Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Page 4

Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Page 4
4 SKÁTABLAÐIÐ FAXI S Skátastarf á Islandi Sumarið 1911 stofnaði Ingvar Ólafsson fyrsta skátaflokk sem starfað hefur á Islandi. Hann hafði dvalið í Danmörku og kynnst þar starfsemi skáta og sótt þangað fyrirmyndina. Um haustið hvarf hann á ný til Dan- merkur, en nokkrir af skátunum héldu áfram að hittast og stofnuðu ásamt fleiri drengjum Skátafélag Reykjavíkur 2. nóvember 1912. Störfuðu þeir í einni sveit undir forystu Sigurjóns Pé- turssonar. A sumardaginn fyrsta árið 1913 var síðan Skátafélagið Væringjar stofnað innan vébanda KFUM og var séra Friðrik Friðriksson aðalhvata- maður að stofnun félagsins. Starfið breiddist úr um landið, en var fyrst um sinn aðeins fyrir drengi. Fyrsta félagið fyrir stúlkur, Kvennaskátafélag Reyk- javíkur, var stofnað 7. júlí árið 1922 og var það innan vébanda KFUK. Var Jakobína Magnúsdóttir fyrsti félags- foringi þess. Hinn 6. júlí 1924 héldu fulltrúar skátafélaganna Væringja og Arna í Reykjavík og skátafélagsins Birkibeina á Eyrarbakka undirbúningsfund að stofnun Bandalags íslenskra skáta. Var ákveðið að sækja um inngöngu í alþjóðabandalag skáta ( The Boy Scouts World Wide Brotherhood As- sociation ). Var íslenskum skátum veitt innganga 29. ágúst 1924, en fyrsti stjórnarfundur Bandalags íslenskra skáta var haldinn 6. júní 1925 og var það fyrsta stjórn þess kjörin. Hana skipuðu Axel V. Tuliníus ská- tahöfðingi, Ársæll Gunnarsson og Henrik Thorarensen. Islenskir kvenskátar gengu í Aþjóðasamtök kvenskáta ( World As- sociation of Girl Guides and Girl Scouts, WAGGGS ) árið 1928, en Kvenskátasamband íslands var stofnað 23. mars árið 1939 og voru félagarþess þá 459. Árið 1944 sameinuðust síðan þessi tvö landssambönd skáta. Mun það hafa verið fyrsta sameiginlega bandalag kvenskáta og drengja skáta í heiminum. Starfið breiddist hratt út og stofnuð voru félög í flestum kaup- stöðum og mörgum kauptúnum. Oft eiga félögin þó ekki óslitna sögu, hel- dur eiga þau sín blómaskeið og síðan koma lægðir á milli. Skipulögð voru skátamót, fyrsta landsmótið var haldið árið 1925 í Þrastaskógi, og skátar hófu snemma að sækja erlend skátamót og ráðstefnur. Til dæmis sótti hópur skáta Jamboree, alþjóðamót drengjaskáta, í Ungverjalandi árið 1933. Fyrsti skátahöfðingi íslands var Axel V. Tuliníus, sem gegndi því em- bætti þar til hann lést árið 1938. Ólafur Ásgeirsson hefur gegnt starfinu frá 1995. Lengst af hafa verið tveir vara skátahöfðingjar, annar kona, sem hefur verið æðsti fulltrúi banda-lagsins gagn- vart alþjóða-samtökum kvenskáta. Fyrsti varaskátahöfðingi kvenskáta var Hrefna Tynes ( 1948-1968 ). Tekið úr skátahandbókinni. St randvegur79-Sími481 3466 Sérverslun meÖ útivístarfatnaÖ og margt fleíra

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.