Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Page 14

Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Page 14
14 SKÁTABLAÐIÐ FAXI Drengskapur Ef ég væri spurður um, hvaða orð íslenskri tungu mér þætti mest um vert, myndi ég nefna orðið drengskapur. Það lýsir hinu fegursta marki, sem maður getur sett sér. Og ef það væri glatað, gætum vér ekki bætt oss það með því að sækja það í annað mál, því að ég þekki ekki samsvarandi orð á neinni annarri tungu. Það er jafntorvelt að þýða á ðnnur mál íslenska orðið drengskapur og enska orðið gentleman. Með þessu er auðvitað ekki sagt, að aðrarþjóðir vanti þá kosti, sem lýst er með þessum orðum. En þær hafa ekki gert sér samskonar grein fyrir þeim, ekki tengt þá eins saman í eina hugsjón. Það er skemmtilegt tilhugsunar fyrir íslenska drengi, að fegursta hugsjón þjóðarinnar skuli vera kennd við þá. í orðinu drengskapur kemur fram mikið traust á æskulýðnum. Forfeður vorir, sem mótuðu merkingu orðsins, hafa trúað því, að hjá ungum mönnum gætu mannlegir kostir birst í fegurstu mynd sinni. Þetta er rétt skilið. A æskualdri er baráttan fyrir lífinu, sem leiðir svo margan mann út af réttri braut, ekki byrjuð fyrir alvöru. Vonirnar eru óskertar og trúin á lífið og mennina. Ef menn geta ekki lifað drengilega á þessum aldri, geta þeir það tæplega síðar meir. En þessum sóma, sem æskunni er sýndur með orðinu drengskapur, fylgir líka mikil ábyrgð. Til er annað orð, sem við æskulýðinn er kennt: strákskapur. Það sýnir ranghverfu æskulífsins, ef frelsi þess er misbeitt til spellvirkja og ljótrar framkomu. Þið kannist öll við orðið strákapör. Það bendir ekki í rétta átt. Vér getum aldrei gert andstæðuna á milli þessara orða of skýra. Ef drengskapur og strákskapur fengi einhverntíma sömu ljótu merkinguna, þá væri íslenska þjóðin búin að missa leiðarljós, sem hún má ekki án vera. Mér skilst, að hugsjón skátanna sé náskyld hinni fornu drengskapar- hugsjón: að vera hreinn og sannur, verja lítilmagnann og berjast jafnvel við ofureflið með hreinum vopnum. Því eiga skátarnir að lyfta þessu orði sem fána sínum og stuðla svo að því, að fegursta markmið hvers manns verði jafnan á íslensku kennt við hinn frjálsa æskulýð. Grein tekin úr skátabókinni eftir Sigurð Nordal, prófessor. Voráætlun: Frá Eyjum. Virkadaga 08:45 og 17:45 Laugardaga 13:30 og 18:00 Sunnudaga 11:30 og 17:15 ÍSLANDSFLUG 8481 3050

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.