Víkurfréttir - 22.01.2015, Side 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGURINN 22. JANÚAR 2015 • 3 . TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ
www.lyfja.is
Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16
Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.
af lyfjum utan
greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum
og öðrum vörum
16%
afsláttur
12%
afsláttur
Við stefnum að vellíðan.
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi sjálf-s t æ ð i s m a n n a , s a g ð i m á l e f n i
skemmtistaðarins Paddy’s vera orðið hið
vandræðalegasta, sér í lagi þegar farið
væri að tengja það hagsmunaöflum í
bæjarstjórn á opinberum vettvangi.
Mikilvægt væri að fá niðurstöðu í málinu
vegna þess að þegar hafi fjórir aðilar sýnt
áhuga á húsinu, eftir að það var auglýst til
sölu eða leigu í lok síðasta árs.
Skv. heimildum Víkurfrétta var eitt til-
boðanna nógu bitastætt til að fara í nánari
viðræður og þær halda áfram. Hörð skoð-
anaskipti hafa síðustu daga átt sér stað á
milli síðasta rekstraraðila Paddy's, Björg-
vins Ívars Baldurssonar og eigenda Hótels
Keilis, sem staðsett er hinum megin Hafnar-
götunnar. Listi með undirskriftum 30 mót-
mælenda reksturs skemmtistaðar við Hafn-
argötu 38 barst bæjarráði áður en málið var
tekið fyrir í síðustu viku.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir að verðmat á eigninni
eigi eftir að berast til að taka endanlega
ákvörðun. Fyrrverandi leigutakar skuldi
Reykjanesbæ talsverðar fjárhæðir og bær-
inn hafi því borgað með rekstri Paddy's
um árabil. Ekki hafi verið áhugi fyrir því
lengur. „Það er eðli miðbæja og miðborga
að hafa þar ólíkan rekstur fyrirtækja sem
geta þrifist saman. Best væri að það ætti við
um Reykjanesbæ eins og önnur sveitarfélög.
Menn gætu náð saman um að halda uppi
fjölbreyttri starfsemi,“ segir Kjartan.
Nokkuð hörð umræða var á vef VF í vikunni
um framtíð Paddy’s. Eigendur Hótels Keilis
hinum megin Hafnargötunnar kvarta sáran
undan samneytinu við staðinn og höfðu
stór orð um óþægindin. Þau vilja staðinn
burt. Síðustu rekstraraðilar Paddy’s sögðu
það sorglegt að eitt fyrirtæki í samkeppni
við annað reyni að hafa áhrif á framtíð hins.
Þá væri megnið af kvörtunum vegna hávaða
frá staðnum tilhæfulausar.
Tekist á um framtíð Paddy’s
Þrætur milli rekstraraðila Paddy’s og Hótels Keilis. Málið í vinnslu hjá Reykjanesbæ.
Framtíð skemmtistaðarins
Paddy’s er í óvissu.
Hussein og Omar
færðu Ásmundi gjafir
XXKeflavíkurannállinn sem fluttur var á þorra-
blóti Keflavíkur um síðustu helgi var hárbeittur
og eldfimur á köflum. Áður en annállinn var
sýndur mættu óvæntir gestir á þorrablótið. Það
voru þeir Hussein og Omar sem voru mættir
á svæðið til að fyrirgefa Ásmundi Friðrikssyni
þingmanni. Ásmundur átti alla fréttatíma í
síðustu viku vegna ummæla um múslima. Þeir
Hussein og Omar færðu Ásmundi flugelda og
smásprengjur ásamt bók þar sem þingmaðurinn
átti að kynna sér trúarbrögð þeirra. Þetta atriði
þorrablótsins verður í Sjónvarpi Víkurfrétta á
ÍNN og vf.is í kvöld.
Um helgina verða tvö stór þorrablót á Suður-
nesjum. Í Garði er þorrablót Suðurnesjamanna og
í Grindavík er þorrablót Ungmennafélags Grinda-
víkur. Njarðvíkingar halda svo sitt þorrablót um
aðra helgi.
Málefni um framtíð Brunavarna Suðurnesja:
Ekki fullreynt
að halda BS í
heimabyggð
XXKristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi fram-
sóknarmanna, lýsti yfir áhyggjum af starfsemi
Brunavarnar Suðurnesja á bæjarstjórnar-
fundi í Reykjanesbæ sl. þriðjudag. Honum
fannst einkennilegt hvernig formaður þess
vill afhenda það Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins.
Kristinn sagði að framtíð BS væri björt með
yfirstjórnina í heimabyggð. Ekki væri heldur
fullreynt að tala við það fyrirtæki sem gæti
veitt BS mestan styrk, Isavia. Árni Sigfússon,
bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, tók undir orð
Kristins og sagði sjálfsagt að skoða alla mögu-
leika í málefnum BS og það komi sér á óvart
að ákveðið hafi verið að ganga til viðræðna um
einn kostinn. Með mögulegri uppbyggingu á
björgunar- og leitarstöð á Keflavíkurflugvelli,
í samstarfi við erlend ríki tengd norðurslóða-
málum, væri mikilvægt að að horfa til öflugra
brunavarna á svæðinu. Einnig væru uppi hug-
myndir um björgunarskóla í Keili þar sem BS
gæti spilað stóran þátt.
Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar, segir engar ákvarðanir hafa verið teknar
um framtíð BS. Ályktun starfsmanna BS hafi
verið lögð fram og ákveðið hafi verið að stofna
í febrúar byggðasamlag fjögurra sveitarfélaga;
Garðs, Sandgerðis, Voga og Reykjanesbæjar.
Sú vinna hafi tafist vegna þess að ársreikningur
BS fyrir árið 2013 sé ekki tilbúinn og aldrei
hafi verið stofnaður efnahagsreikningur fyrir
félagið.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Bærinn fyllist
af lúðrablæstri
XXLandsmót Samtaka íslenskra
skólalúðrasveita verður haldið
í Reykjanesbæ um helgina. Það
er Tónlistarskóli Reykjanes-
bæjar sem stendur að mótinu í
samstarfi við Samtök íslenskra
skólalúðrasveita,
SÍSL, en þetta
m ó t e r æ t l a ð
fyrir elstu deildir
skólalúðrasveita
landsins. Al ls
taka skólalúðra-
s veit ir f r á 12
stöðum á landinu þátt í mótinu,
með alls um 220 hljóðfæraleik-
urum.
Öll dagskrá landsmótsins mun
fara fram í Hljómahöll, þ.e. í Tón-
listarskólanum og sölum Hljóma-
hallar, sem er mikil hagræðing
varðandi nýtingu á tíma og eykur
samveru nemenda og kennara,
sem er mikilvægt. Nánar má lesa
um mótið á vef Víkurfrétta, vf.is.