Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Side 4
Gilwell 97
Sif og Einar Örn segja frá för sinni á Gilwell 97
Síðustu vikuna í ágúst á þessu ári var
haldið Gilwell-námskeið á Ulfljótsvatni.
Fórum við tvö héðan frá Eyjum á
námskeiðið.
Gilwell er æðsta foringjanámskeið
innan skátahreyfingarinnar. Það ber
nafn sitt af því að Baden-Powell var
lávarður af Gilwell (lord Baden-Powell
of Gilwell). Gilwell-skátar eru allir í
Gilwell-sveitinni sem er alþjóðleg. Er
sveitinni skipt í fimm flokka, þeir eru:
Uglur, Gaukar, Dúfur, Hrafnar og
Spætur.
Hér á Islandi er Gilwellskóli, hann
hefur aðsetur í Gilwellskálanum á
Ulfljótsvatni, og er skólastjóri hans
Sigurður J. Grétarsson.
Gilwellnámskeiðin eru sett þannig
upp að skipt er í flokka, þá er fólki
skipað í þá flokka sem það verður í að
eilífu. Er grunnþemað í öllu nám-
skeiðinu fyrirmyndarútilegan. Eiga
flokkarnir að reisa tjaldbúð, sitja fyrir-
lestra, fara í leiki, búa til skemmtiatriði
fyrir kvöldvökur og annað sem gert er í
útilegum. A hverjum morgni er
fánaathöfn, tjaldbúðarskoðun og skála-
skoðun, flokkarnir skiptast á að vera
þjónustuflokkar sem sjá um sameiginle-
ga aðstöðu í skálanum og á hverju kvöl-
di er kvöldvaka.
Þetta árið voru fjórir flokkar á
Gilwell, Uglur, Gaukar, Dúfur og
Spætur. Varð Sif Gaukur en Einar Örn
Dúfa. Þrátt fyrir mikla samkeppni og
smávegis ríg var mjög góður andi meðal
þeirra sem voru á námskeiðinu. Það
sem kom okkur mest á óvart var hvernig
náðist ótrúleg samheldni innan flokkan-
na miðað við hversu ólíkir einstaklingar
voru í þeim, á öllum aldri og frá mis-
jöfnum bakgrunni.
Auk þeirra sem voru með okkur á
námskeiðinu kynntust við mörgu fólki.
Stendur þó framúr, að öðrum ólös-
tuðum, Björgvin Magnússon D.C.C.,
fyrrverandi skólsstjóri Gilwellskólans,
en hann er vafalítið einhver mesti
stuðbolti landsins og þótt víða væri
leitað. Síðan var þarna annar eldri
maður, sá sem við kölluðum Hermann
Uglu, hann er í Uglu-flokknum, var
hann áhaldavörður og er mjög sérstakur
og skemmtilegur kall. Voru þarna líka
mjög litríkir persónuleikar t.d. læknirinn
sem kenndi skyndihjálp, minnti okkur
hryllilega á Dr. Saxa. Síðast en þó ekki
síst vorum við þess heiðurs aðnjótandi
að hafa með okkur þarna á námskeiðinu
Jónas B, þann sem hóf landnám skáta á
Ulfljótsvatni. Vildi það reyndar svo vel
til að við gróðursettum tré við hvítasun-
nulautina, en þar var Jónas B. ásamt
öðrum skátum í heilt sumar og lifðu af
landsins gæðum. Var það sannarlega
mikil upplifun að heyra Jónas sjálfan
segja frá því.
Einar Örn Arnarsson, Dúfa
Sif Hjaltdal Pálsdóttir, Gaukur
Sif og gaukarnir hennar
Dúfurnar hans Einars Arnar
SKÁTABLAÐIÐ FAXI