Víkurfréttir - 05.02.2004, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Framtakssamir nemendurí 10. bekk Holtaskólahafa tekið höndum sam-
an og stofnað námsklúbb með
það að leiðarljósi að vera betur
í stakk búin til að takast á við
samræmdu prófin í vor. Nú
þegar hafa 20 nemendur skráð
sig í klúbbinn og foreldrar
þessara nemenda hafa ákveðið
að styðja vel við bakið á þeim.
Nemendurnir fá aðstöðu í K
húsinu við Hringbraut og
munu hittast þar tvisvar í viku
undir handleiðslu foreldra.
Markmið námsklúbbsins er að
hefja undirbúning fyrir sam-
ræmdu prófin í tíma, auka sam-
vinnu og hópavinnu, læra skipu-
lögð vinnubrögð, miðla þekk-
ingu og upplýsingum. Einnig er
markmiðið að kenna verkaskipt-
ingu og að krakkarnir finni hvar
þau standi í hverri námsgrein,
auk þess að skapa umræður um
námsefnið, skapa gott fordæmi
fyrir yngri nemendur, efla já-
kvæð viðhorf til námsins og slá á
prófkvíða.
Nemendurnir vinna verkefnin í
hópum undir stjórn hópstjóra
sem er einn úr hópnum. Gert er
ráð fyrir að nemendur miðli sín á
milli, innan hvers hóps og á milli
hópa, og aðstoði hvert annað eftir
þörfum. Hóparnir njóta aðstoðar
kennara í viðkomandi fögum.
Fyrstu þrjár vikurnar mun hópur-
inn einbeita sér að stærðfræði og
íslensku. Í kjölfarið mun hópur-
inn vinna sameiginlega að því að
leysa samræmd próf í hverju fagi
frá árinu 1999 til 2003 þannig að
þau átti sig betur á umfangi þess
námsefnis sem þau eiga að
kunna skil á fyrir prófin í vor.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir er ein
þeirra sem tekur þátt í náms-
hópnum, en hún er hópstjóri yfir
sínum hóp sem er þessa dagana
að læra stærðfræði. Ingibjörg
segist lítast mjög vel á hópinn og
samstarfið. „Auðvitað getur þetta
verið þurr lærdómur, en maður
hittir krakkana og það gerir þetta
skemmtilegra. Núna erum við að
læra stærðfræði og síðan förum
við í íslensku. Það sem er líka
svo gott við þetta er að maður
veit hvernig samræmdu prófin
eru uppbyggð og þannig losnar
maður við prófkvíða. Maður
finnur líka fljótt í hvaða náms-
greinum maður þarf að bæta
sig,“ sagði Ingibjörg í samtali við
Víkurfréttir.
Helga Margrét Guðmundsdóttir
foreldri er í undirbúningsnefnd
foreldra og segir hún að hug-
myndin sé komin frá krökkunum
sjálfum og hafi komið upp þegar
þau fóru að huga að undirbúningi
fyrir samræmdu prófin. „Þau
byrjuðu nokkur að ræða þessa
hugmynd en ákváðu síðan að
bjóða öllum sem vildu að vera
með í hópnum,“ segir Helga
Margrét en stuðningur foreldra
og skólayfirvalda í Holtaskóla
hefur verið námshópnum mikil
hvatning.
Að sögn Helgu Margrétar hafa
foreldrar mikinn áhuga á starfi
nemendanna og þeir eru ákveðnir
í að styðja dyggilega við bakið á
hópnum, en tveir foreldrar eru
með krökkunum þegar þau læra
saman í K-húsinu. „Á milli þess
sem þau læra saman í K-húsinu
hittast þau heima hjá hvoru öðru
til að læra, auk þess sem þau nota
eyður í skólanum til að læra.
Verkefnið felst aðallega í sam-
vinnu krakkanna og að þau finni
út hvar þau standa í hverri náms-
grein fyrir sig.“
Helga segist vona að framtakið
verði gott fordæmi fyrir krakka í
9. bekk því þetta skapi jákvæðni
gagnvart náminu. „Nú er það
ekki lengur hallærislegt þegar
krakkarnir tala saman um námið
og hvar þau séu stödd. Hug-
myndin er frá krökkunum sjálf-
um, við foreldrar styðjum hópinn
og skólinn er mjög jákvæður
gagnvart þessu. Hugurinn ber
okkur hálfa leið og á því byggist
þetta.“
➤ 1 0 . B E K K U R H O L TA S K Ó L A Í R E Y K J A N E S B Æ
NEMENDUR STOFNA
NÁMSKLÚBB
Námshópurinn samankominn í K-húsinu við Hringbraut þar sem þau læra saman. Efri röð: Viðar, Ingibjörg, Árni, Brynjar,
Sunna, Aníta, Kolbrún, Inga, Sigrún, Fannar, Hrönn, Sólveig, Ragnheiður og Bjarni. Neðri röð: Garðar, Aníta og Auður.
VF-LJÓSM
YND/HÉÐINN EIRÍKSSON
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:56 Page 20