Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Side 5

Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Side 5
SKATABLAÐIÐ FAXI 5 BAKPOKINN! Bakpokinn er ómissandi hluti af útilegubúnaðinum. Maður verður fljótt þreyttur á að bera ferðatöskur og poka en aftur á móti er hægt að bera útbúnað sinn á þægilegan hátt með góðum bakpoka. Hann verður að vera hæfilega stór fyrir þaðnn sem á að bera hann og fyrir það sem á að bera í honum. Pokinn má ekki vera of lítill en heldur ekki svo stór að hann hæfi ekki viðkomandi. Þá ræður hann heldur ekki við að bera það sem pokinn getur tekið. Það er ekki gott að kaupa poka sem maður á að “stækka” með. Það getur skemmt ánægjuna af ferðunum og valdið bakmeiðslum. Mörgum fullorðnum finnst poki, sem tekur 50 lítra, vera nægilega stór í flestum tilfellum. Bakpokar í dag eru framleiddir í tveimur stöðluðum gerðum: Pokar með grind utan á og pokar með grind að innan eða grindarlausir, svonefndir baklaga bakpokar. Grindarbakpokinn er þeim kosti gæddur að það loftar um bakið. Han hentar best til að bera mikinn þunga á langferðum. Baklaga pokinn veitir betra jafnvægi þar sem þyngdin leggst þétt að líkamanum. Það er sérstaklega heppilegt í skíða- og fjallaferðum. Best er að fá sér poka, sem hægt er að binda svefnpoka eða tjald utan á, og á honum þurfa að vera hliðarpokar fyrir smáhluti. Forðast skal of marga rennilása. Þeir eru veikleikamerki. A pokanum á að vera traust burðarbelti sem situr vel um mjaðmirnar þannig að hluti þyngdarinnar flyst af öxlunum. Axlapúðarnir eiga að vera vel bólstraðir og mjög gott er að hafa litla brjóstreim til að halda þeim á réttum stað, þannig að handarkrikarnir verði ekki fyrir hnjaski. Tekið úr skátahandbókinni Þyngdpunktur lágt = Þungur bakpoki. Þyngdarpunktur hátt = léttur bakpoki P Ö K K U N Aðalreglan við að pakka er að það, sem léttast er, á að vera neðst og það þyngsta efst og næst líkamanum. Hlutir sem þarf að vera hægt að ná fljótt í eiga að vera á aðgengilegum stað undir likinu eða í hliðarpokum. Bakpokinn er “poki pokanna”. Jafnvel í “vatnsþéttum” bakpoka getur vatn lekið inn þegar hann er opnaður, eða við rennilása og sauma. Pakkið þess vegna öllum hlutum inn í piastpoka. Það raðast betur niður. Innihaldið helst þurrt - og það er auðvelt að taka poka upp og pakka honum niður aftur án þess að það verði mikil röskun. Utvegið ykkur nokkrar aukaólar til að spenna svefnpoka og dýnu föst. Hafið að auki lítinn boka með klemmum og spennum á bakpokann. Þær geta bilað þegar verst stendur á. Tekið úr skátahandbókinni.

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.