Morgunblaðið - 23.06.2017, Síða 10

Morgunblaðið - 23.06.2017, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2017 Hér er uppskrift að pítsubotninum en að sjálfsögðu er hægt að nota tilbúið pítsudeig. 3-4 pítsur 500 g hveiti 10 g sykur 10 g salt 10 g ger ½ dl olía 2,5 dl ylvolgt vatn pítsusósa rifinn ostur álegg að eigin vali 1 egg Blandið saman þurrefnunum í skál, hellið síðan vatninu og olíunni út í og hnoðið vel saman svo úr verði falleg kúla. Látið deigið hefast í skálinni með rakan klút yfir á hlýjum stað í um 90 mín. Fletjið út þunna botna, best er að setja hvern og einn á stórt kringlótt fat eða pítsuspaða og setja svo sósuna, ostinn og áleggið á pítsuna. Hitið pítsusteininn í 5-10 mín og setjið tilbúna pítsuna á brenn- heitan steininn. Brjótið egg í glas og hellið yfir pítsuna eftir að hún hefur verið um 2 mín. á grillinu og grillið í í 3-5 mín. í viðbót. Ég setti á mína pítsu sósu, ost, rauðlauk, tómata, papriku, egg og oregano og eftir að hún kom af grillinu bætti ég við ruccola og avókadó. Grillpítsa kúrbítur eggaldin paprika rauðlaukur olía gróft salt sítróna ferskar krydd- jurtir að eigin vali Sneiðið grænmetið fallega, penslið það með olíu og grillið; passa þarf vel að það brenni ekki. Raðið öllu grænmetinu á fat, kreistið yfir sítrónusafa, saltið smá og stráið yfir söxuðum kryddjurtum. Grillað grænmetissalat 700 g eplamús 700 g rabarbari 2-3 epli 100 g gráfíkjur ½ bolli hrásykur kanill ½ bolli múslí smjörklípur Sneiðið rabarbarann, eplin og gráfíkjurnar frekar fínt. Þessu er síðan raðað í lögum í álform. Setjið 1⁄3 af eplamúsinni í botninn á álformi, svo rab- arbara, epli og gráfíkjur, stráið yfir kanil og hrásykri. Síðan kemur annað lag af eplamús og svo rabarbari og eplin, setjið restina af eplamúsinni ofan á, svo rabarbarann og eplin, kanil og sykur. Stráið yfir múslíinu og setjið nokkrar smjörklípur á toppinn. Lokið álforminu með álpappír og grillið í sirka 25 mín. við miðlungshita. Morgunblaðið/Hanna Rabarbaradesert af grillinu rauðlaukur ananas rauð paprika Grænmetisbollur frá Móður náttúru Skerið grænmetið í fallega bita og raðið á grillpinna ásamt grænmetisbollunum. Passið að hafa grænmetið allt í svipaðri þykkt, þannig grillast það jafnar og hitnar betur í gegn, og penslið það með olíu áður en pinninn fer á grillið. Mangó- og engifersalsa ½ rauðlaukur, fínt saxaður ½ bolli ferskt kóríander, saxað 1 bolli mangó, fínt skorið ½ dl sítrónusafi ½ dl olía 1⁄3 dl sojasósa ½ rautt chili, fínt skorið safi úr ½ lime 3 msk. sweet chili sauce eða hunang Öllu blandað saman. Morgunblaðið/Hanna Vegan-grillpinni með mangó- og engifersalsa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.