Víkurfréttir - 05.02.2004, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Klukkan var 01:30 ogblaðamaður Víkurfréttavar mættur um borð í
Happasæl KE-94 þar sem
mynda átti menn ársins, áhöfn-
ina sem bjargaði tveimur
mönnum úr sjónum þann 16.
desember á síðasta ár þegar
dráttarbáturinn Gamli Lóðs
sökk úti fyrir Hafnarbergi á
Reykjanesi. Áhöfn Happasæls
sýndi mikið snarræði með
björgun mannanna og þykir
ljóst að þeir hafi bjargað lífi
skipverja á Gamla lóðsinum
því þeir voru báðir nokkuð
kaldir og hraktir eftir rúmlega
20 mínútna svaml í sjónum.
Sjómannslífið gott
„Þetta sjómannslíf er bara helvíti
gott. Fín útgerð og það er farið
vel með okkur,“ sögðu skip-
verjarnir á Happasæli einum róm
þegar þeir voru spurðir að því
hvernig þeim líkaði á sjónum.
Þeir hafa verið lengi saman á
sjónum. Sá sem styst hefur verið
um borð hefur verið í tæp fjögur
ár. Áhöfnin samanstendur af 10
hressum köllum; köllum sem
kalla ekki allt ömmu sína, enda
hefur það í gegnum tíðina þótt
mikið hraustleikamerki að sækja
sjóinn.
Hver róður á Happasæli tekur
um 12 klukkustundir að sögn
Hallgríms Guðmundssonar skip-
stjóra. „Í nótt verðum við komnir
á miðin um fjögurleytið og verð-
um að öllum líkindum komnir í
land um tvö í dag,“ sagði Hall-
grímur en stýrimaður um borð í
Happasæli er Hafþór Þórðarson
sem var skipstjóri þegar mönnun-
um af Gamla lóðs var bjargað.
Hafþór er 26 ára gamall og hefur
stundað sjóinn frá 17 ára aldri.
„Fyrir utan tvö ár sem ég var í
stýrimannaskólanum hef ég verið
á sjónum,“ segir Hafþór og þegar
hann er spurður hvort um æðar
hans renni sjómannsgen, svarar
hann: „Maður er af góðum sjó-
mannsættum og það kom ekkert
annað til greina en að fara á sjó-
inn,“ segir Hafþór og brosir, en
hann er systursonur Hallgríms
skipstjóra sem segir að þeir stan-
di sig allir vel - öll áhöfnin.
„Þetta eru allt saman hetjur,“
sagði Hallgrímur og sló á bakið á
Hafþóri.
Einstakur mórall um borð
„Mórallinn um borð er bara ein-
stakur,“ segja strákarnir og þeir
kunna mjög vel við sig. „Það eru
allir pikkfastir hér og hreyfa sig
hvergi,“ segir Hafþór og áhöfnin
kinkar kolli til samþykkis, en
Happasæll fiskaði um 1.300 tonn
á síðasta ári.
Þeir sækja sjóinn stíft og á með-
an aðrir sofa eru þeir oft að vinna
og þegar aðrir eru að vinna eru
þeir oft í fríi. „Maður fær einn og
hálfan mánuð í frí yfir sumartím-
ann og síðan koma brælur inn á
milli, en það gerist sem betur fer
ekki oft,“ segir Hafþór. Veður-
spáin spilar stóran þátt í lífi sjó-
manna og þegar Hallgrímur skip-
stjóri er spurður út í veðurspána
segir hann að hann sé að norðan.
Strákarnir eru ekkert að gorta sig
af því að hafa bjargað mönnun-
um af Gamla lóðs úr sjónum.
Þeir líta á það sem skyldu sína að
gera hvað sem þeir geta til að
bjarga mannslífum í sjávarháska.
En þeim líður vel að hafa bjargað
mönnunum. „Maður er bara ekk-
ert nema ánægður með að hafa
bjargað þeim,“ segir Hafþór.
Fá sér smá kríu á útleiðinni
Búið var að bera snitturnar um
borð og þeim komið fyrir á góð-
um stað - þeir ætluðu að bragða á
þeim áður en þeir færi á dekk eft-
ir rúma tvo tíma. „Maður fær sér
kannski smá kríu á útleiðinni,“
sögðu strákarnir um leið og þeir
þökkuðu fyrir sig.
Það voru engin læti þegar þeir
gengu frá endunum og héldu út
úr höfninni í Sandgerði. Klukkan
var að ganga tvö og það var kalt
úti. Þeir veifuðu blaðamanni vin-
gjarnlega áður en þeir héldu í
koju til að taka smá kríu. Það er
gott að vita af þessum mönnum á
sjó.
MENN ÁRSINS 2003 Á SUÐURNJESJUM
Áhöfnin á Happasæli KE
verðlaunuð fyrir björgunarafrek
Áhöfnin á Happasæli
KE-94 eru menn ársins
á Suðurnesjum árið
2003 fyrir frækilega
björgun tveggja skip-
verja sem fóru í sjóinn
eftir að Gamli lóðs
sökk úti fyrir Hafnar-
bergi á Reykjanesi
þann 16. desember sl.
VF-ljósmyndir/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Til hafs skal nú haldið til veiða...
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:51 Page 12