Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.04.2017, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.04.2017, Síða 24
Vísindarannsóknir staðfesta að regluleg hreyf-ing hefur fjölþættan ávinning fyrir heilsuna.Þeir sem hreyfa sig reglulega minnka meðal annars líkurnar á að fá kransæðasjúkdóma, heilablóð- fall, sykursýki af tegund 2, sumar tegundir krabba- meina, stoðkerfisvandamál og geðröskun, eins og fram kemur í bæklingnum Ráðleggingar um hreyf- ingu, sem er að finna á vef Embættis landlæknis, landlaeknir.is. Þar kemur líka fram að kyrrseta geti haft slæmar afleiðingar fyrir heilsu og fjárhag fólks og það sé ekki síður mikið í húfi fyrir samfélagið í heild. Margar þjóðir hafa áætlað kostnað samfélagsins vegna kyrrsetu landsmanna, meðal annars beinan kostnað vegna meðferðar á lífsstílstengdum sjúkdóm- um, og óbeinan kostnað vegna veikindafjarvista. Byggt á niðurstöðum slíkra rannsókna áætlar Evr- ópuskrifstofa Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að kyrrseta geti kostað Evrópuþjóðir sem svarar um 15.000-30.000 krónum á hvern íbúa á ári. Bresku hjartasamtökin hafa varað við því að 20 milljón sófakartöflur þar í landi séu í aukinni hættu á ótímabæru andláti. Vandamálið er að fólk tekur ekki slíkar aðvaranir til sín. Tölurnar eru háar en samt vill enginn vera hluti af þessum hópi. Hér verða tekin saman nokkur góð ráð fyrir sófakartöflur sem vilja hreyfa sig meira. Algeng atriði sem fólk nefnir að komi í veg fyrir daglega hreyfingu eru tímaskortur, þreyta, áhuga- leysi og óöryggi. Eftirfarandi ráð geta vegið á móti þessu. Það er nauðsyn- legt að standa upp úr sófanum endr- um og sinnum. Mynd/Thinkstock-Getty Images 5 góð ráð fyrir sófakartöflur Öll hreyfing skiptir máli og hér verða talin upp nokkur góð ráð til þess að standa upp úr sóf- anum og efla heilsuna. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is HEILSA Vigtin er takmarkaður mælikvarði á heilbrigði. Þeir sem eru svipaðir í útliti getaverið misþungir þar sem niðurstöðutalan á vigtinni segir aðeins til um heild-arþyngd líkamans. Vigtin segir lítið til um aðra þætti sem skipta ekki síður máli þegar heilbrigði er annars vegar. Leggjum frekar áherslu á heilbrigðar venjur. Venjur umfram vigt 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.4. 2017 Thinkstock 5Margar rannsóknir hafa sýnt að það hjálpi að bæði verðlauna sigog setja sér markmið. Það er best að setja sér markmið um dag-lega hreyfingu, 30 mínútur fyrir fullorðið fólk og 60 mínútur fyrirbörn, að því er fram kemur í hreyfiráðleggingunum. Það gæti verið hvetjandi að gera samning við vin eða jafnvel keppa við einhvern. Líka er hægt að stinga 100 krónum í krukku fyrir hvert skipti sem fólk stundar líkamsrækt og leyfa peningunum að safnast upp og verðlauna sig með heilsusamlegum hætti við tækifæri. Að minnsta kosti er ljóst að með daglegri hreyfingu er unnt að við- halda og bæta líkamshreysti, svo sem afköst lungna, hjarta og æðakerfis, og efla vöðvastyrk. Allt þetta stuðlar að því að fólk hefur meiri orku til að takast á við verkefni dagsins og gera það sem því finnst skemmtilegt. Settu þér markmiðalvöru grillaður kjúklingur Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585 Opið alla daga kl. 11-22

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.