Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.02.2004, Side 13

Víkurfréttir - 05.02.2004, Side 13
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 5. FEBRÚAR 2004 I 13 Áhöfnin á Happasæli: Frá vinstri: Helgi Björnsson háseti, Jóhannes Haraldsson háseti, Halldór G. Halldórsson 2. stýrimaður, Hafþór Þórðarson stýrimaður, Hallgrímur Guðmundsson skipstjóri, Kristinn Sörensen háseti, Guðbjartur Sævarsson 2. vélstjóri, Davíð Bragason yfirvélstjóri, Frímann Guðmundsson kokkur og Sigurvin Hauksson háseti. Af vef Víkurfrétta 16.desember 2003 kl. 03:09:06 Héldu sér í björgunarhringi: Mannbjörg varð í nótt er tveimur skipverjum af gamla Lóðsinum frá Vestmannaeyjum var bjargað úr sjónum úti fyrir Hafnabergi á Reykjanesi. Hjálparbeiðni var send út til nær- staddra skipa kl. 23:20 í kvöld en netaskipið Happasæll KE var næstur slysstað. Fyrstu upplýsingar bentu til þess að gamli Lóðsinn, sem er dráttarbátur, væri vélarvana þar sem hann var að draga pramma. Skömmu síðar sökk báturinn og tók prammann með sér. Tveir skipverjar voru á gamla Lóðsinum og höfðu þeir komið björgunarbáti fyrir við skipshlið en höfðu ekki blásið hann upp þegar gamli Lóðsinn sökk skyndilega að aftan. Bát- urinn sökk á um einni mínútu, að því er skip- verjar á Happasæli KE sögðu í samtali við blaðamenn Víkurfrétta í Sandgerði í nótt. Skipbrotsmennirnir af gamla lóðsinum fóru báðir í sjóinn og héldu sér á floti við björgun- arhringi þegar Happasæll kom á slysstað. Annar mannanna var í flotbúningi, en hinn í kafarabúningi. Annar þeirra var orðinn mjög kaldur að sögn skipverja á Happasæli KE og hefði ekki mátt vera í sjónum mikið lengur. „Hann skalf mjög mikið og við drifum hann beint í heita sturtu og létum hann fá þurr föt. Lappirnar á honum voru orðnar bláar og það er alveg ljóst að hann hefði ekki lifað af mikið lengur í sjónum,“ sagði Frímann Guðmunds- son matsveinn á Happasæli KE í samtali við Víkurfréttir. Hafþór Þórðarson skipstjóri á Happasæli KE sagði að þegar þeir komu að mönnunum í sjónum hafi þeir verið með vasaljós og búnir að binda björgunarhringina saman. „Við sáum þá strax og það er ekki spurning að vasaljósið bjargaði mönnunum. Það gekk vel að ná þeim um borð, en þeir voru búnir að vera í sjónum í um 20 mínútur,“ sagði Hafþór í samtali við Víkurfréttir. Komið var með skipbrotsmennina til Sand- gerðis á öðrum tímanum í nótt. Skipverjar á gamla Lóðsinum voru með pramma í drætti úti af Hafnabergi þegar raf- magnið fór skyndilega af bátnum hjá þeim. Þá varð mönnunum ljóst að vélarrúmið var hálf- fullt af sjó. Á örskammri stund var dráttar- báturinn sokkinn og tók hann prammann með sér í djúpið. Þegar þetta er skrifað eru skipbrotsmenn í yfirheyrslum hjá lögreglunni í Keflavík. Þeir báðust undan viðtali þegar eft- ir því var leitað. Bjargað á elleftu stundu Lögreglumenn og skipbrotsmennirnir að týna til gallana sem mennirnir voru í og björgunarhringina í Sandgerði í nótt. Annar skipbrotsmannanna gengur ásamt lögreglumanni með björgunarhringina í lögreglubílinn í Sandgerði . 6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:52 Page 13

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.