Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Síða 8

Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Síða 8
Dagskrá drekaskáta vorið 2015 Dagskráin verður ijölbreytt í vor og nær hápunkti á drekaskátamótinu í byrjun júní. I janúar ætlum við að fara í Fab Lab og búa til hluti, í skátaheimilinu ætlum við að gera skátaheimilið okkar betra, við ætlum að læra nýja hnúta og kannski fara á einhvert safnið. I febrúar eiga skátarnir afmæli eins og Baden Powel stofnandi Skátahreyfingarinnar og þá ætlum við að halda kvöldvöku og vígja inn nýja skáta. I mars, apríl og maí, ætlum við í hellaferðir og fjallgöngu og að sjálfsögðu að fara í skemmtilega leiki í skátaheimilinu. Þá stefnum við að fara í útilegu og síðan að sjálfsögðu á drekaskátamótið á Ulfljóts- vatni. íslenska skátaheitið Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess; að gera skyldu mína við guð og ættjörð- ina, að hjálpa öðrum og að halda skátalögin. Eitt skátaheiti er fyrir alla íslenska skáta. íslensku skátalögin 1. Skáti er hjálpsamur 2. Skáti er glaðvær 3. Skáti ertraustur 4. Skáti er náttúruvinur 5. Skáti er tillitssamur 6. Skáti er heiðarlegur 7. Skáti er samvinnufús 8. Skáti er nýtinn 9. Skáti er réttsýnn 10. Skáti er sjálfstæður 1 starfi drekaskáta er áhersla lögð á fyrstu fjórar greinar skátalaganna. 1 starfi fálkaskáta er áhersla lögð á fyrstu sjö greinar skátalaganna. I starfi eldri skáta er jöfh áhersla á allar greinar skátalaganna. 8

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.