Víkurfréttir - 21.09.2006, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 38. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Ellert Grétarsson, sími 421 0014, elg@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0004, jbo@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Hanna Björg Konráðsdóttir, sími 421 0001, hannabjorg@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Magnús Geir Gíslason, s: 421 0005, magnus@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Þóra Kristín Sveinsdóttir, s: 421 0011, thora@vf.is
Ragnheiður Kristjánsdóttir, s: 421 0005, ragnheidur@vf.is
Prentsmiðjan Oddi.
www.vf.is, www.vikurfrettir.is og kylfingur.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint
samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN ER Í SÍMA 898 2222.
8 Kallinn á kassanum
��������������
��������� � ���������������������
��������������������������������������
������������������������� �������
����������������������������
�����������������������
�� �������������������������
ENN ERU TUGIR manna sem missa vinnuna á Vellinum um
mánaðarmótin sem ekki eru búnir að fá aðra vinnu og eru í
lausu lofti með framhaldið. Ekki síst er það fólk af sömu kynslóð
og Kallinn sjálfur, en í heimi æskudýrkunar er víst ekkert pláss
fyrir hæfa einstaklinga með áratuga reynslu. Það hlýtur að vera
forgangsverkefni stjórnvalda á bæði lands- og sveitarstjórnarstigi
að bregðast við vanda þessa hóps og hefur þá helst verið minnst á
e.k. starfslokasamninga. Næsta víst er að Kaninn þarf ekki að bera
kostnað af því eftir að hann hverfur á brott alfarinn.
KALLINN HEYRÐI skemmtilega sögu úr atvinnulífinu á
dögunum. Þannig var að sumarstarfsmaður var að ljúka störfum
og hefja framhaldsnám eins og gengur á þessum árstíma. Þegar
sumarstarfsmaðurinn var að halda heim á leið kallaði yfirmaðurinn
hann inn á skrifstofu til sín og færði honum 50.000 króna
bónusgreiðslu fyrir vel unnin störf í sumar. Fylgdi sögunni að
þetta væri þakklætisvottur fyrir vel unnin störf og góða mætingu.
Það hafi viljað brenna við að sumarfólkið hafi verið áhugalaust um
vinnuna og tilkynnti oft um veikindi. Það var víst ekki í þessu tilviki
og það var umbunað með myndarlegri bónusgreiðslu, sem kom sér
örugglega vel í bókakaupum.
ÞAÐ ER ÓTRÚLEGT að þrátt fyrir nær óstöðvandi áróður á
dögunum til bættrar umferðarmenningar, þar sem myndir af
fórnarlömbum umferðarslysa voru í forgrunni, þá dró ekkert úr
glannaskap í umferðinni. Kallinn tekur undir með þeim sem kalla
þetta fólk umferðarníðinga og tilræðismenn. Hvað getum við gert til
að komast inn á milli eyrnanna á þessum níðingum með áróður um
að hraðakstur er ekki þeirra einkamál? Kallinn óskar hér með eftir
ábendingum til úrbóta í umferðarmálum. Póstfangið er kallinn@vf.
is.
KALLINN ER EKKI LENGRI í dag. Lifið heil.
kallinn@vf.is
Af atvinnumissi og
umferðarníðingum