Víkurfréttir - 29.12.2004, Qupperneq 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grindvískafréttasíðan
U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n
8 Sigrún Guðmundsdóttir skreytir og sendir yfir 40 jólakort:
Hún Sigrún Guðmunds-d ó t t i r s i t u r e k k i auð um hönd um þó
88 ára sé því hún föndrar jóla-
kortin sín á mjög fallegan og
sérstakan hátt. Á sumrin tínir
hún blóm og þurrkar þau og
byrjar svo að föndra við jóla-
kortin á haustin og gefur sér
góðan tíma enda er hvert kort
listaverk í sjálfu sér.
Sigrún er vel ern, notar til
dæmis ekki gleraugu og man
alla hluti langt aftur í barn-
æsku. „Ég byrjaði á þessu fyrir
mörgum árum síðan og hef
ekki hætt því enn þá. Nú orðið
gef ég mér góðan tíma í hvert
kort og byrja í september til að
vera örugglega búin í tæka tíð,“
segir Sigrún og er í jólaskapi
mun lengur en flestallir. Alls
gerir Sigrún yfir 40 kort og
sendir þeim vinum og vanda-
mönnum og það eru örugglega
margir sem vildu vera í þeim
hópi.
Jólakortin skreytt með
þurrkuðum blómum
Á annað hundrað manns s t ó ð u a ð ó l ö g l e g r i brennu í Grindavík að
kvöldi jóla dags. Lög regl an
var með mik inn við bún að
þar sem talið var, samkvæmt
fyrri reynslu, að reynt yrði
að kveikja brennu í óleyfi í
kringum miðnætti.
Það varð raunin því undir mið-
nætti fór fólk að safnast saman
en til að byrja með var reynt að
stafla upp brennu við Saltfisk-
setrið. Lögreglu tókst að stöðva
það og flutti efnið á brott.
Í framhaldi af því var kveikt í
bæjarbrennunni við Litluvör.
Slökkviliði tókst ekki að slökkva
eldinn í brennunni og brann
hún að mestu leiti niður. Einnig
var kveikt lítil brenna við Sól-
arvé en þar safnaðist hópur
fólks saman, líklega á annað
hundruð manns skv. lögreglu,
á aldrinum 20-30 en það vakti
athygli lögreglu hversu margir
fullorðnir menn stóðu að þessu
og allmargir ekki undir áhrifum
áfengis.
Slökkviliðið slökkti í brennunni
en mætti talsverðri mótspyrnu
við það og kalla þurfti til lög-
reglu. Hún hafði af skipti af
nokkrum aðilum og voru tveir
handteknir en sleppt síðar um
nóttina.
Þetta hófst allt saman fyrir fimm
árum síðan þegar halda átti ball
á bæjarpöbbnum en þegar það
átti að hefjast var það stöðvað af
lögreglu. Þá brugðu ballgestir á
það ráð að halda útibrennu með
gítarleik og hópsöng og hefur
það verið árlegur viðburður
síðan.
Átti að kveikja lítinn eld
Þorkell Marinó Magnússon er
einn af forsprökkum íkveikj-
unnar í Grindavík en hann
sagði í samtali við Víkurfréttir
að áramótabrennan átti ekki
að brenna öll upp. „Þetta fór
úr böndunum, það átti bara
að kveikja lítinn eld í áramóta-
brennunni til þess að fá lögregl-
una þangað. Á meðan þeir væru
þar ætluðum við að kveikja í
brennu við Sólarvéið,” sagði Þor-
kell. Að hans sögn hefur aldrei
verið eins fjölmennt á áramóta-
brennunni í Grindavík eins og á
jóladagskvöld. Spurður um mót-
spyrnuna við slökkviliðið sagði
hann: „Það var strákur sem
sparkaði í slönguna hjá slökkvi-
liðinu, meira var það ekki.”
Nokkrir einstaklingar voru
sprautaðir með svokölluðu
„mase” spreyi en Þorkell telur
að það hafi verið óþarfur hlutur
og að eina ástæðan fyrir notkun
mase var vegna þess hve lög-
reglan var óstyrk. „Þetta verður
aftur á næsta ári, þarnæsta ári
og árinu eftir það,” sagði Þor-
kell. Hann hefur verið kærður
af lögreglu fyrir íkveikju ásamt
nokkrum öðrum.
Tekið fyrir í bæjarráði
Ólafur Ólafsson, bæjarstjórinn
í Grindavík, sagði í samtali við
Víkurfréttir að málið yrði tekið
fyrir í bæjarráði á miðvikudag-
inn. „Við munum leita leiða til
þess að leysa þetta mál en ég lít
á þetta sem lögreglumál fyrst og
fremst,” sagði Ólafur. Þeir aðilar
sem sjá um áramótabrennuna
eru, að sögn Ólafs, að safna í
hana að nýju. „Það er nokkuð
ljóst að brennan verður ekki
jafn stór og hún átti að vera til
að byrja með,” sagði Ólafur.
Leyfi þarf fyrir brennu
Karl Hermannsson, yf irlög-
regluþjónn hjá Lögreglunni í
Keflavík, lítur þetta mál alvar-
legum augum. „Mér finnst það
virðingarleysi gagnvart lögum
og reglum það alvarlegasta í
þessu,” sagði Karl. Lögreglan í
Keflavík veit hverjir skipulögðu
atburðina en það hefur ekki
fengist staðfest hve margir verða
kærðir af lögreglu. Lögreglan
og slökkvilið lenti í átökum við
nokkra brennugesti þegar þeir
hindruðu lögregluna og slökkvi-
liðið við störf. „Lögreglumenn
voru að handtaka einn brennu
gest þegar þeim var hrint og
í þá gripið svo það var gripið
til mase,” sagði Karl. „Hvernig
þessir aðilar höguðu sér er með
ólíkindum,” sagði Karl og bætti
því við að þessir aðilar þurfa
að uppfylla skilyrði sem þarf til
þess að fá leyfi fyrir brennu.
Hvert ætla þeir með
börnin?
Ásmundur Jónsson, slökkvi-
liðsstjóri í Grindavík sagði í
samtali við Víkurfréttir að það
hlyti að vera eitthvað að þessu
fólki. „Mér finnst það ótrúlegt
hve mikið af allsgáðu og full-
orðnu fólki eltir þessa menn,”
sagði Ásmundur. „Þar að auki
að klára áramótabrennuna sem
er búið að kosta til að setja upp
með skattpeningum okkar og
tilheyrandi kostnaði, mér þætti
gaman að vita hvert þeir ætli
með börnin sín núna á áramóta-
brennu.
Það var veðrinu að þakka að
ekki fór verr því það tók að
versna og leystist þá hópurinn
upp og lauk aðgerðum lögreglu
upp úr klukkan 02:00. Lög-
reglan var með sex bifreiðir á
vettvangi þegar mest var.
Brennan fuðraði upp á jóladag
Lj
ós
m
yn
di
r:
O
tt
i R
af
n
S
ig
m
ar
ss
on
8 Mikill viðbúnaður lögreglu í Grindavík á jóladag:
Ljósm
yn
d: A
gn
ar Sm
ári