Víkurfréttir - 22.01.2015, Blaðsíða 18
18 fimmtudagurinn 22. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
Segir Ragnheiður Sara sem stefnir í hæstu hæðir í þessu ört vaxandi sporti
„CROSSFIT ER BARA LÍF MITT“
Mótið í Manchester stóð yfir í tvo daga en Sara var með forystuna lengst af í
keppninni. Hún hlaut að lokum 828 stig á
meðan sú í öðru sæti hlaut 780. Alls voru
tæplega 100 keppendur víðs vegar að frá
Evrópu í kvennaflokki og mótið afar sterkt.
Um er að ræða næststærsta mót í Evrópu á
eftir Evrópuleikunum. „Ég hef bara aldrei
verið í eins góðu formi og núna og ótrúlegt
hvað allt er búið að ganga upp,“ segir Sara
sem hefur lagt mikið á sig við æfingar. Þar
hefur hún bætt í en þó æfði hún gríðarlega
mikið áður. Nú mætir hún á kvöldin og
tekur oft þriðju æfingu dagsins þar sem
hún vinnur í veikleikum sínum, ef veik-
leika skyldi kalla. „Þær æfingar eru búnar
að hjálpa mér mest núna,“ segir Sara en
þá æfir hún mest tækni sem skiptir miklu
máli í crossfit.
Eftir sigurinn í Manchester hefur Sara vakið
þónokkra athygli sem hún er annars ekki vön
að fá. „Ég er búin að fá mikið af kveðjum,
sumar frá fólki sem ég veit ekkert hver eru,
þetta er alveg dálítið skrýtið,“ segir Sara og
hlær. Að launum fyrir sigurinn í mótinu
hlaut Sara 7500 dali, eða tæplega milljón
krónur. „Þetta hjálpar manni alveg helling.
Þetta eru auðvitað bara tekjurnar mínar því
ég er bara í vinnunni þegar ég er að æfa.“
Keppir gegn þeim allra bestu
í Bandaríkjunum
Í dag heldur Sara svo til Boston í Bandaríkj-
unum en þar mun hún keppa á gríðar sterku
móti sem hún þurfti að hafa mikið fyrir því
að komast inn á. „Þar eru 25 af 30 stelpum
sem hafa farið á heimsleikana í Crossfit,“
segir Sara en sjálf stefnir hún þangað, þar
sem þeir allra bestu etja kappi. Til þess að
komast á heimsleika þarf hún að ná einu
af efstu fimm sætunum á Evrópuleikunum
sem fram fara í vor. Hvað varðar mótið í Bo-
ston þá metur Sara möguleika sína ágætlega.
„Ég ætla að stefna á topp 15. Ef ég næ svo
einu af tíu efstu sætunum þá verð ég ennþá
sáttari.“ Annars segist Sara aðallega vera að
fara til Bandaríkjanna til þess að keppa á
móti stórum nöfnum í crossfitinu og öðlast
reynslu.
Eftir góðan árangur á mótum í Evrópu viður-
kennir Sara að hún sé orðin dálítið þekkt
í crossfit heiminum þar
ytra. Að undanförnu hefur
Sara farið meira erlendis
að keppa og þjálfa. Síðan í
maí á síðasta ári hefur hún
farið 12 sinnum erlendis til þess að keppa í
crossfit. Hún segist ekki vera á leið erlendis
fyrir fullt og allt, en þó sé hún að skoða þá
möguleika að keppa á atvinnumannastigi í
Bandaríkjunum.
Sara þjálfar hjá Crossfit Suðurnes í Sport-
húsinu, þar sem hún dvelur nánast 12 tíma
á dag við æfingar og þjálfun. „Crossfit er
bara líf mitt,“ segir Sara en þar er engu logið.
Hún leggur stund á nám í sálfræði samhliða
crossfitinu en annars kemst lítið annað að.
Eftir annasaman dag gefur hún sér tíma til
þess að læra. Hún leggur þó mikið upp úr því
að sofa vel og passar upp á að ná sínum níu
tímum þar.
Sara, sem er 22 ára, hefur aðeins stundað
Crossfit í tvö ár, en að sögn þeirra sem til
þekkja, þá byrja iðkendur að bæta sig veru-
lega eftir þann tíma í sportinu. Sara er ein af
þeim bestu í sportinu nú þegar og því ljóst að
hún á sannarlega framtíðina fyrir sér.
Njarðvíkingurinn Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir fagnaði sigri á enn einu crossfitmótinu á erlendri grundu nú um liðna helgi. Að þessu sinni sigraði Sara á Athlete Games
mótinu sem fram fór í Manchester á Englandi. Sara hefur gert það gott á undanförnu ári en stefnir enn hærra árið 2015.
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði - info@hotelork.is - sími: 483 4700 - www.hotelork.is
Í ár höldum við uppá 25 ára afmæli Sparidaga.
Af því tilefni bjóðum við sérlega vandaða dagskrá þar
sem meðal annars verður farið í heimsókn í Hesta-
leikhúsið Fákasel og Landgræðslu Ríkisins í
Gunnarsholti ásamt mörgum öðrum frábærum
dagskrárliðum. Bókanir fara fram hjá umsjónar-
manni félags eldri borgara á hverjum stað. Einnig
er hægt að hafa samband við Hótel Örk í síma 483 4700
þar sem starfsfólkið veitir allar nánari upplýsingar
eða á slóðinni www.hotelork.is/sparidagar
Innifalið alla Sparidaga
– gisting í 5 nætur í tveggja manna herbergi –
– morgunverðarhlaðborð og kvöldverður –
– og fjölbreytt dagskrá –
Verð 46.900 á mann
m.v. tveggja manna herbergi
Ég ætla að stefna á topp 15. Ef ég
næ svo einu af tíu efstu sætunum
þá verð ég ennþá sáttari