Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.2006, Blaðsíða 25

Víkurfréttir - 21.09.2006, Blaðsíða 25
25ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR Keflavík og Valur skildu jöfn 1-1 og eru Keflvíkingar því nokkuð fastir í fjórða sæti. Stuðn ings menn höfðu samband við mig eftir 3-0 tapleikinn gegn KR og sögðust oft hafa séð það svart- ara,“ sagði Magni Fannberg Magnússon, annar þjálfara Grindavíkur- liðsins í Landsbanka- deildinni. Grindvík- ingar þurfa að leggja Íslandsmeistara FH að velli á laugardag til þess að halda sér uppi í deildinni. Þá eru úrslit í öðrum leikjum einnig þáttur sem taka þarf inn í fallbaráttu- reikning Grindvíkinga. „FH-ing ar mun leggja jafn mikið í þenna leik og aðra, ann að væri van virð ing við knattspyrnuna. Ég hef fulla trú á því að ef við vinnum FH þá munum við halda sæti okkar í deildinni,“ sagði Magni og hafði fulla trú á því að vinur sinn Guð- jón Árni Antoníusson og félagar hans í Keflavík myndu leggja Breiðablik að velli á laugardag. Gegn KR í síðustu viku fékk varn- armaðurinn David Hannah að líta rauða spjaldið á 34 mínútu leiksins og þar með datt botninn úr leik Grind vík inga sem lágu 3-0 á KR velli. Hannah verð ur því ekki með Grindvíkingum gegn FH á laugardag en aðrir leik- menn liðsins eru heilir og klárir í slaginn sagði Magni. Grinda- vík tekur á móti FH á laugardag kl. 14:00 á Grindavíkurvelli. Knattspyrnuþjálfarinn Freyr Sverrisson hefur söðlað um og gerst yfir- þjálfari drengja í knattspyrnu hjá Haukum. Freyr kveður þar með Njarðvíkinga sem hann hefur þjálfað síðan 1992. Freyr segir pattstöðu og vissa þrá eftir nýjum verkefnum hafa valdið því að hann hafi gengið í raðir Hauka en á þeim árum sem hann var hjá Njarðvík tók yngriflokkastarfið þar stakka- skipt um svo um mun aði. Á uppskeruhátíð mfl. Njarð- víkur í knattspyrnu var Freyr sæmdur silfurmerki félagsins fyrir góð störf í þágu knatt- spyrnudeildar UMFN. „Ég hóf störf hjá Njarðvík 1992 og árið 1995 fer ég í fullt starf hjá félaginu sem yfirþjálfari yngriflokka,“ sagði Freyr en hann hefur menntað sig tölu- vert sem knattspyrnuþjálfari. „Þessa dagana er ég að ljúka A- stigi UEFA sem gefur mér rétt- indi til þess að þjálfa alls staðar í Evrópu. Það er gaman að vera í þjálfun því í dag er starfrækt öflugt þjálfarafélag þar sem menn koma saman og deila reynslunni. Hér áður fyrr voru menn að leynipúkast með sínar aðferðir en í dag eru menn dug- legir að miðla upplýsingum.“ Lærði mikið af Velemir Um svipað leyti og Freyr hefur störf hjá Njarðvík var Velemir við störf hjá Keflavík en hann var margreyndur júgóslavneskur þjálfari sem þjálfað hefur flest alla stjörnuleikmenn sem komið hafa frá Keflavík síðustu ár. „Þetta var snemma mikil keppni við Velemir og ég lærði mikið af honum. Í dag höfum við náð að byggja starfið ágætlega upp hjá Njarðvík og staðan er sterk. Við eigum sterka stráka í 2., 3. og 4. flokki og meistaraflokkurinn er kominn upp í 1. deild,“ sagði Freyr sem hefur þó ákveðnar skoðanir á knattspyrnumálum í bæjarfélaginu. Vill samvinnu efstu flokka Árangur ÍRB í sundinu hefur ekki farið fram hjá neinum og segir Freyr að í stað þess láta leikmenn í 2. og 3. flokki í Njarð- vík og Keflavík vera að keppa í sitt hvoru lagi þá eigum við að vinna saman með flokkana og tefla þeim fram sem einu liði og hvergi hika frá því að taka stefnu á Íslandsmeistaratitil í a- riðil. „Ef við hugsum hátt með þessa flokka þá geta þeir verið með bestu liðum á landinu og það skilar eingöngu sterkari leik- mönnum í meistaraflokkana,“ sagði Freyr en hann taldi þetta vera góðan tímapunkt til þess að hætta störfum hjá Njarðvík. „Það er gott fyrir báða aðila að fá nýtt blóð inn í starfið. Ég fer og kynnist öðru félagi og fyrir iðkendur í Njarðvík verður gott að kynnast nýjum þjálfara,“ sagði Freyr. Á konunni mikið að þakka Ásamt því að vera yfirþjálfari yngriflokka hjá Haukum mun Freyr áfram sinna störf um sínum hjá KSÍ en hann stjórnar fyrir knattspyrnuskóla Íslands fyrir 14 ára stráka á sumrin. Freyr er einnig aðstoðarþjálf- ari hjá U 17 og U 19 ára karla- landsliðinum ásamt því að vera landsliðsþjálfari U 16 ára. „Þetta eru orðnir 60 landsleikir, 50 erlendis og 10 hér heima. Sig- urleikirnir eru 21, ósigrarnir 28 og 11 jafntefli en alls hef ég heimsótt 15 þjóðlönd sem lands- liðsþjálfari,“ sagði Freyr sem á konu sinni mikið að þakka. „Ég á konu minni mikið að þakka. Þetta hefði ekki verið hægt sem fjölskyldumaður ef hún hefði ekki staðið vel við bakið á mér,“ sagði Freyr sem fagnaði á dög- unum 15 ára brúðkaupsafmæli. Freyr hefur oft verið spurður að því af hverju hann taki ekki að sér þjálfun meistaraflokka en hann seg ir hug ann vera við grasrótina eins og er. „Ég vil þakka öllum þeim góðu að- ilum sem störfuðu með mér hjá Njarðvík, þar vil ég helstan nefna Leif Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóra deildarinnar, en við höfum átt farsælt starf allan þann tíma sem ég starfaði hjá Njarðvík,“ sagði Freyr að lokum og útilokaði ekki að snúa aftur í Njarðvíkurnar sem þjálfari er fram líða stundir. HUGURINN VIÐ GRASRÓTINA Úrslitastund hjá Grindavík Freyr ásamt knattspyrnugoðinu Ruud Gullit í Moldavíu árið 2003. Fastir í fjórða sæti Segja má að Keflavíkur-liðið sé komið í pattstöðu í Landsbankadeildinni. Keflvíkingar eru í 4. sæti deild- arinnar með 24 stig og næstu lið fyrir neðan hafa 21 stig en með mun lakari markatölu en Keflvíkingar. Valsmenn hafa 28 stig í þriðja sæti svo Keflvík- ingar virðast fastir í fjórða sæti því Fylkir og ÍA í 5. og 6. sæti eru 12 og 14 mörkum á eftir Keflavík. „Við ræddum það á æfingu að mótið væri ekki búið og við ætlum að klára það með stæl,“ sagði Guðmundur Mete í sam- tali við Víkurfréttir. „Sigur gegn Blikum á laugardag heldur líka uppi góðri stemmn ingu hjá okkur fyrir bikarleikinn en hann hefur ekkert verið að trufla okkur,” sagði Guðmundur en viðurkenndi þó að fjarvera lykil- manna undanfarið og brotthvarf Hólmars hafi tekið sinn toll af Keflavíkurliðinu. „Við náðum loks ins að stilla upp okk ar sterkasta liði gegn Val og nú hugsum við bara um þessi þrjú stig sem eru í boði fyrir okkur í deildinni,“ sagði Guðmundur sem gerir sér fyllilega grein fyrir því að Grindvíkingar beri miklar vonir til Keflvíkinga á laugardag því Grindvíkingar geta komist upp fyrir Blika ef þeir vinna FH og Keflavík hefur sigur á Kópa- vogsvelli. „Markmið okkar fyrir þessa leiktíð var að gera betur en í fyrra og ná Evrópusæti og á næsta ári eigum við að stefna á toppsætið,“ sagði Guðmundur. Spurður hvort þreytan væri ekki farin að segja til sín sagði hann að vissulega hefði streytan gert vart við sig en nú væru bara tveir leikir eftir af leiktíðinni og menn myndu nýta þá sem allra best.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.