Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 18

Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 18
18 fimmtudagurinn 22. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR -íþróttir pósturu eythor@vf.is Segir Ragnheiður Sara sem stefnir í hæstu hæðir í þessu ört vaxandi sporti „CROSSFIT ER BARA LÍF MITT“ Mótið í Manchester stóð yfir í tvo daga en Sara var með forystuna lengst af í keppninni. Hún hlaut að lokum 828 stig á meðan sú í öðru sæti hlaut 780. Alls voru tæplega 100 keppendur víðs vegar að frá Evrópu í kvennaflokki og mótið afar sterkt. Um er að ræða næststærsta mót í Evrópu á eftir Evrópuleikunum. „Ég hef bara aldrei verið í eins góðu formi og núna og ótrúlegt hvað allt er búið að ganga upp,“ segir Sara sem hefur lagt mikið á sig við æfingar. Þar hefur hún bætt í en þó æfði hún gríðarlega mikið áður. Nú mætir hún á kvöldin og tekur oft þriðju æfingu dagsins þar sem hún vinnur í veikleikum sínum, ef veik- leika skyldi kalla. „Þær æfingar eru búnar að hjálpa mér mest núna,“ segir Sara en þá æfir hún mest tækni sem skiptir miklu máli í crossfit. Eftir sigurinn í Manchester hefur Sara vakið þónokkra athygli sem hún er annars ekki vön að fá. „Ég er búin að fá mikið af kveðjum, sumar frá fólki sem ég veit ekkert hver eru, þetta er alveg dálítið skrýtið,“ segir Sara og hlær. Að launum fyrir sigurinn í mótinu hlaut Sara 7500 dali, eða tæplega milljón krónur. „Þetta hjálpar manni alveg helling. Þetta eru auðvitað bara tekjurnar mínar því ég er bara í vinnunni þegar ég er að æfa.“ Keppir gegn þeim allra bestu í Bandaríkjunum Í dag heldur Sara svo til Boston í Bandaríkj- unum en þar mun hún keppa á gríðar sterku móti sem hún þurfti að hafa mikið fyrir því að komast inn á. „Þar eru 25 af 30 stelpum sem hafa farið á heimsleikana í Crossfit,“ segir Sara en sjálf stefnir hún þangað, þar sem þeir allra bestu etja kappi. Til þess að komast á heimsleika þarf hún að ná einu af efstu fimm sætunum á Evrópuleikunum sem fram fara í vor. Hvað varðar mótið í Bo- ston þá metur Sara möguleika sína ágætlega. „Ég ætla að stefna á topp 15. Ef ég næ svo einu af tíu efstu sætunum þá verð ég ennþá sáttari.“ Annars segist Sara aðallega vera að fara til Bandaríkjanna til þess að keppa á móti stórum nöfnum í crossfitinu og öðlast reynslu. Eftir góðan árangur á mótum í Evrópu viður- kennir Sara að hún sé orðin dálítið þekkt í crossfit heiminum þar ytra. Að undanförnu hefur Sara farið meira erlendis að keppa og þjálfa. Síðan í maí á síðasta ári hefur hún farið 12 sinnum erlendis til þess að keppa í crossfit. Hún segist ekki vera á leið erlendis fyrir fullt og allt, en þó sé hún að skoða þá möguleika að keppa á atvinnumannastigi í Bandaríkjunum. Sara þjálfar hjá Crossfit Suðurnes í Sport- húsinu, þar sem hún dvelur nánast 12 tíma á dag við æfingar og þjálfun. „Crossfit er bara líf mitt,“ segir Sara en þar er engu logið. Hún leggur stund á nám í sálfræði samhliða crossfitinu en annars kemst lítið annað að. Eftir annasaman dag gefur hún sér tíma til þess að læra. Hún leggur þó mikið upp úr því að sofa vel og passar upp á að ná sínum níu tímum þar. Sara, sem er 22 ára, hefur aðeins stundað Crossfit í tvö ár, en að sögn þeirra sem til þekkja, þá byrja iðkendur að bæta sig veru- lega eftir þann tíma í sportinu. Sara er ein af þeim bestu í sportinu nú þegar og því ljóst að hún á sannarlega framtíðina fyrir sér. Njarðvíkingurinn Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir fagnaði sigri á enn einu crossfitmótinu á erlendri grundu nú um liðna helgi. Að þessu sinni sigraði Sara á Athlete Games mótinu sem fram fór í Manchester á Englandi. Sara hefur gert það gott á undanförnu ári en stefnir enn hærra árið 2015. Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði - info@hotelork.is - sími: 483 4700 - www.hotelork.is Í ár höldum við uppá 25 ára afmæli Sparidaga. Af því tilefni bjóðum við sérlega vandaða dagskrá þar sem meðal annars verður farið í heimsókn í Hesta- leikhúsið Fákasel og Landgræðslu Ríkisins í Gunnarsholti ásamt mörgum öðrum frábærum dagskrárliðum. Bókanir fara fram hjá umsjónar- manni félags eldri borgara á hverjum stað. Einnig er hægt að hafa samband við Hótel Örk í síma 483 4700 þar sem starfsfólkið veitir allar nánari upplýsingar eða á slóðinni www.hotelork.is/sparidagar Innifalið alla Sparidaga – gisting í 5 nætur í tveggja manna herbergi – – morgunverðarhlaðborð og kvöldverður – – og fjölbreytt dagskrá – Verð 46.900 á mann m.v. tveggja manna herbergi Ég ætla að stefna á topp 15. Ef ég næ svo einu af tíu efstu sætunum þá verð ég ennþá sáttari

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.