Víkurfréttir - 02.06.2005, Page 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Nýjustu íþróttafréttirnar og heitustu úrslitin á vf.is
Íslandsmót Íþróttasambands Fatlaðra í frjálsum íþróttum utanhúss fór fram á Kópa-vogsvelli síðasta laugardag.
Keppt var í flokki hreyfihamlaðra og þroskaheftra
en þroskaheftir keppa í 3 flokkum, þar sem miðað
er við árangur og raðast
sterk ustu kepp end ur í
flokk 1 o.s.frv. Nes átti þar
12 keppendur á aldrinum
12 - 50 ára. Keppt var í þar
í 100m, 200m og 400m
hlaupi, langstökki með at-
rennu, kúluvarpi og spjót-
kasti.
Keppendur frá Nes voru:
Arnar Már Ingibjörnsson sem náði 1. sæti í 1.
flokki, í 100m hlaupi, 200m hlaupi, spjótkasti og
langstökki með atrennu og 2. sæti í kúluvarpi,
Guðmundur Ingi Einarsson sem náði 1. sæti í 1.
flokki í kúluvarpi og 2. sæti í spjótkasti, Sigríður
Karen Ásgeirsdóttir náði 1. sæti í 1. flokki í 100m
hlaupi, kúluvarpi, langstökki með atrennu og
spjótkasti, Jósef Pétursson sem náði 1. sæti í 2.
flokki í 100m hlaupi, og langstökki með atrennu,
Bryndís Brynjólfsdóttir sem náði 2. sæti í 2. flokki
í 100m hlaupi og kúluvarpi, Jakob Gunnar Lár-
usson sem náði 1. sæti í flokki ungliða í 100m
hlaupi, 1. sæti í 2. flokki í langstökki með atrennu,
2 sæti í spjótkasti, Valur Freyr Ástuson náði í
flokki ungliða 3. sæti í 100m hlaupi, 3. sæti í 3.
flokki í kúluvarpi, Guðmundur Ingi Margeirsson
sem náði í flokki ungliða 2.
sæti í 100m hlaupi, 3. sæti í
2. flokki í langstökki með at-
rennu og 2. sæti í 3. flokki
í spjótkasti, Óskar Ívarsson
sem náði í 3. flokki 1. sæti, í
langstökki með atrennu og
3. sæti í 100m hlaupi, Kon-
ráð Ragnarsson sem náði í
2. flokki 1. sæti, í kúluvarpi
og 3. sæti í spjótkasti, Jón Reynisson náði í 3.
flokki 3. sæti í spjótkasti, Egill Ragnarsson náði
í 3. flokki 1. sæti í kúluvarpi og spjótkasti og 2.
sæti, í langstökki með atrennu.
Samtals náðu þau í 31 verðlaunasæti þar af 15
Íslandsmeistaratitla sem teljast má mjög góður
árangur. Þess má geta að nemendur úr Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja voru með Nes hópnum til að-
stoðar en það er hluti af námi þeirra í FS. Árangur
keppenda er að finna á vefsíðu félagsins www.
gi.is/nessport undir mót.
15 meistaratitlar í frjálsum til Nes
Á sín um tíma þeg ar ég skrifaði í Víkurfréttir vegna 2. flokks karla
í Kefla vík sag ð ist ég láta
vita hvað væri að gerast hjá
flokknum og hvað hafi gerst.
Jú, þegar maður lítur til baka
var strax ákveðið að fara til út-
landa til æfinga og var ákveðið
að fara til Spánar. Tíminn sem
var valinn var verslunarmanna-
helgi í ljósi þess hversu langt
frí er þar og ekki síður til for-
varnar. Valið var að fara með
Sumarferðum þar sem Keflvík-
ingurinn og ferðafrömuðurinn
Helgi Jóhannsson er við stjórn.
Það hefur verið einstakt að eiga
við Helga viðskipti og þægilegri
mann er ekki við að eiga.
Það var frekar fátæklegt bú sem
tekið var við í upphafi. Það vant-
aði upphitunargalla og það vant-
aði ferðagalla og keppnissett svo
það lá við að maður hætti við.
Það hefur tekið á að fjármagna
þetta allt en við tókum að okkur
alla hluti nema keppnisbún-
inga og hafa strákarnir staðið
sig með prýði. Ekki ætla ég að
telja upp þau fyrirtæki sem hafa
stutt þetta verkefni þar sem ég
veit að þau hafa nú þegar fullt
af styrkbeiðnum og vilja eflaust
ekki meiri athygli. Ég mun síðar
þakka þeim.
Það hefur mikið gengið á hjá
knattspyrnudeild Keflavíkur að
undanförnu þar sem Guðjón
Þórðarson kaus að hlaupast
undan merkjum og hefur það
skapað leiðindi. Guðjón Þórð-
arson hafði það í sínum samn-
ing að hafa yfirumsjón með
2. flokki karla, hvernig sinnti
hann því verki? Guðjón Þórðar-
son kom aldrei á æfingu hjá 2.
flokki eða á leik ef þetta er það
sem Guðjón Þórðarson kallar
fagmennsku og að uppfylla
samning þá má Guðjón Þórð-
arson vera með sinn standard
fyrir mér fari hann í friði. Þetta
hefur allt áhrif og ekki síst á 2.
flokk þar sem ákveðið hefur
verið að Kristinn Guðbrandsson
sem verið hefur þjálfari 2 flokks
hefur verið ráðinn sem aðstoð-
arþjálfari meistaraflokks. Krist-
inn mun áfram vera yfir 2 flokk
og þegar þetta er skrifað þá er
verið að leita að þjálfara honum
til aðstoðar. Það er aðeins tvö
markmið sem 2. flokkur hefur
þetta tímabil og það er að kom-
ast upp í A riðil Íslandsmóts og
missa engan strák úr boltanum
þar sem ég lít á íþróttir sem for-
vörn. Við byrjuðum baráttuna
á sunnudaginn og væri gaman
ef Keflvíkingar sem hafa stutt
okkur svo vel í fjáröflun kæmu
á leiki og veittu okkur stuðning.
Kveðja,
Einar H Aðalbjörnsson
Erla best hjá UMFN
Af 2. flokki Keflavíkur
Erla Dögg Haraldsdóttir var kjör inn Íþrótta-maður Njarðvíkur á að-
alfundi UMFN í síðustu viku.
Þetta er annað árið í röð sem
hún hlýtur þennan titil.
Í ár varð Erla Dögg Íslandsmeist-
ari í 14 einstaklingsgreinum á Ís-
landsmótum SSÍ. Hún vann átta
titla í fullorðinsflokki og sex í
unglingaflokki, einnig vann hún
til fjögurra titla í boðsundum.
Í heildina eru því titlar hennar
í ár 18.
Stúlkan er einn af sterkustu
sundmönnum landsins og vann
einmitt til gullverðlauna í 200m
fjórsundi á Smáþjóðaleikunum
á þriðjudag. Tími hennar var
2:26.40.
Ungur kylfingur úr GS, Atli Elíasson, lék Hólmsvöll í Leiru á
innanfélagsmóti í vikunni á
68 höggum, eða 4 höggum
undir pari. Hann var samtals
með 7 fugla á hringnum; 4.,
6., 7., 10, 12., 14. og 18. Fékk
9 pör, einn skolla og einn
skramba. Frábært skor hjá
Atla sem er 23 ára. Þess má
gea að hann fékk 43 punkta
fyrir árangur sinn og lækkar
því um 0,4 í forgjöf, en fyrir
var hann með 3,5.
Það voru fleiri sem voru að
skora vel í mótinu; Björng
Víkingur Skúlason lék á
70 höggum, eða tveimur
höggum undir pari og þeir
Björgvin Sigmundsson og
Þröstur Ástþórsson á 71
höggi. Þeir eru allir úr GS.
Atli með
7 fugla á
Hólmsvelli
FLE, Fríhöfnin og GS í samstarf
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Fríhöfnin gerðu í síð-ustu viku styrktar- og
samstarfssamning við Golf-
klúbb Suðurnesja.
Samningurinn felur m.a. í sér
að FLE verður einn af aðalstyrkt-
araðilum Pro-am mótsins sem
haldið verður 18. júlí og Íslands-
mótsins í höggleik sem haldið
verður á Hólmsvelli Leiru 21.-
24. júlí. GS mun skipuleggja
golfkennslu fyrir starfsfólk FLE
í sumar og golfmót fyrir FLE og
Fríhöfnina sem samstarfsaðilum
fyrirtækjanna verður boðið til.
Í samningnum er gert ráð fyrir
því Golfklúbbur Suðurnesja
verði áberandi í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar enda sagði Gunnar
Þórarinsson, formaður GS að
golfklúbburinn væri ekki bara
íþróttafélag heldur og þátttak-
andi í ferðaþjónustu svæðisins.
Með hliðsjón af þeim gríðar-
mikla fjölda ferðamanna sem
færu um flugstöðina væri það
mik il vægt fyr ir Hólms völl
í Leiru að vera sjáanlegan í
auglýsingum enda aðeins um
5 mínútna akstur á milli stað-
anna. „Við væntum mikils af
samstarfinu við Flugstöðina og
Fríhöfnina og erum ákaflega
ánægðir með samninginn,”
sagði Gunnar.
Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri FLE hf., Gunnar Þórarins-
son formaður Golfklúbbs Suðurnesja og Sturla Eðvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar ehf. skrifa undir samninginn.
Nes vann þrefalt í 100m hlaupi ungliða. Hópurinn kom saman í „Pikknikk“ eftir mótið