Morgunblaðið - 23.06.2017, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2017
Þ
að er orðinn svo mikill
hraði í þjóðfélaginu í dag.
Tölvutæknin hefur gleypt
okkur og fólk talar ekki
lengur saman. Ef þú ferð
á veitingastað þá eru allir í síman-
um, allir í eigin heimi, en í heitum
potti er hægt að eiga þessa gæða-
stund sem maður þarf á að halda
með fjölskyldunni,“ segir Kristján
Berg Ásgeirsson, eigandi versl-
unarinnar Heitirpottar.is sem er til
húsa á Höfðabakka 1 við Gullinbrú.
Þar eru rafmagnspottar seldir og
hitaveituskeljar og allt sem við-
kemur heitum pottum. Kristján,
sem jafnframt á og rekur Fiski-
kónginn, byrjaði að selja heita
potta árið 2007. Hann segir að þá
hefðu verið 30 fyrirtæki á markaði
en þeim hefði fljótt fækkað í
hruninu. „Núna er miklu meiri sala
en árið 2007, ég hef ekki upplifað
annað eins. Ég er að fá fimm sex
gáma til landsins, einn á viku, og er
búinn að selja um helminginn úr
þessum gámum sem ekki eru
komnir til landsins.“ Vinsælasti
potturinn kallast Queen og er fer-
köntuð hitaveituskel fyrir sex
manns. Hann selur álíka mikið af
hitaveituskelinni Yukon og töluvert
af rafmagnspottum frá kandadíska
fyrirtækinu Arctic Spas.
Vatnið á Íslandi ódýrt
Spurður um muninn á rafmagns-
pottum og hitaveituskeljum svarar
Kristján að munurinn á notkuninni
sé enginn því skelin sé sú sama.
„Hitaveituskelin tekur heitt vatn
inn og skilar því út og þú getur
tæmt eftir hverja notkun. Með raf-
magnspott ræðurðu hversu lengi þú
hefur sama vatnið í. Við mælum
með að tæma pottinn einu sinni í
mánuði vegna þess að vatn á Ís-
landi er frekar ódýrt.“
Hvort rafmagnspottur eða hita-
veituskel verður fyrir valinu getur
því oltið á aðgengi að heitu vatni og
rafmagni. Annað sem kaupandi
þarf að gera upp við sig er hvort
efnið í skelinni sé plast eða trefjar.
„Plastefnið virkar þannig að ef það
er viðvarandi mikill hiti þá teygist á
því og við miklar hitabreytingar á
það til að springa. Það gerist ekki
með trefjarnar en þær eru dýrari.“
Þarf að þola veður og snjó
Það er að mörgu að huga þegar tek-
in er ákvörðun um að kaupa heitan
pott. Kristján segir að það þurfi að
eiga gott lok á hann vegna þess að
þetta sé vara sem er úti hvernig
sem viðrar, hvort sem það er rok,
rigning, fárviðri, haglél eða brenn-
andi sól. Lokið þarf að þola mörg
hundruð kíló til þess að geta haldið
snjóþunganum þegar verst lætur.
„Maður þarf að kaupa lok sem þolir
mikinn snjó og þyngsli því um leið
og lokið brotnar á rakinn greiða
leið í lokið og þá verður það þungt
og ónýtt og einangrar minna. Með
rafmagnspott ertu kannski með
fimmfaldan rafmagnsreikning ef
lokið er ónýtt og það reynir maður
að forðast.“
Að sögn Kristján þarf staðsetn-
ingin að vera góð, potturinn á helst
að vera í skjólgóðu umhverfi og
ekki of langt frá húsinu. Hann mæl-
ir gegn því að grafa pottinn niður í
jörðina. „Reglan er sú að það má
ekki grafa hann niður í jörðina,
hann verður að vera 50 cm frá brún
svo að 2-3- ára krakkar geti ekki
gengið ofan í pottinn. Ég segi fólki
að forðast að grafa þá niður vegna
þess að það getur snjóað mikið á Ís-
landi og ef það snjóar 40 cm þá er
potturinn orðinn ólöglegur.“
Margir fídusar í boði
Eins og gildir um bíla og húsnæði
þarf að halda pottinum við. Í því
felst aðallega að halda honum
hreinum og nota rétt efni til þess,
ýmist klór eða brómíntöflur. „Ég er
fisksali sem ætlaði að vera kokkur
og er því búinn að læra mikið um
bakteríur og örverur. Bakteríur
fjölga sér mest við 40 gráðu hita,
það er kjörhitastigið þannig að fólk
þarf að nota klór eða hreinsiefni.
Pínulítið magn af klór drepur þessa
sýkla.“
Þá segir Kristján að fjöldinn all-
ur sé af viðbótum sem geti auðgað
upplifunina. „Fídusarnir eru marg-
ir, þú getur fengið hljóðkerfi og
LED-ljós sem skipta litum. Það er
til hljóðbylgjunudd og loftnudd og
sumir eru með sjónvörp.“
Heita vatnið heilsueflandi
Þó að hægt sé að koma sjónvarpinu
fyrir við pottinn ráðleggur Kristján
fólki fremur að slökkva á öllum raf-
tækjum, þar á meðal útvarpinu og
spjaldtölvunni, þegar í pottinn er
komið og tala saman. „Ég mæli með
að hlusta á fuglasönginn, horfa á
stjörnurnar og kynnast fjölskyld-
unni.“ Inntur eftir frekari ástæðum
fyrir því að kaupa heitan pott var
Kristján ekki í vafa um að það hefði
ýmis heilsubætandi áhrif í för með
sér.
„Þetta er gott fyrir gigtar-
sjúklinga. Ef þú talar við gigtar-
lækni þá er það fyrsta sem hann
ráðleggur að kaupa heitan pott.
Æðakerfið víkkar út og blóð-
rennslið eykst sem er gott ef þú ert
í íþróttum, þá losnarðu fyrr við
harðsperrurnar,“ segir Kristján og
bætir svo við að ekki megi gleyma
að heitur pottur auki virði og nota-
gildi fasteignarinnar. „Ef þú ert
með pott í stórum garði þá notarðu
garðinn mun meira. Ég segi oft við
fólk sem er að spá í þetta að það
kosti svipað mikið að setja niður
heitan pott sem dugar í 20 til 30 ár
og að ferðast með fjölskyldunni til
London í heila viku. Þetta er fjár-
festing í vellíðan og þetta hækkar
líka verðið á fasteigninni.“
Eins og að kaupa íbúð
Ekki verður komist hjá því að reiða
fram nokkur hundruð þúsund krón-
ur til þess að fá góðan pott. Þetta er
stór fjárfesting og þess vegna ráð-
leggur Kristján fólki að koma með
krakkana í verslunina á Höfða-
bakka og máta fyrir alla fjölskyld-
una svo að það viti fyrir víst hvað
það er að fá.
„Við reynum að veita toppþjón-
ustu og segjum fólki að prófa vör-
una áður en það kaupir hana til
þess að athuga hvort því líði vel. Ég
segi stundum að þetta sé eins og að
kaupa íbúð, ef manni líður ekki vel
við fyrstu innkomu þá kaupir mað-
ur hana ekki. Maður þarf að máta
margar tegundir og það er mismun-
andi hvað hentar hverri fjölskyldu.“
tfh@mbl.is
Heitir pottar eru fjárfesting í vellíðan
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þægindi Eins og fólk eru pottar misjafnir í lögun og stærð. Það má vera að stórgerður karlmaður leiti að annars konar potti en smágerð kona og því þarf að máta.
Góður pottur gerir
veturna bærilegri og
sumrin enn betri.
Kristján Berg Ásgeirs-
son eigandi Heitirpott-
ar.is mælir með að
fjölskyldan máti pott-
ana saman fyrir kaup.
Ég segi oft við fólk
sem er að spá í þetta
að það kosti svipað mikið
að setja niður heitan pott
sem dugar í 20 til 30 ár
og að ferðast með
fjölskyldunni til
London í heila viku.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
17
2
78
1
Það er töluverð vinna að fúaverja sólpalla og því
mikilvægt að vanda undirvinnuna til að verkið endist sem
lengst. Nilfisk háþrýstidælur eru öflugar og fylgihlutur
eins og pallabursti auðveldar pallaundirvinnuna heilmikið
og verkið vinnst bæði hratt og vel. Nilfisk háþrýsti-
dælur fást í mörgum stærðum og styrkleikum.
NILFISK HÁÞRÝSTIDÆLUR
VINNA VERKIÐ Á METHRAÐA
Rekstrarland er hluti af Olís
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt • Sími 515 1100 • pontun@olis.is