Víkurfréttir - 05.02.2004, Page 2
➤ G A R Ð U R I N N V E R Ð U R B Æ J A R F É L A G
➤ Í S L E N S K I R A Ð A L V E R K TA K A R
Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum!
Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 29-31 í Víkurfréttum í dag
Fasteignasalan Ásberg,
sími 421 1420
Eignamiðlun Suðurnesja
Sími 421 1700
Fasteignasala G.Ó.
sími 421 8111
Fasteignasalan Stuðlaberg
sími 420 4000
stuttar
f r é t t i r
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
f r é t t i r
Gylfi hættir
sem skólastjóri
1. september
Gylfi Guðmundssonskólastjóri Njarð-víkurskóla lætur af
starfi skóla-
stjóra þann 1.
september
nk., en Gylfi
tilkynnti
starfslok sín á
starfsmanna-
fundi í Njarð-
víkurskóla sl.
fimmtudag.
Gylfi Guðmundsson á lang-
an og farsælan feril sem
skólastjórnandi í Keflavík og
Njarðvík. Árið 1963, er hann
var í guðfræðinámi við há-
skólann, var hann beðinn um
að koma sem kennari að
Gagnfræðaskólanum í Kefla-
vík. Hann ákvað að ráða sig
til eins árs en árin urðu fleiri,
því hann hefur aldrei síðan
flutt til baka eins og til stóð.
Hann var kennari við Gagn-
fræðaskólann fram til ársins
1974 en þá tók hann við yfir-
kennarastöðu við skólann.
Hann var yfirkennari þar
fram til ársins 1982 en þá
varð hann skólastjóri Gagn-
fræðaskólans sem nú heitir
Holtaskóli.
Haustið 1983 varð hann
skólastjóri Grunnskóla
Njarðvíkur eða Njarðvíkur-
skóla eins og hann heitir nú.
Gylfi hefur verið við skóla-
stjórn hér syðra í 30 ár. Hann
átti 40 ára starfsafmæli á síð-
asta ári.
Senditæki
stolið úr
Sigurvin GK
Senditæki sem tilkynn-ir sjálfvirka tilkynn-ingaskyldu báta var
stolið úr Sigurvin GK-61
sem fórst við innsiglinguna í
Grindavík fyrir réttri viku
síðan. Tækið nýtist ekki
öðrum bátum en Sigurvin
þar sem það gefur frá sér
merki hans og staðsetningu.
A lls 28 starfsmönnum Íslenskra Aðalverk-taka hefur verið sagt upp störfum hjá fyr-irtækinu úr ýmsum deildum á Keflavík-
urflugvelli. Flestir starfsmannanna eru með
þriggja mánaða uppsagnarfrest. Árni I. Stefáns-
son starfsmannastjóri Íslenskra Aðalverktaka
sagði í samtali við Víkurfréttir að þessar upp-
sagnir væru tilkomnar vegna fyrirsjáanlegs
samdráttar. Aðspurður segist Árni vona að ekki
yrði gripið til frekari uppsagna. „Það er ekkert
hægt að segja til um hvort til frekari uppsagna
verði gripið en það er ýmislegt í farvatninu á
Suðurnesjum sem eru jákvætt og nefni ég þá
Stálpípuverksmiðju í Helguvík sem við komum
til með að reisa ef af verður og fyrirhugað orku-
ver á Reykjanesi.“
Að sögn Árna er fyrirtækið einnig með ýmis önnur
verkefni á prjónunum og að hjá fyrirtækinu starfi
um 150 manns eftir uppsagnirnar. „Þessar upp-
sagnir þýða engin endalok fyrir okkur því við höf-
um trú á svæðinu. Í fyrirtæki eins og Íslenskum Að-
alverktökum fer fram stöðug endurskipulagning,“
sagði Árni í samtali við Víkurfréttir.
A llir þeir 28 starfsmennsem sagt var upp störf-um hjá Íslenskum Aðal-
verktökum fyrir helgi eru
félagar í Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur og
nágrennis.
Að sögn Kristjáns Gunnarssonar
formanns VSFK eru uppsagnirn-
ar sorgleg staðreynd. „Þessar
uppsagnir koma sér afar illa í því
erfiða atvinnuástandi sem hér er
og með þessum uppsögnum er
verið að höggva í mjög rótgróinn
hóp fólks sem eiga sér langan
starfsaldur. Á Suðurnesjum eru
rúmlega 400 einstaklingar at-
vinnulausir og þar af eru rúmlega
helmingur af því fólk hjá okkur,
„ sagði Kristján Gunnarsson í
samtali við Víkurfréttir.
ÍAV hættir með
morgunmat til
að draga úr
kostnaði
Frá og með 30. aprílnæstkomandi verðurstarfsmönnum Ís-
lenskra Aðalverktaka á
Keflavíkurflugvelli ekki
boðið upp á morgunmat, en
tilkynning þessa efnis barst
starfsmönnum fyrirtækisins
í dag. Í tilkynningunni seg-
ir: „Vegna verulegs sam-
dráttar í rekstri ÍAV. hf. á
Keflavíkurflugvelli neyðist
fyrirtækið til að draga úr
öllum kostnaði svo framar-
lega sem unnt er. Því hefur
verið ákveðið að hætta að
vera með morgunmat frá og
með 30. apríl 2003.“ Í til-
kynningunni sem er undir-
rituð af Árna Inga Stefáns-
syni starfsmannastjóra fyr-
irtækisins segir einnig:
„Okkur þykir miður að
þurfa að grípa til þessara
aðgerða, en þær eru nauð-
synlegar vegna breyttra að-
stæðna.“
Félagsmálaráðuneytið hefur staðfestákvörðun hreppsnefndar Gerðahreppsum breytingu á nafni sveitarfélagsins.
Framvegis ber sveitarfélagið nafnið Sveitarfélag-
ið Garður.
Jafnframt hefur ráðuneytið staðfest nýja samþykkt
um stjórn og fundarsköp fyrir Sveitarfélagið Garð,
en samkvæmt henni mun hreppsnefnd framvegis
nefnast bæjarstjórn og sveitarstjóri fá titilinn bæjar-
stjóri.
Frá gildistöku breytingarinnar mun einnig verða
starfandi bæjarráð í sveitarfélaginu, sem bæjarstjórn
kýs. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Ís-
lands voru 1.283 íbúar búsettir í sveitarfélaginu 1.
desember 2003.
Verið að höggva í mjög rótgróinn hóp
➤ K r i s t j á n G u n n a r s s o n , fo r m a ð u r V S F K :
28 MANNS SAGT UPP
Gerðahreppur verður Sveitarfélagið Garður
Sigurvin GK í fjörunni við
Grindavík í síðustu viku.
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Víkurfréttamynd: Mats Wibe Lund
Auglýsingasími
421 0000
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
Faxabraut 42c, Keflavík.
Mjög skemmtilegt raðhús á tveimur
hæðum, auk 50m2 bískúrs. Eignin
skiptist í stofu, hol og 4 svefnh.
Nýlegt parket á stofu.
Sjafnarvellir 7, Keflavík.
Mjög gott 114m2 parhús með 3
svefnh. og 32m2 bílskúr. Nýjar
innréttingar, skápar, eikar parket og
flísar á gólfum.
17.900.000,-
Heiðartún 2-D, Garði.
Um 170m2 atvinnu/verslunar-
húsnæði á tveimur hæðum
(milliloft um 50m2).
Eignin er í góðu ástandi og
býður upp á ýmsa möguleika.
8.500.000.-
Vallargata 12b, Sandgerði.
Mjög gott og nýlegt 3ja
herbergja parhús 87m2. Góðar
innréttingar og skápar.
Vinsælar eignir.
Er laust nú þegar.
8.700.000,-
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:45 Page 2