Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2005, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 14.07.2005, Qupperneq 15
VÍKURFRÉTTIR I 28. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 14. JÚLÍ 2005 I 15 50 frítt fyrir FIMMTUGA ������������������������������������������� ���������������������������������������������� ��������������������������������������������� �������������������������������� �������������������������������������������������������� �������������������������������������� ������������������������������� ������������������������������������ ��������� ������������������ ���������������������������� ������ ������������������������ �������������������������������������� ������������������������� Stálpuð Kanadagæs hefur síðustu daga sést á tveimur stöðum á Suðurnesjum. Fyrst varð hennar vart við Sandgerðistjörn en í vikunni hefur Kanadagæsar orðið vart á tjörninni á Fitjum. Kanadagæsir eru reglulegir flækingar á Íslandi og sjást gjarnan í fylgd með öðrum gæsum. Einna helst er talið að gæsin sé að ná sér í forða fyrir áframhaldandi flug yfir Atlantsála. Að sögn Sveins Kára Valdimarssonar hjá Náttúru- stofu Reykjaness í Sandgerði er greinilega ekki um sama fuglinn að ræða. Gæsin sem sást í Sand- gerði var bæði stærri og dekkri en fuglinn sem Víkurfréttir festu á mynd á Fitjum uppúr hádegi á mánudag. Árið í ár er orðið metár hvað varðar Kanadagæs en það sem af er árinu hafa sést nærri 30 fuglar hér á landi. Aðspurður hvort meira væri um flækingsfugla á Íslandi hin síðari ár, vildi Sveinn Kári ekki meina það. Það væru hins vegar orðnir fleiri áhugasamir um fugla og því fleiri að sjá sjáldséðar tegundir hér á landi en áður. Þó gæti hlýrra loftslag haft ein- hver áhrif á það að sjaldgæfir fuglar kæmu meira hingað nú en áður. Náttúrustofa Reykjaness hefur áhuga á að heyra um sjaldgæfa fugla en þar er í augnablikinu verið að vinna að fjórum doktorsverkefnum í fuglarann- sóknum. Ég óska Garð bú um til hamingju með glæsilegt nýtt safnahús og sérstak- lega óska ég kollega mínum Ásgeiri Hjálmarssyni til ham- ingju með góðan árangur. Það hef ur vel tekist til með hönnun hússins og tengingu við eldri byggingu. Þá er frágangur utanhúss til fyrirmyndar og hæfir vel þessari náttúru- og menningarperlu sem Garðskag- inn er. Sú alúð og virðing sem Garðbúar bera greinilega fyrir sögu sinni endurspeglast vel í sýningunum. Það hafa margir saknað þess að samsvarandi uppbygging hafi ekki átt sér stað hér í Reykja- nesbæ. Í samræðum mínum við bæjaryfirvöld hef ég hins vegar ekki heyrt annað en að vilji og metnaður sé til staðar fyrir upp- byggingu safnsins. Ýmsar hug- myndir hafa verið uppi um hvar nýtt safnahús Byggðasafnsins eigi að rísa. Við höfum t.d. velt fyrir okkur að tengja nýtt safna- hús við uppbyggingu í kringum Íslending þannig að þessar tvær byggingar myndi umgjörð um minjagarð sem fyrirhugaður er á þessum slóðum. Þetta er einkar athyglisverð hugmynd ekki síst vegna þess að fyrstu hugmyndir um uppbyggingu byggðasafns sem komu fram hjá Ungmennafélagi Keflavíkur á fimmta áratug síðustu aldar, fólu í sér að byggja upp safn og skrúðgarð í hjarta Keflavíkur. Ungmennafélagið lét verkin tala og stofnaði Byggðasafn Kefla- víkur á stærsta degi þjóðarinnar á 20. öld, 17. júní 1944. Þessi fallega umgjörð um safnastarf sýnir trú þessara einstaklinga á að saga þessa svæðis sé bæði áhugaverð og mikilvæg. Í kjöl- farið hefur mikið af munum og myndum safnast til safnsins og er safnkostur þess í dag bæði töluverður og fjölbreyttur og þar má finna margt góðra og mikilvægra gripa. Það vantar sárlega vettvang til að tryggja aðgengi almennings að menningararfleifð sinni og bindum við miklar vonir við að bæjarstjórn taki ákvörðun um að byggja nýtt safnahús í náinni framtíð. Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Byggða- safns Reykjanesbæjar Nýtt byggðasafn á Garðskaga Gleðitíðindi í safna- málum Suðurnesja Grindavík KANADAGÆS HEIMSÆKIR SUÐURNES Kanadagæsin á Fitjum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.