Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.07.2005, Qupperneq 9

Víkurfréttir - 21.07.2005, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR I 29. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ 2005 I 9 50 frítt fyrir FIMMTUGA ����������������������������������� ������������������������������������� ������������������������������� ���������������������������� �������������������������� ����������������������������� �������������������������� ������������������������� ������������������ ������������������������� ���������� ��������� ������������������ ���������������������������� ������ ���������������������������� ���������� �������������������������� Opnum nýtt gallerí laugardaginn 23. júlí kl. 13:00 Skartgripir úr íslenskum slípuðum steinum og fl. Opið alla daga frá kl. 13-18 eða eftir samkomulagi. Staðsett við hliðina á Fræðasetrinu í Sandgerði. Sími 660 6087 Vitatorgi • Sandgerði Gallerí Grjót FRÉTTASÍMINN SÓLARHRINGSVAKT 898 2222 LANDSMÓTIÐ Í GOLFI Á HÓLMSVELLI Í LEIRU Karen Sævarsdóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja er lang sigursælasti kvenkylfingur Íslandssögunnar og þó karlarnir væru taldir með í sama flokki því hún vann átta ár í röð og sinn fyrsta titil á sínum heimavelli á Hólmsvelli í Leiru 1989. Karen vann annan titil í Leiru 1993 en síðast í Vestmannaeyjum 1996 en ári síðar fór hún utan og reyndi við atvinnumennsku í Bandaríkjunum. Það reyndist erfitt og hún hætti tveimur árum síðar en starfar nú sem útibússtjóri í banka þar ytra. Í síðustu landsmótum á Hólms- velli í kvennaflokki sigraði Ragnhildur Sigurðardóttir 1998 en það var hennar annar titill, 1993 sigraði Karen eins og áður segir. Árið 1986 sigraði Steinunn Sæmundsdóttir og 1981 hampaði Sólveig Þorsteins- dóttir titlinum í eitt af þremur skiptum sínum. Sama gerði Jóhanna Ingólfsdóttir en hún sigraði í eitt af þremur skiptum sínum á Hólmsvelli í Leiru árið 1978. Hjá körlunum sigraði Sigurpáll Geir Sveinsson s íðast eða 1998 þegar mótið var fyrst sýnt í beinni útsendingu í í s l ensku s jónvar pi á Sýn . Mótin á undan voru 1993 en þá vann Eyjapeyinn Þorsteinn Hallgrímsson, Úlfar Jónsson vann 1986, Ragnar Ólafsson 1981 og Hannes Eyvindsson 1978. Allir bestu kylfinga landsins eru mættir til leiks á Íslandsmótinu í höggleik sem hófst á Hólmsvelli í Leiru í morgun, þar á meðal tveir bestu atvinnukylfingarnir, þau Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir en þau hafa bæði titla að verja eftir sigra á Akranesi í fyrra. Í kvennaflokki er Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR líklegust til að berjast um titilinn við Ólöfu eftir gott gengi í mótum sumarsins. Hjá körlunum er Birgi Leif spáð titlinum eins og Ólöfu en þó er talið að hann geti fengið harða mótspyrnu nokkurra kylfinga og eru þá Heiðar Davíð Bragason og Sigurpáll Geir Sveinsson úr Golfklúbbnum Kili helst nefndir til sögunnar. Ræst var út frá kl. 7.30 í morgun og er ræst út til kl. 14.30 í dag og á morgun. Sýnt er frá mótinu á Sýn alla dagana, í þáttum fyrstu tvö kvöldin en beinni útsendingu laugardag og sunnudag kl. 15-19. Vefsíða Víkurfrétta, kylfingur.is mun verða með ítarlega umfjöllun frá mótinu allan daginn, alla mótsdagana. Þátttakendur eru 144 og þar af 27 í kvennaflokki sem er met í sögu Íslandsmótsins. Hólmsvöl lur skar tar s ínu fegursta og veðurspáin er mjög góð. Það má því búast við hörku spennandi keppni og flottu golfi næstu fjóra daga á Hólmsvelli í Leiru. Suðurnesjamennirnir Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, klúbbmeistari GS 2005 og Örn Ævar Hjartarson, fremsti kylfingur GS til margra ára verða báðir í baráttuni á Hólmsvelli næstu daga. Ólöf María Jónsdóttir er mætt í titilvörnina á Hólmsvöll. BIRGIR OG ÓLÖF MARÍA LÍKLEG TIL AÐ VERJA TITLANA Birgir Leifur lék í boðsmóti sl. mánudag í Leirunni. Hann er ánægður með völlinn og tilbúinn í slaginn. KAREN SIGURSÆLASTI KYLFINGUR SÖGUNNAR

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.