Víkurfréttir - 05.02.2004, Síða 16
16
Teitur Örlygsson:
„Það er mjög erfitt að spá í spilin núna vegna óvissunnar sem ríkir
um liðið hjá Njarðvík. Óvissan getur verið bæði af hinu góða og illa
fyrir liðin þar sem Keflvíkingar gætu átt í erfiðleikum með að
ákveða leikaferð þar sem þeir væru ekki vissir um hvernig Njarð-
víkurliðið verður uppstillt.
Einbeitingin hjá Njarðvíkingum hefur samt orðið fyrir skakkaföllum
eftir tvö töp í röð, en stundum getur slíkt virkað hvetjandi og ýtt á
menn að stíga upp þegar þrengir að og menn ná kannski upp andan-
um í liðinu. Ég hef alla veganna trú á því að mínir menn hafi þetta.“
Sigurður Ingimundarson:
„Karlaleikurinn verður áhugaverður, en leikir þessara liða eru alltaf
spennandi og skemmtilegir. Liðin eru bæði mjög sterk, en ég er með
það á hreinu að Keflavík muni vinna.
Kvennaleikurinn verður skemmtilegur en örugglega ekki eins
spennandi og karlaleikurinn. Ég held að Keflavík eigi eftir að vinna
öruggan sigur, hreinlega af því að þær eru með betra lið og miklu
meiri breidd. Svo hafa þær verið að spila vel undanfarið og unnið
stórt.“
Pétur Guðmundsson:
„Hvað kvennaleikinn varðar spiluðu KR ekki sérlega vel á móti
okkur síðast. Keflavík vann þær nokkuð sannfærandi og örugglega,
en KR eru búnar að vinna þær í vetur þannig að allt getur skeð ef
þær mæta til leiks sæmilega stemmdar og tekst vel upp. Keflavíkur-
stelpurnar eru hins vegar sterkar, en þær misstu þetta úr höndunum á
sér í fyrra þar sem þær voru með unnin leik í höndunum. Ég held að
það hafi verið svona lexía fyrir þær og þær vilja ekki að það komi
fyrir aftur og þær eigi eftir að taka þessu af fullri alvöru í fjörutíu
mínútur.
Karladeildin er nokkuð jöfn og Njarðvík er í vandræðum með
meiðsli. Þetta lítur ekki vel út fyrir Njarðvík. Þetta virðist ætla að
verða tvöfalt hjá Keflavík um helgina allaveganna á blaðinu. Svo
eru Keflvíkingar ekki þekktir fyrir að slaka á í úrslitaleikjum. Þeir
ættu að vinna þetta og ég býst við því, en við sjáum nú til!“
Magnús Þór Gunnarsson:
Hvernig er dæmigerður leikdag-
ur hjá þér?
Ég vakna yfirleitt um hálf-ellefu
leytið og fæ mér léttan morgun-
mat. Svo hittumst við í liðinu
heima hjá mér um klukkan þrjú
og fáum okkur pasta saman. Eftir
það legg ég mig kannski í smá
stund, eða spái í leikinn sem er
framundan. Hvern ég á að dekka
og hver á að dekka mig og þan-
nig.
Hvernig leggst leikurinn í þig?
Hann leggst frábærlega í mig. Ég
spilaði minn fyrsta úrslitaleik í
fyrra og það var gaman að vinna
þá og það verður jafn gaman að
vinna núna.
Hvernig finnst þér þú og liðið
hafa staðið ykkur í vetur?
Ég er sáttur við mína frammi-
stöðu í Evrópukeppninni, en mér
finnst ég persónulega ekki hafa
staðið mig eftir mínum eigin
væntingum í deildinni þannig að
ég á mikið inni.
Liðið sjálft hefur ekki verið nógu
einbeitt í deildinni hér heima á
meðan við vorum í Evrópu-
keppninni. Þetta hefur verið
svona upp og ofan hjá okkur, en
við getum betur og stefnum á að
bæta okkur héðan í frá.
Eitthvað að lokum?
Ég skora bara á fólk að mæta á
leikinn. Það er ekki á hverjum
degi sem þessi lið mætast í úrslit-
um bikarkeppninnar.
Friðrik Stefánsson:
Hvernig leggst leikurinn í þig?
Hann leggst bara vel í mig, Við
munum spila til sigurs, sama
hvað gengur annars á.
Hvernig er dæmigerður dagur
hjá þér fyrir svona stórleik?
Dagurinn hjá liðinu byrjar auð-
vitað á hinni margrómuðu sjávar-
réttasúpu Þórunnar Friðriksdótt-
ur. Svo horfum við á leik saman
og spáum í hlutina. Annars höf-
um verið að hugsa um fátt annað
þessa síðustu daga, eins og hefur
kannski sést á leik liðsins.
Ertu sáttur við frammistöðu
þína/liðsins í vetur?
Ég hef átt góða leiki og svo slaka
leiki inn á milli, en yfir allt er ég
sáttur við mína frammistöðu.
Liðið var svo að spila mjög vel
fyrir áramót, en mér finnst við
hafa verið aðeins á niðurleið eftir
jólin.
Eitthvað sem þú vilt bæta við?
Ég vona bara að fólk fjölmenni á
völlinn og styðji sína menn sama
hvorir það eru.
Birna Valgarðsdóttir:
Hvernig leggst leikurinn í þig?
Hann leggst bara mjög vel í okk-
ur. Við erum staðráðnar í að bæta
fyrir leikinn í fyrra.
Ertu sátt við frammistöðu
þína/liðsins í vetur?
Ég er búin að vera allt í lagi
finnst mér. Ég er búin að eiga
góða leiki undanfarið og vona
bara að við eigum allar góðan
dag á laugardaginn og spilum
eins og lið. Í sambandi við liðið
vorum við bara óheppnar í byrj-
un tímabilsins, en erum að sýna
okkar rétta andlit núna.
Hvernig leggið þið svona leiki
upp?
Áherslan er bara lögð á að stoppa
lykilmenn KR og leyfa þeim ekki
að komast inn í leikinn og bara
spila okkar leik. Bara spila góða
vörn og þá kemur sóknin og þá á
þetta að ganga upp.
Hildur Sigurðardóttir:
Hvernig leggst leikurinn í þig?
Bara mjög vel er spennt að fara
að spila í höllinni. Ég hef spilað
tvo úrslitaleiki áður, á móti
Keflavík og Njarðvík. Þetta er
alltaf jafn gaman.
Hvernig hafið þið verið að stan-
da ykkur?
Þetta hefur gengið ágætlega
nema í síðustu leikjum það sem
við höfum ekki verið að spila
nógu vel.
Hvaða áherslur verða hjá ykkur
í leiknum?
Það er auðvitað mikilvægast að
stoppa lykilmenn þeirra eins og
Erlu Þorsteins og mæta þeim af
hörku.
Eitthvað að lokum?
Ég vil bara hvetja alla til að
mæta. Þetta verður hörkuleikur!
Bikarball í Stapanum
Næstkomandi laugardagskvöld verður bikarball í Stapanum í Njarð-
vík. Þar koma fram Love Gúru sem samanstendur af Kalla Lú og
Dodda litla. Ásamt þeim koma fram dansmeyjar í sýna seiðandi dansa.
Suðurnesjamaðurinn Kalli Bjarni Idolstjarna mun einnig koma fram
og taka lagið. Miðaverð á bikarballið er aðeins 1.000 krónur.
BIKARblaðið
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Grundarvegi 23, 260 Reykjanesbæ.
Umsjón: Þorgils Jónsson
sport@vf.is
Sjáið einnig: www.vf.is
Búist við hörkuleikjum
Spáð í spilin
Bikarbladid 4.2.2004 14:42 Page 16