
unum verið
breytt. Í stað
árásar var nú tal-
að um ógn. Væri
einu aðildarríki
Nató ógnað væri
öllum ógnað.
Og ógnirnar var víða að finna.
Sérstaklega var þeim ógnað sem
vildu ráðskast með aðra og ásæld-
ust eigur þeirra, hráefni og auðlind-
ir. Og ógnirnar voru ekki lengur
staðbundnar. Herveldunum innan
Nató, sem aldrei höfðu losnað við
þankagang nýlendutímans, var nú
ógnað í öllum heimsins hornum.
Þess vegna var nú lögð áhersla á
það innan Nató að bandalagið hefði
hreyfanlegan herstyrk – vopnabún-
að og heri sem flytja mætti á ör-
skotsstundu heimshorna á milli.
En hver var tilgangurinn með
Nató? Hafði hann breyst? Var hann
ekki sá að skapa aðildarríkjunum
öryggi?
Þá er að spyrja hvort við séum
sannfærð um að vera okkar í Nató
færi okkur öryggi og öryggiskennd.
Í nýju Nató, sem hefur allan
heiminn undir, skiptir jafnvel meira
máli en fyrr á tíð, hverjir sitja við
stjórnvölinn í öflugustu herveldum
bandalagsins. Ef stýrimenn eru
friðsamir og lýðræðislega þenkj-
andi erum við rólegri en þegar okk-
ur sýnist þeir vera leiðitamir hags-
munabröskurum og hernaðar-
haukum. Duttlungar og árásargirni
í bland við skort á yfirvegaðri hugs-
un er sennilega hættulegasti
kokteillinn.
Já, það er rétt til getið. Auðvitað
er ég að hugsa um Donald Trump.
Sem yfirmaður Bandaríkjahers gat
hann prívat og persónulega fyrir-
skipað eldflaugaárás á herflugvöll
undir stjórn
Assads Sýrlands-
forseta. Sonur
Trumps segir
hann hafa gefið
fyrirskipun um
árás að áeggjan
systur sinnar eftir
fréttir af eitur-
efnaárás Assads.
Hvað rétt er í
þessu veit ég ekki.
Hitt veit ég að
sem fréttamaður
erlendra frétta,
sem ég var fyrr á tíð, hefði ég aldr-
ei trúað fullyrðingum um efnavop-
naárásina sem nýju neti, fremur en
ýmsu sem spunnið er upp í stríðs-
átökum, þótt ekki beri ég brigður á
að þarna voru eiturvopn, sem ollu
ómældum hörmungum.
Og nú á að klára Norður-Kóreu.
„Ætla Kínverjar að vera með?“
spyr Trump – á twitter.
En mergurinn máls er þessi:
Þegar óyfirvegað fólk heldur um
gikkinn á öflugustu stríðsvél heims-
ins er hætta á ferðum, ekki bara
fyrir þá sem vopnunum er beint að,
heldur einnig fyrir byssumennina
sjálfa og ekki síður alla samferða-
menn þeirra. Ekki síst þá sem hafa
skuldbundið sig að gömlum sið,
einn fyrir alla og allir fyrir einn.
Með nýja hugsun Nató í fartesk-
inu og Donald Trump við stýrið
vaknar ágeng spurning úr kunnum
auglýsingatexta.
Er Nató öruggur staður að vera
á?
Varla.
Nató, Donald Trump
og öryggi Íslands
’Þegar óyfirvegaðfólk heldur umgikkinn á öflugustustríðsvél heimsins er
hætta á ferðum, ekki
bara fyrir þá sem
vopnunum er beint að,
heldur einnig fyrir
byssumennina sjálfa og
ekki síður alla sam-
ferðamenn þeirra.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur @althingi.is
AFP
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Sem frægt er fá sparkendur á Eng-
landi sjaldan frí á stórhátíðum og
páskarnir í ár eru þar engin undan-
tekning. Heil umferð er í úrvals-
deildinni um helgina, þar af tveir
leikir í dag, páskadag. Stórleikurinn
fer vitaskuld fram í sjálfu Leikhúsi
draumanna, Old Trafford, þar sem
Manchester United tekur á móti
meistaraefnunum í Chelsea kl. 15.
José Mourinho, stjóri United,
brennur örugglega í skinninu að
lækka rostann í sínum gömlu læri-
sveinum og komast hjá enn einu
jafnteflinu. Hann hefur í þrígang
gert Chelsea að Englandsmeistara
en bíður enn eftir sínum fyrsta
meistaratitli með Manchester Unit-
ed.
Klukkan 12.30 fer Jürgen Klopp
með „Rauða herinn“ sinn á The
Hawthorns, þar sem Tony Pulis og
hreystimenni hans í West Bromwich
Albion taka á móti þeim. Liverpool
er í harðri baráttu um sæti í Meist-
aradeild Evrópu næsta vetur en fær
ekkert gefins hjá refnum Pulis sem
ann glímunni við stórliðin.
Diego Costa, miðherji Chelsea, glímir við leikmenn Manchester United.
AFP
Háskaleikir á páskum
Stórleikir fara sem endranær fram í ensku
knattspyrnunni um páskahátíðina