Víkurfréttir - 27.08.2015, Blaðsíða 9
Langar þig í nám?
Skrifstofuskólinn — 9. september
Námið styrkir þig og þjálfar í algengustu verkefnum sem skrifstofufólk sinnir. Hægt er að taka
námið með vinnu, kennt seinnipart dags. Helstu námsgreinar eru bókhald, bæði tölvu- og
handfært, tölvu og upplýsingatækni s.s. Word og Excel og verslunarreikningur.
Grunnmenntaskólinn — 9. september
Námið hentar þér ef þú þarft meiri grunn eða mjög langt er liðið frá því þú varst síðast í skóla.
Áhersla er lögð á íslensku, stærðfræði, ensku og tölvunotkun. Námið byggist á verkefnavinnu
og verklegum æfingum í stað hefðbundinna prófa.
Hljóðsmiðja I — 4. september til 11. október
Nemendur öðlast grunn þekkingu á helstu atriðum sem skipta máli við upptökur á lögum.
Nemendur læra hvernig á að stilla upp hljóðnemum, upptökuferlið og hljóðblöndun.
Notast er við og kennt á Pro Tools upptökuforritið.
Hljóðsmiðja II — 22. október til 15. nóvember
Nemendur læra ítarlega á Pro Tools og læra á innviði hljóðvers og taka að sér upptöku
í hljóð-veri, eftirvinnslu og mix. Þátttakendur kynnast hljóðvinnslu fyrir bíó og taka upp foley,
umhverfishljóð, hljóðblanda létt bíóverkefni og setja upp tæki fyrir tónleika.
Kvikmyndasmiðja I — 8. til 26. október
Nemendur öðlast grunnþekkingu á framleiðslu stuttmyndar allt frá handritsgerð til lokavinnslu.
Nemendur öðlast skilning á helstu verkþáttum við kvikmyndagerð og koma að framleiðslu á
kvikmyndaverki. Nemendur fá innsýn í verk sem unnin eru á tökustað, kynnast eftirvinnslu
og takast á við raunhæf verkefni á tökustað.
Grafísk hönnunarsmiðja — 15. sept. til 3. Desember
Nemendur öðlast grunnþekkingu á vinnslu efnis fyrir prent og vefmiðla á tölvu-tæku formi.
Þátttakendur læra á Adobe forritin: Illustrator (teikning), Photoshop (myndvinnsla) og InDesign
(umbrot).
Nánari upplýsingar og skráning er á mss.is og í síma 421 7500
Þekking í þína þágu
M
74
. s
t.
20
15