Víkurfréttir - 27.08.2015, Qupperneq 19
19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 27. ágúst 2015
pósturu siddi@vf.is ALLSHERJAR
ATKVÆÐAGREIÐSLA
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör aðal- og
varafulltrúa á þing LÍV (Landssamband ísl. verslunarmanna)
sem haldið verður á Akureyri dagana 16. og 17. október nk.
Kosnir verða 4 fulltrúar og 4 til vara.
Framboðslistum sé skilað á skrifstofu Verslunarmanna-
félags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ,
eigi síðar en kl. 12:00, föstudaginn 4. september nk.
Öðrum listum en lista stjórnar skulu fylgja
meðmæli 50 fullgildra félagsmanna.
Kjörstjórn
REYKJANESBÆ
HAFNARGATA 40
S. 422 2200
Örgjörvi AMD Quad Core A8-7100 1.8 GHz, Turbo Speed: 3.0 GHz
Minni 8GB (DDR3) 1600MHz Skjár 15,6” LED HD Anti-glare skjár
Diskur 500GB Smart SATA
Aðeins
119.900-
ProBook 455
Knattspyrnukappinn Arnór Ingvi Traustason og liðsfélagar hans í Norrköping eru enn með
í baráttunni um sænska meistaratitilinn. Arnór
skoraði eitt þriggja marka liðsins er liðið lagði Hels-
ingborg 3-2 á mánudagskvöldið á dramatískan hátt,
en sigurmark heimamanna kom ekki fyrr en á 5.
mínútu uppbótartíma. Arnór skoraði fyrsta mark
leiksins á 24. mínútu, en þetta var fimmta mark
Arnórs á leiktíðinni. Helsingborg komst yfir með
tveimur mörkum í síðari hálfleik áður en Norrköp-
ing jafnaði leikinn 10 mínútum fyrir lok venjulegs
leiktíma og tryggðu sér svo sigurinn í uppbótartíma
eins og áður segir.
Norrköping er í 4. sæti deildarinnar með jafnmörg
stig og AIK en slakari markatölu. Aðeins tvö stig skilja
liðin frá efstu liðunum en þar sitja IFK Gautborg og IF
Elfsborg. 9 umferðir eru eftir af sænsku deildinni og
verður því spennandi að fylgjast með lokasprettinum.
Norrköping heimsælir Falkenbergs FF á laugardaginn.
Norrköping enn með í baráttunni um sænska meistaratitilinn
Arnór Ingvi hefur skorað 5 mörk