Víkurfréttir - 05.02.2004, Síða 11
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 5. FEBRÚAR 2004 I 11
E ftir viðbrögð félagsmála-stjóra Hjördísar Árna-dóttur við grein minni
um bókun
Fjölskyldu- og
félagsmálaráðs
frá síðasta
fundi þess, þyk-
ir mér rétt að
draga þessa
umræðu eilítið lengra.
Skv. fundargerð sem nú liggur
fyrir, var þessi bókun lögð fram
af félagsmálastjóra sjálfum og
tekin fyrir undir liðnum 3) Fé-
lagslegar afleiðingar atvinnuleys-
is.
Maður skyldi ætla að þegar slík
mál sem þetta eru til umfjöllunar,
að lögð yrðu fram einhver gögn
um félagslegar afleiðingar at-
vinnuleysis, sem eru æði margar
og bitna ekki bara á hinum at-
vinnulausa, heldur öllu hans nán-
asta umhverfi. Það hlýtur að vera
á verksviði félagsmálastjóra og
því fagfólki sem undir hans
stjórn starfar að draga saman
gögn sem nýst geta ráðinu til ein-
hverjar faglegrar umfjöllunar um
málefnið. Má nefna til atriði
eins og sjálfsmynd hins atvinnu-
lausa, áhrif atvinnuleysis á fjöl-
skylduna og skerðing á mögu-
leikum hennar til þátttöku í dag-
legu lífi, menntun hins atvinnu-
lausa og hvaða leiðir séu færar til
að auka hana. Þá hljóta tekjur
hins atvinnulausa, einnig að vera
til sífelldrar athugunar. Fleiri at-
riði mætti telja til sem skipta
máli en umfjöllun á þessum nót-
um gæfi Fjölskyldu- og félags-
málaráði möguleika á að fjalla
um málið á einhvern vitrænan
hátt.
Félagsmálastjóri segir í svargrein
sinni að það hafi vakað fyrir ráð-
inu og félagsmálastjóra að hvetja
til enn frekari samfélagslegrar
samstöðu þeirra sem eiga að
gæta að líðan borgaranna hverju
sinni.
En ég held að það væri nær að
málið yrði þá tekið til einhverjar
efnislegrar umfjöllunar hjá ráð-
inu sjálfu áður en farið er að
senda áskoranir út um borg og bí.
Guðbrandur Einarsson
formaður Verslunarmannafé-
lags Suðurnesja
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
➤ F J Ö L S K Y L D U - O G F É L A G S M Á L A R Á Ð
Svar við svari félagsmálastjóra
Á fundi Fjölskyldu- ogf é l a g s m á l a r á ð sReykjanesbæjar sem
fram fór sl. mánudag hvatti
ráðið stéttarfélög til að auka
á markvissan stuðning við at-
vinnulausa félagsmenn þar
sem atvinnuleysi á Suður-
nesjum er vaxandi, en 410
einstaklingar eru atvinnu-
lausir á svæðinu. Í fundar-
gerð Fjölskyldu- og félags-
málaráðs segir:
„Í ljósi vaxandi atvinnuleysis
hvetur Fjölskyldu- og félags-
málaráð stéttarfélög til að auka
á markvissan stuðning við at-
vinnulausa félagsmenn sína í
formi sálgæslu og stuðnings á
meðan hver og einn býr við at-
vinnuleysi.“
Einnig kemur fram í fundar-
gerðinni að langvarandi afleið-
ingar atvinnuleysis í 6 mánuði
eða lengur og endurtekin höfn-
un um atvinnu geti haft afdrifa-
rík áhrif á sjálfsmynd þeirra
einstaklinga sem við atvinnu-
leysi búa og því sé nauðsynlegt
að þeim sé tryggður stuðningur.
HVETJA TIL AUKINS STUÐN-
INGS VIÐ ATVINNULAUSA
VERÐUR ÞÚ VITNI AÐ
EINHVERJU FRÉTTNÆMU?
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:51 Page 11