Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Blaðsíða 17
Vinaflokkamót Faxa
Leiðbeinandanámskeið 1
í september fóru Ármann Höskulds-
son og Einar Örn Arnarson á
Leiðbeinanda námskeið 1 á Úlfljótsvat-
ni. Stjórnandi námskeiðsins var Ásta
Bjarney Elísadóttir, en hún er einnig for-
maður foringjaþjálfunarráðs Bandalags
íslenskra skáta.
Markmið námskeiðsins er að þjálfa
skáta til þess að vera full færir í að
leiðbeina á flokks- og sveitarforingja-
námskeiðum Bandalags íslenskra skáta.
Þátttakendur á námskeiðinu voru um
20 skátar allstaðar af á landinu. Farið
var yfir það helsta í kennslutækni,
glærugerð, leikjastjómun, markmiðum
Bandalags íslenskra skáta o.fl..
Námskeiðið var byggt upp þannig að
skipt var þátttakendum niður í fjóra
flokka. Hver flokkur átti að vinna saman
að úrlausnum verkefna á námskeiðinu.
Þetta forrn þ.e. að skipta upp í flokka til
þess að vinna saman er notað á öllunr
námskeiðum á vegum skáta, hvort sem
er á Islandi eða í öðrum löndum.
Við ætlum okkur að halda námskeið
fyrir flokksforingja og sveitarforingja
snemma á næsta ári. Ætlum við þá að
nýta reynslu okkar og það sem að við
lærðum til þess að gera okkar foringja í
Faxa hæfari til þess að takast á við hið
erfiða verkefni að vera flokksforingi.
11. til 13 júlí síðastliðinn hélt Faxi
vinaflokkamót. Komu hingað yfir tutt-
ugu gestir frá Eyrarbakka, Hafnafirði,
Hveragerði, Selfossi og Stokkseyri.
Komu gestimir með Herjólfi á föstu-
dagskvöldið. Var hópnum skutlað suður
í Skátastykki í rútu frá Gísla Magg.
Blés ekki byrlega í upphafi þar sem
veðurguðimir létu rigna á mótsgesti
fyrstu nóttina. En á laugardeginum þá
sáu þeir að sér og létu sólina skína. Var
þá farið í póstaleik sem fól í sér göngu
kringum Eynna, var meðal annars farið
að síga, bátsferð á Björgunarbátnum
Þór, fengu krakkarnir að reyna sig í
skyndihjálp undir leiðsögn vanra björg-
unarmanna og steiktu egg uppi á Eldfelli
með því að nota hitann úr hrauninu.
Eftir póstaleikinn voru grillaða pylsur.
Um kvöldið var haldinn kvöldvaka sem
að Freydís stjórnaði.
Á sunnudeginum var flokkakeppni.
Síðan voru veittar viðurkenningar og
nrótinu slitið. Eftir frágang héldu allir
heim.
I lokin vill skátafélagið Faxi þakka
Gísla Magnússyni, Björgunarfélagi
Vestmannaeyja og öllum öðrum sem
lögðu hönd á plóginn.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI