Víkurfréttir - 05.02.2004, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Kveikt var á nýstárlegu bæjarhliðiReykjanesbæjar á Vogastapa síð-degis á mánudag og sagði Árni
Sigfússon bæjarstjóri við það tækifæri
að bæjarhliðið væri til sóma fyrir
Reykjanesbæ. Boðið var upp á kakó við
þetta tækifæri og veitti gestum ekki af
því kuldinn var mikill.
Vélsmiðja Ásmundar Sigurðssonar smíð-
aði og setti upp stafina, Rafmiðstöðin sá
um lýsingu og grjótgarðurinn kemur úr
Helguvík þar sem Íslenskir aðalverktakar
hafa unnið við grjótnám. Guðmundur
Jónsson arkitekt aðstoðaði við hönnun
bæjarhliðsins. Kostnaður við bæjarhliðið í
heild sinni nemur um 3 milljónum króna.
➤ „ H O L LY W O O D “ - S K I L T I Ð H E F U R S V O S A N N A R L E G A K O M I Ð R E Y K J A N E S B Æ Í F R É T T I R N A R
Bæjarhliðið kostar 3 milljónir króna
Fyrir helgi fóru lögreglumenn úr Keflavíkum borð í gamlan pramma sem liggurvið festar í Njarðvíkurhöfn en lögreglu
hafði borist til eyrna að nokkuð magn dauðs
æðarfugls væri í prammanum og einnig að
eitthvað af lifandi fugli væri þar í sjálfheldu.
Fuglarnir hafa sennilega kafað undir prammann
og upp í farmhólfin sem sum voru opin. Virðist
sem fuglarnir hafði ekki ratað sömu leið til baka
auk þess sem rými til flugtaks var ekki fyrir
hendi. Af ástandi fuglanna mátti ráða að dauðdagi
þeirra hafi verið fæðuleysi. Alls voru þarna níu
dauðir og þrír lifandi æðarfuglar. Eftir sem áður
er prammi þessi dauðagildra fyrir æðarfugl auk
þess sem hann er stórhættulegur börnum og ung-
lingum sem eiga það til að sækja á hafnarsvæðið.
Æðarfuglsgildra í Njarðvíkurhöfn
Þrír til fjórir aðilar á tví-tugsaldri hafa síðustumánuði brotist inn á
heimili og í fyrirtæki í Reykja-
nesbæ. Mennirnir koma við
sögu í nokkuð mörgum málum
sem lögreglan í Keflavík hefur
upplýst.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Keflavík hafa tæplega
100 þjófnaðir og innbrot verið
kærð til lögreglunnar á síðustu
þremur mánuðum. Um er að
ræða innbrot á heimili og í fyrir-
tæki, þjófnað úr bifreiðum og frá
fólki á veitingahúsum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Á sama tímabili hefur sjö bifreið-
um verið stolið í Reykjanesbæ,
en auk þess hafa nokkrar bifreið-
ar sem stolið hefur verið í öðrum
sveitarfélögum fundist í umdæmi
lögreglunnar í Keflavík.
Að sögn Karls Hermannssonar
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni
í Keflavík hafa innbrot og þjófn-
aðir aukist á Suðurnesjum á síð-
ustu misserum. Segir Karl aukn-
inguna hér haldast í hendur við
aukningu á höfuðborgarsvæðinu.
Karl segir að skýringa á aukn-
ingu innbrota og þjófnaða sé að
finna vegna harðari heims fíkni-
efnaneytenda. „Það er rétt að
hvetja fólk til að huga vel að eig-
um sínum, læsa húsum sínum og
skilja ekki bifreiðar eftir með
lyklunum í. Oftar en ekki er þjóf-
um gert auðvelt fyrir með kæru-
leysi hús- og bíleigenda,“ sagði
Karl í samtali við Víkurfréttir.
Sömu einstaklingarnir koma við sögu
í mörgum afbrotum á Suðurnesjum
✝
Haraldur Hafsteinn Ólafsson, Halldóra Þorsteinsd.,
Sigríður Vilborg Ólafsdóttir,
Ólafur Róbert Ólafsson, Sveinsína Kristinsdóttir,
Guðríður Ólafsdóttir, Hannes Kristófersson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
Kristín Guðmundsdóttir,
Vatnsnesvegi 27, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
25. janúar. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Hjartans þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík.
Jóhanna Dagbjartsdóttir,
Sævar Óskarsson, Khamnuan Óskarsson,
Dagbjört Óskarsdóttir, Þorlákur Bernhard,
barnabörn og barnabarnabörn.
Óskars Gíslasonar,
Ásabraut 13,
Grindavík.
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:47 Page 6