Víkurfréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Bæjarstjóri Grindavíkur, Ólafur Örn Ólafs-son ætlar að taka áskorun þess efnis að hjóla síðasta spölinn með Eggerti Skúla-
syni en hann er að hjóla hringinn í kringum
landið til styrktar Hjartaheill. Grindvíkingur-
inn Arnbjörn Gunnarsson skoraði á bæjarstjór-
ann og vill með því vekja athygli á mikilvægu
málefni.
„Ég ákvað að leggja eitt þúsund krónur á hvern
þann Grindvíking sem vill hjóla síðasta spölinn
með Eggerti en þó tíu þúsund kr. að hámarki. Egg-
ert hefur sagt að hann muni hjóla annan hring ef
þrjú þúsund manns hjóli með honum síðasta
spölinn og vona ég því að sem flestir mæti og láti
Eggert standa við stóru orðin. Það þekkja allir ein-
hvern nákominn sem fengið hafa hjartaáfall og því
stendur það mörgum nærri að styðja við Hjarta-
heill” sagði Arnbjörn í samtali við blaðið. Ólafur
Örn sagði að það væri sjálfsagt mál að verða við
þessari áskorun og vildi hann hvetja sem flesta til
að styðja við þetta góða málefni. Þess má geta að
hægt er að hringja í síma 907-2001 og 907-2003
til að styrkja Hjartaheill.
Búið er að ráða í flest hlut verk mynd ar-inn ar Flags of Our
Fathers sem tekin verður
upp í Sandvík og Krýsuvík
seinna í sumar.
Leikararnir Ryan Phillippe,
sem er þekktastur fyrir að
leika í mynd inni I Know
What You Did Last Summer
árið 1997, myndinni Cruel In-
tentions árið 1999 og í mynd-
inni Crash á síðasta ári ásamt
Sandra Bullock, kemur til
með að leika hlutverk John
Bradley. Philippe er kvæntur
leikkonunni Reese Wither-
spoon og þau eiga tvö börn.
Adam Beach fer með hlutverk
Ira Hayes.
Auk þeirra er búið að ráða fjöl-
marga héðan til að fara með
aukahlutverk í myndinni. Þar
á meðal hafa þó nokkrir Suð-
urnesjamenn verið valdir til
að leika hermenn í myndinni.
Bæjarstjórinn í Grindavík
ÆTLAR AÐ HJÓLA SÍÐASTA
SPÖLINN MEÐ EGGERTI
Búið að ráða í helstu hlutverk
í mynd Clint Eastwoods
Grindavík
Ekið var á 10 ára dreng á Víkurbraut í Grindavík í síðustu viku. Var dreng-
urinn á hjólaskautum og kom
af Staðarhrauni og út á Vík-
urbraut í veg fyrir bifreiðina.
Drengurinn var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild í Foss-
vogi en meiðsli hans voru ekki
talin alvarleg.
Ekið á dreng