Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.09.2005, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 08.09.2005, Blaðsíða 11
VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 8. SEPTEMBER 2005 I 11 Hvað þarf til þess að læra að treysta æðra mætti, til að bæta heils- una, auka orku og bæta hana? Laug ar dag inn 10.sept em ber endurtekur Púls- inn vinsælt nám- skeið frá því í vor m e ð E r n i Jónssyni, nálarstungulækni og Master í NLP. Á þessu námskeiði kennir Örn einnig hvernig efla má tengsl við innsæið, innri mann og innri sköpun. Þú lærir hvernig þú getur breytt hugsanamynstri og haft þannig betri stjórn á and- legri líðan þinni. Farið verður í NLP æfingar, sem eru æfingar til að breyta td. neikvæðum hugsunum í jákvæðar, ásamt hugleiðslu, slökun, orkupunkta- nuddi og dansi. Þér verð ur kennt að vinna með orkupunkta líkamans og hvernig nota má ákveðna punkta til slökunar. Skráningu er senn að ljúka í síma 848 5366 eða á heimasíðu www.pulsinn.is Lærðu að treysta (æðri mætti) Púlsinn ævintýrahús í Sandgerðisbæ Útskálar í Garði á Reykjanesi. Útskálar voru lengi meðal helstu höfuðbóla á Suðurnesjum og lá til staðarins fjöldi hjáleiga. Ekki eru um það heimild ir hvenær kirkja var þar fyrst sett en ekki er ólíklegt að það hafi verið snemma í kristni hér á landi. Fyrsti prestur á Útskálum sem um getur í heimildum hét Ormur og hefur fengið kall seint á 14. öld. Frá öndverðri 16. öld og síðar eru til ágætar heimildir um þá presta sem stað- inn sátu og voru margir þeirra ágætir fræðimenn. Má þar auk annarra nefna síra Þorleif Kláus- son (1627-1699) og síra Sigurð Br. Sívertsen (1808-1887). Kirkjan sem nú stendur á Út- skálum var reist á árunum 1861-1863 og stækk uð árið 1895. Kirkjugarðurinn á Út- skálum er fyrir margra hluta sakir merkilegur, ekki síst fyrir þá sök að þar er að finna margar gerðir gamalla minningarmarka (legsteinar og pottjárnsverk). Höfundur þessa greinarkorns mun leiða gesti um gamla hluta kirkjugarðsins á Útskálum laug- ardaginn 10. september n.k. og hefst leiðsögnin klukkan 17:00. Gunnar Bollason verkefnisstjóri kirkjuminja Fornleifavernd ríkisins

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.