Víkurfréttir - 05.02.2004, Blaðsíða 21
Mokfiskirí var hjá bát-um sem gera út fráSandgerði í síðustu
viku. Þeir hafa komið hver á
fætur öðrum með fullfermi að
landi, eða lunningafullir af
fiski eins og sagt er. Er ljós-
myndara bar að garði á
bryggjunni í Sandgerði síðdeg-
is á miðvikudag í síðustu viku
var verið að landa úr Arnari
KE og Betu VE.
Beta var með 7 tonn af fiski og
7,8 tonn daginn áður. Arnar var
einnig með fullfermi og sömu
sögu var að segja af mörgum
öðrum bátum. Löndunarbið var
því tímafrekt er að hífa fiskikörin
upp á bryggju þegar aflinn er svo
mikill.
„Það hefur verið mjög góður afli
hjá litlu línubátunum. Þeir hafa
verið hálf- eða sneysafullir og
uppistaðan í aflanum er þorskur
og ýsa,“ sagði starfsmaður á
hafnarvoginni í Sandgerði um
aflabrögðin. Hann sagði að línu-
bátarnir væru milli 40 og 50 og
slíkur væri landburðurinn að
tveggja til þriggja stunda bið
væri eftir löndun.
Sá sem kom með hvað mestan
afla að landi á miðvikudags-
kvöldið fyrir réttri viku var Ást-
þór Bjarni Sigurðsson á Staðar-
bergi GK. Hann var með um 10
tonn af fiski, sem var til helm-
inga þorskur og ýsa. Ástþór var
ánægður með fiskiríið þegar rætt
var við hann á kajanum í Sand-
gerði en hins vegar var hann
ósáttur við verðið á ýsunni. Hann
vildi kenna um þeirri miklu
kvótaaukningu í ýsu, en ýsukvót-
inn var aukinn um 20.000 tonn á
einu bretti og verðið féll með það
sama.
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 5. FEBRÚAR 2004 I 21
vernig geru
spressódryk
HAFNARGÖTU 45 • KEFLAVÍK • SÍMI 421 3811
Láttu
sjónfræðing
okkar kanna
ástandið á
gleraugunum
þínum eða
linsum
– tímapantanir
í síma 421 3811
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
!" #
➤ V E R T Í Ð A R S T E M M N I N G Í S A N D G E R Ð I
Lélegt á
netunum
„Það er búið að vera mjög tregt
og bara skelfilega lélegt,“ sagði
Birgir Jónsson skipsstjóri á neta-
bátnum Kóp GK-19 þegar hann
var að landa nokkrum kílóum á
bryggjunni í Sandgerði. Birgir
hefur verið á sjó í rúm 50 ár, en
með honum á bátnum eru tveir
menn. Annar þeirra, Sigurður
Guðfinnsson sagði að þetta væri
lélegasta byrjun á netavertíð frá
því hann byrjaði á sjónum. „Þeir
tala um að þetta sé svona lélegt
vegna norðanáttarinnar, en mað-
ur veit ekkert,“ sagði Birgir og
tók til við að færa nokkrar Grá-
sleppur sem fengust í netin yfir í
kar. Blaðamaður Víkurfrétta
skellti sér út úr bílnum og fór að
mynda þá félaga. Birgir hefur,
eins og það stendur, migið í salt-
an sjó og sagði við blaðamann
áður en hann fór af bryggjunni.
„Ef þú hefur ekki rétt eftir okkur
verðurðu laminn á næsta balli,“
sagði Birgir og brosti reyndar
góðlátlega.
Birgir og Sigurður taka í nokkra þorska.
Ragnar Ragnarsson útgerðarmaður Arnars KE við löndun í Sandgerði í síðustu viku.
Landburður af línufiski í Sandgerði
6. tbl. 2004 umbrot 4.2.2004 13:57 Page 21