Morgunblaðið - 23.06.2017, Side 2

Morgunblaðið - 23.06.2017, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2017 Valentína hjá Móður náttúru galdrar fram grillkræsingarnar. 8-10 23.06.17 23 | 06 | 2017 SUMARGLEÐI OG GARÐAR Útgefandi Árvakur Umsjón Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Blaðamenn Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is Auglýsingar Jón Kristinn Jónsson jonkr@mbl.is Forsíðumyndina tók Hanna Andrésdóttir Prentun Landsprent ehf. Fjölskyldan ætti að máta heita pottinn saman áður en hann er keyptur. 4 Eigum við að fara að líta á fífilinn í jákvæðara ljósi? 6 Aðeins ætti að eitra þær plöntur sem óværan er á en láta hinar vera. 12 Það ætti að spúla hellurnar einu sinni á ári og bera á þær verndandi efni. 14 Það er ekki skrítið að Íslendingar skuli vilja hugsa vel um garðinn sinn. Þessi litli skiki, hvort sem hann umlykur heilt hús eða fyllir aðeins litlar sval- ir, er sælureitur fjölskyldu og vina. Þar má slappa af í sumarsólinni og taka smá lit, spila leiki, dást að litríkum blómunum eða grilla nokkrar safaríkar kótilettur svo að ilmurinn af kjöti og kolum berst langar leiðir. Sumarsólstöður voru í fyrradag, og minntu okk- ur á að sumarið er stutt og má engan tíma missa. Höldum því af stað út í góða veðrið, setjum heita pottinn í gang, hreinsum arfann úr beðunum, at- hugum hvort ekki er örugglega búið að útrýma öll- um skaðlegum pöddum af runnum, ljúkum við að helluleggja heimreiðina, og njótum svo lífsins í botn. Grillum, grillum, og grillum svo enn meira. Blöndum ljúffenga kokkteila, og verðum rauðbrún og bleik á lit ef sólin lætur sjá sig. Látum sumarið 2017 vera gleðisumar, og höfum hugfast að allar góðu minningarnar verða ekki til af sjálfu sér. Morgunblaðið/Valdís Thor Þar sem góðar minningar verða til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.