Víkurfréttir - 09.11.2006, Síða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 45. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Fyrir hádegi föstudaginn 24. nóv em ber munu nemendur Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja eiga kost á
því að taka sér frí frá námi og
vinna þess í stað launavinnu
og leggja afraksturinn til þró-
unarhjálpar. Þeir sem fara að
vinna utan skólans þennan
morgun munu dreifa kynn-
ingarefni um starfsemi Íslend-
inga í Malaví og láta laun sín
renna óskert til þróunarverk-
efnis í Malaví undir kjörorð-
inu: „Tökum framhaldsskóla
í fóstur”. Skólinn mun síðan
tvöfalda þá upphæð sem nem-
endur safna í verkefnið. Verk-
efninu er hrundið af stað í til-
efni 30 ára afmælis Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja.
Malaví er í suð aust ur hluta
Afríku og er með fátækustu
löndum í heimi. Þar búa um
12 milljónir en Malaví er land
á stærð við Ísland. Í Malaví er
landsframleiðsla á mann að-
eins sem samsvarar 12.000 ís-
lenskum krónum á ári. Í Malaví
eru lífslíkur um 40 ár en nýjasta
heilsufarsógnin er alnæmi.
Ólæsi er útbreitt, tveir þriðju
hlutar kvenna og helmingur
karla er ólæs. Ísland hefur veitt
þróunaraðstoð til Malaví svo
árum skiptir og hefur Þróunar-
samvinnustofnun annast fram-
kvæmd þess.
Nemendur geta sjálfir leitað til
fyrirtækja um vinnu, en boðið
verður upp á vinnumiðlun fyrir
þá sem ekki finna sér fyrirtæki
sjálfir. Við munum biðja fyrir-
tæki á Suðurnesjum að leggja
okkur lið og bjóða upp á störf
í vinnumiðlunina. Nemendur
þurfa að vinna a.m.k. þrjár
klukkustundir og lágmarkslaun
eru 1.000 krónur á tímann en
fyrirtækjum er frjálst að borga
meira.
Suð ur nesja menn - tök um
til hendinni og sýnum hvað í
okkur býr með því að taka þátt í
þessu verkefni með nemendum.
Með fyrirfram þakklæti,
Undirbúningsnefnd
Vinnumiðlunar
Upplýsingar má fá á skrifstofu
skólans í síma 421-3100 og
hjá undirbúningsnefnd:
Sunna Gunnarsdóttir
í s. 864-3609
og Hildur Bæringsdóttir
í s. 694-66367
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 30 ára:
Fjölbrautaskóli Suður-nesja fagnar þrítugsaf-mæli sínu nú í lok nóv-
ember. Af því tilefni verður op-
inn dagur í skólanum og jafn-
framt verður gefið út afmæl-
isblað sem verður dreift með
Morgunblaðinu 24. nóv. nk.
Ritnefndin hefur hist og undir-
býr nú afmælisritið og hvetur
gamla nem end ur að senda
mynd ir af þeir luma á ein-
hverjum góðum og skemmti-
legum. Í blaðinu verður farið
yfir sögu FS, rætt við forráða-
menn skólans, gamla og nýja
nemendur og fleira.
Mynd: F.v. Guðmann Sigþórsson, Rósa Sigurðardóttir, Valgerður Björk
Pálsdóttir og Björk Guðjónsdóttir. Í aftari röð eru Óli Jón Arnbjörns-
son, skólameistari og Jón Sæmundsson.
Undirbún-
ingur fyrir
þrítugan FS
Meðfylgjandi mynd var tekin
af ritnefndinni að störfum nú í
vikunni en umsjón með útgáf-
unni er í höndum Víkurfrétta
og starfsmanna skólans.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja vinnur góðverk:
Dagsverk fyrir Malaví