Víkurfréttir - 03.09.2015, Page 14
14 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Tryggingamiðstöðin Hafnargötu 31 Sími 515 2620 tm@tm.is tm.is
Góða skemmtun
á Ljósanótt!
250 300 350 400 450 500
HEILSUFAR
EINBEITING
DEPURÐ
SAMSKIPTI
FJÁRHAGUR
ÞREK
KVÍÐI
LÍKAMSHEILSA
VERKIR
SJÁLFSSTJÓRN
SVEFN
LÍÐAN
LÍFSGÆÐI
HEILSA OG LÍÐAN EFTIR FYRIR
-viðtal pósturu hilmar@vf.is
Hreystu er frábært leið til
að ná jafnvægi á milli and-
legrar og líkamlegrar heilsu
Hvað er Hreysti?
Hreysti er ný endurhæfingarleið
hjá Samvinnu sem er starfsendur-
hæfingardeild innan Miðstöðvar
símenntunar á Suðurnesjum.
Hreysti er byggð upp á þrem
meginþáttum: Hreyfingu, Nú-
vitund og Fræðslu. Ásamt því er
fjölþætt heilsutengd fræðsla stór
partur af námsskeiðinu. Fyrsti
hópurinn í Hreysti fór af stað hjá
Samvinnu í febrúar 2015 og stóð
námsskeiðið í átta vikur en verk-
efnið er þróunarverkefnið styrkt
af VIRK starfsendurhæfingarsjóði.
Árangur verkefnis var góður og
bæði andleg og líkamleg líðan þátt-
takanda batnaði til muna.
Hreysti er sérsniðin endurhæfing
ætluð þeim sem þurfa að byggja
sig upp líkamlega og auka and-
lega vellíðan en þátttakendum er
vísað í Hreysti af ráðgjöfum VIRK.
Endurhæfingin er góð leið fyrir þá
einstaklinga sem eru að koma sér
af stað í hreyfingu og þurfa til þess
aðstoð og utanumhald. Einnig þá
sem eru að glíma við stoðkerfis-
vanda eða jafna sig eftir slys eða
veikindi.
Heildstæð úrlausn á vanda
hvers þátttakanda
Niðurstöður úr matslistanum
Heilsutengd Lífsgæði sem þátttak-
endur sem lagðir voru fyrir þátt-
takendur fyrir og eftir námsskeiðið
má sjá á meðfylgjandi mynd.
Er orkumeiri, verkjaminni og
meðvitaðri um takmörkin mín
Harpa Hauksdóttir var ein þeirra
sem að tóku þátt í námsskeiðinu og
náði frábærum árangri.
„Ég lenti í vinnuslysi þegar ég fékk
fiskikar ofan á höfuðið sem hafði
þær afleiðingar að ég tognaði í
hálsi, herðablaði og taugar urðu
fyrir hnjaski. Hreyfigeta mín
skertist, ég þjáist af verkjum sem
leiddi til þess að ég varð óvinnufær
í kjölfar slyssins. Í svona ástandi er
oft erfitt að halda í jákvæðnina og
andleg líðan mítn versnaði. Læknir
vísaði mér til VIRK starfsendur-
hæfingarsjóðs og var mér svo vísað
í Hreysti af ráðgjafanum mínum
hjá VIRK. Ég var ekki í góðum
málum líkamlega né andlega og
óskaði þess að fá betri líðan. Ég hef
alltaf stundað einhverja hreyfingu
með góðum hléum en í Hreysti
náði ég að koma hreyfingunni inn
og stundaði hana af kappi fjórum
sinnum í viku. Fyrir nokkrum
árum hóf ég að vinna mikið með
andlega líðan mína, í Hreysti fékk
ég svo kærkomin verkfæri til þess
að ná enn betri árangri í þeirri
vinnu. Að taka þátt í Hreysti hefur
hjálpað mér að ná jafnvægi á milli
andlegrar og líkamlegrar heilsu,
við erum öll svo ólík og þurfum
að læra að hlusta á okkur sjálf og
þekkja takmörkin okkar, það var
svo sannarlega nálgunin sem við
fengum í Hreysti. Stuðningurinn af
kennurunum var frábær og svo var
hópurinn náinn og hvetjandi.“
„Ég náði góðum árangri á náms-
skeiðinu, er orkumeiri, verkja-
minni og meðvitaðri um takmörk
mín. Ég er komin með skýra fram-
tíðarsýn, stefni á djáknanám, með
stoppi í Háskólagáttinni á Bifröst
og hugsa hlýtt til þess að hjálpa
fólki í framtíðinni með verkefni
lífsins,“ segir Harpa að lokum.
Næsta námsskeið af Hreysti hefst
14.september. Sé Hreysti eitthvað
fyrir þig ekki hika við að hafa sam-
band og fá frekari upplýsingar á
netfangið maria@mss.is.
Leikfélag Keflavíkur hefur ráðið Víking Kristjánsson
sem leikstjóra næsta
verks sem frumsýnt
verður í byrjun nóv-
ember í Frumleik-
húsinu. Þetta kemur
fram á fésbókarsíðu
leikfélagsins.
Víkingur útskrifaðist
frá leiklistardeild LHÍ
vorið 2001. Hann er
einn af stofnendum
Ve s t u r p or t s s e m
hefur sett upp fjöl-
mörg verk á Íslandi og um allan
heim.
Víkingur hefur leikstýrt í atvinnu-
leikhúsi, hjá áhugaleikhópum og
í framhaldsskólum. Síðustu verk-
efni eru Allir á svið! með Leikfélagi
Flateyrar (2013) og
Þið munið hann Jör-
und með Litla leik-
klúbbnum á Ísafirði
(2014).
Fyrsti fundur með
leikstjóra og kynn-
ing á verki, verður
miðvikudaginn 9.
september í Frum-
leikhúsinu kl.19.00.
Fyrir al la þá sem
áhuga hafa á að taka þátt og starfa
í leikhúsi. Eina skilyrðið er að vera
orðinn 16 ára og hafa áhuga á leik-
hússtarfi.
Víkingur til Leik-
félags Keflavíkur
Víkingur Kristjánsson leikstýrir
hjá Leikfélagi Keflavíkur í vetur.
Harpa Hauksdóttir var
ein þeirra sem að tóku
þátt í námsskeiðinu og
náði frábærum árangri.
HARMONIKKUBALL
FÖSTUDAGINN 4. SEPTEMBER KL. 20:00.
Á NESVÖLLUM
Hljómsveitinn Suðurnesjamenn leika fyrir dansi.
Aðgangseyrir kr. 1000,-
20%
Ljósanæturafsláttur
miðvikudag til mánudags
Opnunartími
Miðvikudaginn, fimmtudaginn, föstudaginn 11:00 - 22:00