Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.02.2004, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 05.02.2004, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Klukkan var 01:30 ogblaðamaður Víkurfréttavar mættur um borð í Happasæl KE-94 þar sem mynda átti menn ársins, áhöfn- ina sem bjargaði tveimur mönnum úr sjónum þann 16. desember á síðasta ár þegar dráttarbáturinn Gamli Lóðs sökk úti fyrir Hafnarbergi á Reykjanesi. Áhöfn Happasæls sýndi mikið snarræði með björgun mannanna og þykir ljóst að þeir hafi bjargað lífi skipverja á Gamla lóðsinum því þeir voru báðir nokkuð kaldir og hraktir eftir rúmlega 20 mínútna svaml í sjónum. Sjómannslífið gott „Þetta sjómannslíf er bara helvíti gott. Fín útgerð og það er farið vel með okkur,“ sögðu skip- verjarnir á Happasæli einum róm þegar þeir voru spurðir að því hvernig þeim líkaði á sjónum. Þeir hafa verið lengi saman á sjónum. Sá sem styst hefur verið um borð hefur verið í tæp fjögur ár. Áhöfnin samanstendur af 10 hressum köllum; köllum sem kalla ekki allt ömmu sína, enda hefur það í gegnum tíðina þótt mikið hraustleikamerki að sækja sjóinn. Hver róður á Happasæli tekur um 12 klukkustundir að sögn Hallgríms Guðmundssonar skip- stjóra. „Í nótt verðum við komnir á miðin um fjögurleytið og verð- um að öllum líkindum komnir í land um tvö í dag,“ sagði Hall- grímur en stýrimaður um borð í Happasæli er Hafþór Þórðarson sem var skipstjóri þegar mönnun- um af Gamla lóðs var bjargað. Hafþór er 26 ára gamall og hefur stundað sjóinn frá 17 ára aldri. „Fyrir utan tvö ár sem ég var í stýrimannaskólanum hef ég verið á sjónum,“ segir Hafþór og þegar hann er spurður hvort um æðar hans renni sjómannsgen, svarar hann: „Maður er af góðum sjó- mannsættum og það kom ekkert annað til greina en að fara á sjó- inn,“ segir Hafþór og brosir, en hann er systursonur Hallgríms skipstjóra sem segir að þeir stan- di sig allir vel - öll áhöfnin. „Þetta eru allt saman hetjur,“ sagði Hallgrímur og sló á bakið á Hafþóri. Einstakur mórall um borð „Mórallinn um borð er bara ein- stakur,“ segja strákarnir og þeir kunna mjög vel við sig. „Það eru allir pikkfastir hér og hreyfa sig hvergi,“ segir Hafþór og áhöfnin kinkar kolli til samþykkis, en Happasæll fiskaði um 1.300 tonn á síðasta ári. Þeir sækja sjóinn stíft og á með- an aðrir sofa eru þeir oft að vinna og þegar aðrir eru að vinna eru þeir oft í fríi. „Maður fær einn og hálfan mánuð í frí yfir sumartím- ann og síðan koma brælur inn á milli, en það gerist sem betur fer ekki oft,“ segir Hafþór. Veður- spáin spilar stóran þátt í lífi sjó- manna og þegar Hallgrímur skip- stjóri er spurður út í veðurspána segir hann að hann sé að norðan. Strákarnir eru ekkert að gorta sig af því að hafa bjargað mönnun- um af Gamla lóðs úr sjónum. Þeir líta á það sem skyldu sína að gera hvað sem þeir geta til að bjarga mannslífum í sjávarháska. En þeim líður vel að hafa bjargað mönnunum. „Maður er bara ekk- ert nema ánægður með að hafa bjargað þeim,“ segir Hafþór. Fá sér smá kríu á útleiðinni Búið var að bera snitturnar um borð og þeim komið fyrir á góð- um stað - þeir ætluðu að bragða á þeim áður en þeir færi á dekk eft- ir rúma tvo tíma. „Maður fær sér kannski smá kríu á útleiðinni,“ sögðu strákarnir um leið og þeir þökkuðu fyrir sig. Það voru engin læti þegar þeir gengu frá endunum og héldu út úr höfninni í Sandgerði. Klukkan var að ganga tvö og það var kalt úti. Þeir veifuðu blaðamanni vin- gjarnlega áður en þeir héldu í koju til að taka smá kríu. Það er gott að vita af þessum mönnum á sjó. MENN ÁRSINS 2003 Á SUÐURNJESJUM Áhöfnin á Happasæli KE verðlaunuð fyrir björgunarafrek Áhöfnin á Happasæli KE-94 eru menn ársins á Suðurnesjum árið 2003 fyrir frækilega björgun tveggja skip- verja sem fóru í sjóinn eftir að Gamli lóðs sökk úti fyrir Hafnar- bergi á Reykjanesi þann 16. desember sl. VF-ljósmyndir/Jóhannes Kr. Kristjánsson Til hafs skal nú haldið til veiða... 6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:51 Page 12

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.