Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Blaðsíða 4
4
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
S
Skátastarf á Islandi
Sumarið 1911 stofnaði Ingvar
Ólafsson fyrsta skátaflokk sem starfað
hefur á Islandi. Hann hafði dvalið í
Danmörku og kynnst þar starfsemi
skáta og sótt þangað fyrirmyndina.
Um haustið hvarf hann á ný til Dan-
merkur, en nokkrir af skátunum héldu
áfram að hittast og stofnuðu ásamt
fleiri drengjum Skátafélag Reykjavíkur
2. nóvember 1912. Störfuðu þeir í
einni sveit undir forystu Sigurjóns Pé-
turssonar. A sumardaginn fyrsta árið
1913 var síðan Skátafélagið Væringjar
stofnað innan vébanda KFUM og var
séra Friðrik Friðriksson aðalhvata-
maður að stofnun félagsins. Starfið
breiddist úr um landið, en var fyrst um
sinn aðeins fyrir drengi. Fyrsta félagið
fyrir stúlkur, Kvennaskátafélag Reyk-
javíkur, var stofnað 7. júlí árið 1922 og
var það innan vébanda KFUK. Var
Jakobína Magnúsdóttir fyrsti félags-
foringi þess.
Hinn 6. júlí 1924 héldu fulltrúar
skátafélaganna Væringja og Arna í
Reykjavík og skátafélagsins Birkibeina
á Eyrarbakka undirbúningsfund að
stofnun Bandalags íslenskra skáta. Var
ákveðið að sækja um inngöngu í
alþjóðabandalag skáta ( The Boy
Scouts World Wide Brotherhood As-
sociation ). Var íslenskum skátum
veitt innganga 29. ágúst 1924, en fyrsti
stjórnarfundur Bandalags íslenskra
skáta var haldinn 6. júní 1925 og var
það fyrsta stjórn þess kjörin. Hana
skipuðu Axel V. Tuliníus ská-
tahöfðingi, Ársæll Gunnarsson og
Henrik Thorarensen.
Islenskir kvenskátar gengu í
Aþjóðasamtök kvenskáta ( World As-
sociation of Girl Guides and Girl
Scouts, WAGGGS ) árið 1928, en
Kvenskátasamband íslands var stofnað
23. mars árið 1939 og voru félagarþess
þá 459. Árið 1944 sameinuðust síðan
þessi tvö landssambönd skáta. Mun
það hafa verið fyrsta sameiginlega
bandalag kvenskáta og drengja skáta í
heiminum.
Starfið breiddist hratt út og
stofnuð voru félög í flestum kaup-
stöðum og mörgum kauptúnum. Oft
eiga félögin þó ekki óslitna sögu, hel-
dur eiga þau sín blómaskeið og síðan
koma lægðir á milli. Skipulögð voru
skátamót, fyrsta landsmótið var haldið
árið 1925 í Þrastaskógi, og skátar hófu
snemma að sækja erlend skátamót og
ráðstefnur. Til dæmis sótti hópur skáta
Jamboree, alþjóðamót drengjaskáta, í
Ungverjalandi árið 1933.
Fyrsti skátahöfðingi íslands var
Axel V. Tuliníus, sem gegndi því em-
bætti þar til hann lést árið 1938. Ólafur
Ásgeirsson hefur gegnt starfinu frá
1995. Lengst af hafa verið tveir vara
skátahöfðingjar, annar kona, sem hefur
verið æðsti fulltrúi banda-lagsins gagn-
vart alþjóða-samtökum kvenskáta.
Fyrsti varaskátahöfðingi kvenskáta var
Hrefna Tynes ( 1948-1968 ).
Tekið úr skátahandbókinni.
St randvegur79-Sími481 3466
Sérverslun meÖ útivístarfatnaÖ
og margt fleíra