Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Blaðsíða 2
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
AVARP
FORSETA ÍSLANDS
,ís. Bernskuminningar fylgja
sérhverjwn manni alla
œvi og góðar minningar
eru sem áburður vaxandi
Jljljl gróðri til þroska þegar
fram líða stundir
Vigdís Finnbogadóttir.
Fátt er börnum dýrmætara en traust og heilbrið samskipti
við fullorðið fólk og eins og allt sem vex þurfa börn alúð og
ræktun. Með slíkt vegarnesti veita þau landi og þjóð þann
styrk sem við öll óskum að þau beri lán til að gefa
framtíðinni.
Eg óska skátahreyfingunni á Islandi til hamingju með það
framtak að virkja sem flesta fullorðna til samveru með
börnum - þannig verður æskan best örvuð í leik og starfi.
Vigdís Finnbogadóttir
Forseti Islands.
Jörðin skiptir
um búning
Nú er jörðin að breyta um búning,
það er birta um engi og tún.
Enn er myndríkur möttulinn grœni,
það er morgunn um lieiðar og brún.
Allt er risið úr vetrarins viðjum,
það er vorið sem fjötrana sleit.
Fyllir sál mína ylur og angan
þvíhún elskar hvern blómgaðan
reit.
Nú er lóan að kveða sín kvœði,
það er kvakað og sungið í mó.
Hún er byrjuð að byggja sér hreiður
þar sem býðst lienni friður og ró.
Hugrún
FAXI
369.405 Ská 1996 14(1) Átthagi
Skátablaðið Faxi.
Átthagadeild
14205123
Bókasafn Vestmannaeyja
Útgefið í apríl 1996.
Útgefendur: Skátafélagið Faxi.
Abyrgðarmaður:
Páll Arnar Georgsson.
Ritstjóri:
Einar Örn Arnarsson.
Auglýsingar:
Páll Amar Georgsson.
Prófarkarlestur:
Halla Júlía Andersen.
Ritnefnd:
Ármann Höskuldsson, formaður,
Einar Örn Arnarsson,
Heiðrún Björk Sigmarsdóttir,
Páll Arnar Georgsson,
Guðmundur Vigfússon, og
Rósa Guðmundsdóttir (Rósa mamma).
Prentun:
Eyjaprent/Fréttir hf.