Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Page 6
Utilega í Dalakoti
- Ferðasaga -
Við hittumst niðri í Herjólfi klukkan
14:49 á föstudeginum ll.nóvember.
Enginn ældi í Herjólfi. Við fórum beint
úr Herjólfi í rútuna sem keyrði okkur
næstum því alla leið upp að skálanum
(sem betur fer). Það var kaldara inni í
skálanum heldur en úti. Við fórum upp
og völdum okkur svefnstæði og þar á
eftir var farið að kynda upp og kveikja
ljós. Það var hvorki rafmagn né renn-
andi vatn í skálanum, þannig að við
þurftum að notast við gasljós og vorum
með vatn á brúsum sem Raggi frá
Hveragerði hafði útvegað.
Kvöldmaturinn var frekar misheppn-
aður, okkur var boðin spagettísteypa og
núðlusúpa, að sjálfsögðu völdu allir
núðlusúpuna. Seinna fór Mummi út
með steypuna og gat náð henni uppúr
pottinum með stunguskóflu. Sumir fóru
út um kvöldið og þá týndi Andri
vasaljósinu sínu uppi á fjalli. Síðan var
haldinn vel heppnuð kvöldvaka, að
lokinni kvöldbæn voru sagðar drauga-
sögur “allir voru lamaðir úr hræðslu”?
Við vorum einnig frædd um að það
Þyngd - verð
0-5 kg 300 kr.
6-10 kg 500 kr.
11-15 kg 700 kr.
16-30 kg 900 kr. .
Við fljúgum með
Jólapakkana
þína
á Jólatilboðsverði
QCeðíCeg
JóC
ISLANDSFLUG
Vestmannaeyjaflugvelii sími 481 3050
SKATABLAÐIÐ FAXI