Víkurfréttir - 05.02.2004, Qupperneq 13
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 5. FEBRÚAR 2004 I 13
Áhöfnin á Happasæli: Frá vinstri: Helgi Björnsson háseti, Jóhannes Haraldsson háseti, Halldór G. Halldórsson 2. stýrimaður, Hafþór Þórðarson stýrimaður, Hallgrímur Guðmundsson skipstjóri,
Kristinn Sörensen háseti, Guðbjartur Sævarsson 2. vélstjóri, Davíð Bragason yfirvélstjóri, Frímann Guðmundsson kokkur og Sigurvin Hauksson háseti.
Af vef Víkurfrétta 16.desember 2003 kl. 03:09:06
Héldu sér í björgunarhringi:
Mannbjörg varð í nótt er tveimur skipverjum
af gamla Lóðsinum frá Vestmannaeyjum var
bjargað úr sjónum úti fyrir Hafnabergi á
Reykjanesi. Hjálparbeiðni var send út til nær-
staddra skipa kl. 23:20 í kvöld en netaskipið
Happasæll KE var næstur slysstað. Fyrstu
upplýsingar bentu til þess að gamli Lóðsinn,
sem er dráttarbátur, væri vélarvana þar sem
hann var að draga pramma. Skömmu síðar
sökk báturinn og tók prammann með sér.
Tveir skipverjar voru á gamla Lóðsinum og
höfðu þeir komið björgunarbáti fyrir við
skipshlið en höfðu ekki blásið hann upp þegar
gamli Lóðsinn sökk skyndilega að aftan. Bát-
urinn sökk á um einni mínútu, að því er skip-
verjar á Happasæli KE sögðu í samtali við
blaðamenn Víkurfrétta í Sandgerði í nótt.
Skipbrotsmennirnir af gamla lóðsinum fóru
báðir í sjóinn og héldu sér á floti við björgun-
arhringi þegar Happasæll kom á slysstað.
Annar mannanna var í flotbúningi, en hinn í
kafarabúningi. Annar þeirra var orðinn mjög
kaldur að sögn skipverja á Happasæli KE og
hefði ekki mátt vera í sjónum mikið lengur.
„Hann skalf mjög mikið og við drifum hann
beint í heita sturtu og létum hann fá þurr föt.
Lappirnar á honum voru orðnar bláar og það
er alveg ljóst að hann hefði ekki lifað af mikið
lengur í sjónum,“ sagði Frímann Guðmunds-
son matsveinn á Happasæli KE í samtali við
Víkurfréttir.
Hafþór Þórðarson skipstjóri á Happasæli KE
sagði að þegar þeir komu að mönnunum í
sjónum hafi þeir verið með vasaljós og búnir
að binda björgunarhringina saman. „Við
sáum þá strax og það er ekki spurning að
vasaljósið bjargaði mönnunum. Það gekk vel
að ná þeim um borð, en þeir voru búnir að
vera í sjónum í um 20 mínútur,“ sagði Hafþór
í samtali við Víkurfréttir.
Komið var með skipbrotsmennina til Sand-
gerðis á öðrum tímanum í nótt.
Skipverjar á gamla Lóðsinum voru með
pramma í drætti úti af Hafnabergi þegar raf-
magnið fór skyndilega af bátnum hjá þeim. Þá
varð mönnunum ljóst að vélarrúmið var hálf-
fullt af sjó. Á örskammri stund var dráttar-
báturinn sokkinn og tók hann prammann
með sér í djúpið. Þegar þetta er skrifað eru
skipbrotsmenn í yfirheyrslum hjá lögreglunni
í Keflavík. Þeir báðust undan viðtali þegar eft-
ir því var leitað.
Bjargað á elleftu stundu
Lögreglumenn og skipbrotsmennirnir að týna til gallana sem mennirnir voru í og
björgunarhringina í Sandgerði í nótt. Annar skipbrotsmannanna gengur ásamt
lögreglumanni með björgunarhringina í lögreglubílinn í Sandgerði .
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:52 Page 13