Skátablaðið Faxi - 11.04.1993, Blaðsíða 3

Skátablaðið Faxi - 11.04.1993, Blaðsíða 3
Erlingur Guðbjörnsson Landsmót 1993 Þá er landsmót framundan og verður það haldió að þessu sinni í Kjarnaskógi á Akureyri 25. júlí til 1. ágúst 1993. Mottó þessa móts verður „Ut í veröld bjarta." Tjaldbúðunum verður skipt í minni einingar það er að segja í þorp. í hverju þorpi verða síðan nokkur félög eða hluti félaga. Þorpunum hefur verió gefið ákveðið nafn, einkennismerki og litur. Sem dæmi má nefna Þorp sólarinnar sem hefur hring sem tákn og gulan einkennislit. Þorp skýjanna með skýi úr mótsmerkinu og grábláan einkennis- lit o.s.frv. Öll félög fá svo að sjálfsögðu trönur til að byggja hlió. Þá hefur sérstök fígúra verið búin til en foað er grænn kall sem kallaður er Laufi og á hann eftir að birtast í ýmsum myndum. Tjaldbúóaskoóun verður eitthvað meó öðru sniði en venjulega en reglurnar í henni verða útskýrðar á landsmótinu sjálfu. Öll almenn þjónusta verður á mótssvæóinu og einnig veróa reist vatnssalerni. Sérstakar tjaldbúðir verða fyrir eldri skáta, foreldra og hjálp- arsveitir skáta. Dagskrá mótsins miðast vió þátttöku flokka. Á hverjum degi gefst flokkunum kostur á að velja sér verkefni. -eftir sérstöku kerfi. Einnig verða dagskrár- liðir sem byggjast á einstaklings- þátttöku og fyrir fjölskyldurnar verða sérstök dagskrá. Á kvöldin veróa kvölddagskrár sem miðast að mestu við þátttöku sveita og félaga. í tengslum við dagskrá mótins verður síðan félagakeppni og landskeppni í skátaíþróttum. Keppnisgreinar geta til dæmis oróið: a) gera eldstæði, baka hikebrauð og ganga frá eldstæði, b) reisa 5-6 metra fánastöng, halda fánaathöfn og brjóta fána, c) reisa tjald og turn, d) skyndihjálp, e) áttaviti og kort. Til aó undirbúa dvöl á Akureyri hefur verið sett af stað svokallað flokkaspil þar sem á hverjum fundi er leyst eitt verkefni sem tengt er Akureyri á einn eða annan hátt. Sérstök verkefni verða svo inn á milli sem tengjast skátastarfinu og hafa flokkar þegar byrjað í spilinu. Sérstök félagakeppni verður fyrir mót og byggist hún á hvernig félögin standa sig í undirbúningi landmótsins og á mótinu sjálfu. í Kjarnaskógi verður sett upp sólúr sem veróur myndað úr 40 útskornum trédrumbum og einum stórum tré- drumbi í miðjunni sem sem stæói sem minnisvarði eftir mótið í skóginum. Veró á landsmótið 1993 er 14,700 kr. Annað systkini greiðir 80% af gjaldinu og það þriðja 60%. Allur matur er inni- falinn í gjaldinu. Landsmót er sannkölluð þjóðhátíð skáta þar sem skátar alls staðar af landinu og jafnvel erlendis frá safnast saman í eina viku vió útiveru, söng og þrautir. Vil ég hvetja alla skáta og for- eldra þeirra til að taka nú bakpokann og söngbókina fram og drífa sig á landsmót. E.G. Frosti - Ásdís - Auðbjörg á skíðum. Úr skíðaferðalagi 26. mars sl. Ábyrgðarmaður Marinó Sigursteinsson Ritstjórar Erlingur Guðbjörnsson Erna Guólaugsdóttir Auglýsingar Viktor Ragnarsson Ljósmyndir Jóhanna Reynisdóttir Útgefandi Skátafélagið Faxi Prentvinna Eyjaprent hf. SKATABLAÐIÐ FAXI 3

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.