Víkurfréttir - 14.07.2016, Blaðsíða 2
2 fimmtudagur 14. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Vilja láta tvöfalda Reykjanes-
braut og fjölga útskotum
l Nær allir ferðamenn á landinu fara um Reykjanesbraut
Hluti af atvinnulífinu
Ertu reynslubolti
með bíladellu?
VR-15-025
Hæfniskröfur:
• Bifvélavirkjun, vélvirkjun eða önnur
sambærileg menntun
• Reynsla af bílaviðgerðum
• Samskiptahæfni og vönduð vinnubrögð
Bæði kyn eru hvött til að sækja um laus störf hjá fyrirtækinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagur Benónýsson
í síma 440 1030 eða gegnum netfangið dagur@n1.is.
www.n1.is facebook.com/enneinn
Við leitum að þjónustuliprum reynslubolta, bifvélavirkja eða
viðgerðarmanni á smur og hjólbarðaverkstæði í Reykjanesbæ.
Fjölbreytt og spennnandi starf í góðum félagsskap.
Helstu verkefni:
• Almennar bílaviðgerðir
• Smur- og hjólbarðaþjónusta
Hjólbarðaverkstæði N1 hafa öll hlotið vottun samkvæmt
gæðakerfi Michelin, en þá vottun fá eingöngu þau hjólbarða-
verkstæði sem uppfylla ströngustu gæðakröfur Michelin.
Lést í umferðarslysi
n Maðurinn sem lést í árekstri bif-
hjóls og vörubifreiðar á Reykjanes-
braut á fimmtudag í síðustu viku
hét Jóhannes Hilmar Jóhannesson.
Hann var 34 ára gamall, fæddur árið
1982 og til heimilis að Sóltúni 2 í
Garði. Hann lætur eftir sig sambýl-
iskonu og þrjú börn.
Stjórn Reykjanes Global Geopark telur að tvö-
falda þurfi Reykjanesbraut að Rósaselstorgi,
fjölga útskotum á flestum vegum á Suðurnesjum
og fjölga snjómokstursdögum og bæta hálku-
varnir. Þetta kemur fram í svari stjórnarinn-
ar við fyrirspurn Stjórnstöðvar ferðamála um
það hverjar eru þarfir ferðaþjónustunnar á
Reykjanesi í samgöngumálum.
Í svari stjórnar Reykjanes Global Geopark segir að
samkvæmt aðalskipulagi Reykjanesbæjar tímabilið
2008 til 2024 sé gert ráð fyrir að lokið verði við
tvöföldun Reykjanesbrautar að Rósaselstorgi. Sam-
hliða því sé gert ráð fyrir mislægum gatnamótum
við Þjóðbraut. Í svarinu segir að mikil slysahætta
myndist þegar ökutæki þveri Reykjanesbrautina.
„Alltof mörg dæmi eru um slys, annars vegar við
gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar og hins
vegar við gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanes-
brautar. Það er því afar brýnt að ljúka við tvöföldun
Reykjanesbrautar að Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
en um hana fara nærri allir ferðamenn sem koma
til landsins auk starfsfólks á flugstöðvarsvæðinu,“
segir í svari stjórnarinnar sem sent var 13. júní
síðastliðinn.
Stjórnin telur að fjölga þurfi útskotum á flestum
vegum á Suðurnesjum, til dæmis á Suðurstrandar-
vegi, Nesvegi, Hafnavegi, Garðskagavegi, Norður-
ljósavegi og Vatnsleysustrandarvegi. Umferðarálag
hafi aukist verulega á öllum vegum á Suðurnesjum
undanfarin ár allt árið um kring. Málið sé brýnt
enda skapist mikil slysahætta þegar ferðamenn eða
áhugafólk stöðvi ökutæki sín á þröngum vegum
þar sem engin aðstaða er til staðar.
Bætt vetrarþjónusta er eitt af því sem stjórn
Reykjanes Geopark telur mikilvægt að ráðast í
þar sem að með aukinni umferð á öllum vegum á
Suðurnesjum sé þörf á að fjölga snjómokstursdög-
um þegar það á við og bæta hálkuvarnir. Stjórnin
telur þetta sérstaklega eiga við um Suðurstrandar-
veg, Nesveg, Hafnaveg og Reykjanesvitaveg en
þessir vegir tengja vinsæla ferðamannastaði yst á
Reykjanesi; Valahnúk, Gunnuhver, Brimketil og
Brú milli heimsálfa.
n Sveitarfélögin Sandgerði og Garður hafa hvort um
sig gefið út umferðaröryggisáætlun fyrir árin 2016 til
2020. Sveitarfélögin og Samgöngustofa undirrituðu
samning þess efnis að umferðaröryggisáætlun verði
gerð fyrir hvort sveitarfélag, en Samgöngustofa hefur
á undanförnum árum hvatt sveitarfélög til að gera
áætlanir um umferðaröryggi. VSÓ Ráðgjöf aðstoð-
aði við þetta verkefni. Vinna við gerð áætlananna
stóð yfir frá janúar til júlí 2016.
Markmið með gerð umferðaröryggisáætlana er að auka
vitund forráðamanna sveitarfélaga og íbúa um umferð-
aröryggismál. Lagt var mat á núverandi stöðu umferð-
aröryggismála í sveitarfélögunum, lagðar fram tillögur
til úrbóta og þeim forgangsraðað. Áhersla var lögð á
að rödd sem flestra heyrðist þannig að hagsmunir allra
vegfarendahópa væru teknir með.
Mikilvægur þáttur var myndun samráðshóps með
helstu hagsmunaðilum. Í hópi hvors sveitarfélags fyrir
sig voru fulltrúar frá grunnskóla, leikskóla, forvarnar-
starfi, Vegagerðinni, Samgöngustofu, Lögreglunni á
Suðurnesjum, Strætó Bs, ásamt umhverfis- og tækni-
fulltrúa sveitarfélaganna og VSÓ Ráðgjöf sem starfaði
með hópunum. Umræður á fundum samráðshópa
lögðu grunn að gerð áætlananna þar sem staðkunnugir
þekkja best hættur í umhverfinu og tóku fulltrúar í
samráðshópum þátt í að móta stefnu og markmið
áætlananna. Einnig var auglýst eftir ábendingum frá
íbúum í Víkurfréttum og á heimasíðum sveitarfélag-
anna. Áætlanirnar voru einnig teknar til umræðu hjá
bæjarráðum og skipulags- og byggingarnefndum Sand-
gerðis og Garðs.
Áætlað er að umferðaröryggisáætlanirnar verði endur-
nýjaðar á fjögurra ára fresti. Fram að þeim tíma verði
ábendingum sem berast sveitarfélögunum varðandi
umferðaröryggi safnað saman og þær greindar. Jafn-
framt verði unnið að þeim úrbótum sem lagðar eru
fram í þessum umferðaröryggisáætlunum. Tveimur
árum eftir útgáfu umferðaröryggisáætlananna er gert
ráð fyrir að samráðshóparnir fundi þar sem farið er yfir
verkefnastöðu og nýjar ábendingar. Nálgast má áætlan-
irnar á heimasíðum sveitarfélaganna.
Umferðaröryggisáætlanir Sandgerðis og Garðs gefnar út
Óska eftir bygg-
ingaleyfi vegna
fjölbýlishúss
n Verktakafyrir-
tækið Grindin í
Grindavík hefur
óskað eftir því við
skipulagsnefnd
Grindavíkurbæjar
að fá byggingar-
leyfi vegna
fjölbýlishúss við Stamphólsveg 5.
Skipulagsnefnd hefur lagt til við
bæjarstjórn að byggingaráfomin
verði samþykkt og byggingar-
leyfi gefið út af byggingarfulltrúa
þegar fullnægjandi hönnunargögn
hafa borist. Bæjarráð samþykkti
tillögu skipulagsnefndar sam-
hljóða á fundi sínum nýverið.
Vöntun hefur verið á minni íbúðum
í Grindavík og í frétt Víkurfrétta 18.
júní síðastliðinn var haft eftir Róberti
Ragnarssyni, bæjarstjóra Grindavík-
ur, að þar vanti 70 til 100 fermetra
íbúðir, bæði fyrir yngra fólkið og
það eldra, jafnt til leigu og sölu.
Ást á
íslenskri
náttúru!
l Náttúra Íslands í aug-
um tveggja Njarðvíkinga
Náttúra Íslands hefur sem betur fer
átt sína hjartans unnendur á öllum
tímum og nú má sjá skemmtilega
sýningu Stofunni í Duus Safnahús-
um sem tengist einmitt þessari nátt-
úruást. Sýningin samanstendur af 15
ljósmyndum sem Oddgeir Karlsson
ljósmyndari í Njarðvík hefur tekið
víða á Reykjanesinu og grjóti úr safni
Njarðvíkingsins Áka Gränz heitins en
hann var ástríðufullur steinasafnari
með meiru. Við fráfall Áka eignaðist
Reykjanesbær mikið steinasafn ásamt
fjölda listaverka og á sýningunni
núna má sjá úrval úr steinasafninu en
listaverkin bíða betri tíma. Sýningin
mun standa í sumar og eru bæjarbúar
hvattir til að koma og njóta.
Frá Reykjanesbraut við Rósaselstorg. Þar á m.a. eftir að tvöfalda Reykjanesbrautina að Fitjum. VF-mynd: Aldís Ósk