Víkurfréttir - 14.07.2016, Síða 8
8 fimmtudagur 14. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR
Vinirnir Andri Fannar Ævarsson
og Hermann Nökkvi Gunnarsson
taka að sér að slá stærri og minni
garða í sumar og eru hæst ánægðir
með starfið. Drengirnir eru 14 ára
og segjast hafa fengið mjög góðar
móttökur. „Við erum með tvö til þrjú
verkefni á dag og þetta gengur mjög
vel,“ segir Hermann en hann tók líka
að sér garðavinnu í fyrra.
Drengirnir eru með hrífur, orf og voru
að fara að fjárfesta í nýrri sláttuvél
þegar blaðamaður Víkurfrétta hitti þá
á dögunum. „Það er búið að ganga svo
vel hjá okkur að við gátum safnað fyrir
nýrri sláttuvél,“ segja þeir. Andri og
Hermann búa í Reykjanesbæ en taka
þó að sér að slá um öll Suðurnesin og
jafnvel víðar. Afi Hermanns á pallbíl
og hefur skutlað strákunum þegar á
hefur þurft að halda. „Síðan eigum við
frábæra foreldra sem nenna að skutla
okkur út um allt. Við fórum til dæmis
í Hafnarfjörð um daginn og förum
bráðum að slá á Vatnsleysuströnd. Við
reddum okkur alltaf fari einhvern veg-
inn.“
Stundum þarf að gera meira en að
slá grasið til að það verði fínt og hafa
Andri og Hermann líka tekið að sér að
bera Blákorn og Graskorn á lóðir til að
bæta vöxtinn. „Svo erum við líka með
mosatætara og setjum kalk á grasið til
að drepa mosann. Við getum þetta allt
saman.“
Hægt er að panta slátt á Facebook-
-síðunni Garðálfarnir EHF eða í síma
776-1410.
Hermann Nökkvi og Andri Fannar slá garða á Suðurnesjum og víðar í sumar.
VF-myndir: Aldís Ósk
l Slá tvær til þrjár lóðir á dag
Fjórtán ára með
eigin rekstur
n Margt hefur verið um manninn á tjaldsvæðinu í Grinda-
vík undanfarið. Að sögn Margrétar Albertsdóttir, starfs-
manns á tjaldsvæðinu, eru margir gestanna ferðamenn
sem gista þar fyrstu og síðustu nóttina sína á Íslandi. Flestir
erlendu ferðamannanna eru frá Bandaríkjunum, Þýska-
landi og Frakklandi. Þá hefur fjöldi Kanadamanna meðal
þeirra aukist eftir að beint flug hófst þaðan. „Um daginn
kom svo fólk frá Indlandi og svo er eitthvað um ferðamenn
frá Ástralíu,“ segir Margrét. Algengast er svo að íslenskir
ferðamenn kíki við um helgar.
Á tjaldsvæðinu er eldhús með áhöldum þar sem ferðamenn
geta eldað sér mat inni við. Þá eru þar salerni og sturtur,
grill, aðgangur að rafmagni og leiksvæði fyrir börn.
Tjaldsvæðið í Grindavík hefur verið vel nýtt í sumar.
MARGIR GISTA Í TJALDI
Í GRINDAVÍK FYRIR OG EFTIR FLUG
Tónleikarnir Snúran voru haldn-
ir á tjaldstæðinu í Sandgerði á
miðvikudag í síðustu viku í miklu
blíðviðri. Á tónleikunum komu
fram Hobbitarnir ásamt Föru-
neytinu, Óhætt er að segja að
Snúran séu skynditónleikar því
tímasetningin var ákveðin með að-
eins 36 klukkustunda fyrirvara svo
að tónleikarnir gætu farið fram í
sem bestu veðri. Sandgerðingar og
fleiri fjölmenntu á Snúruna og áttu
notalega stund í síðdegissólinni.
Meðfylgjandi myndir tók
Hilmar Bragi af mannmergð-
inni á tjaldstæðinu þegar
tónleikarnir fóru fram.
Snúran í sólskini í Sandgerði
Umsjónarfólk tjald-
stæðisins bauð upp á
grillaðar pulsur og þar
myndaðist löng röð.
Það viðraði vel á Hobbitana og Föruneytið.
Miðvikudaginn 20. júlí verður haldið upp á10 ára afmæli Skötumes-
sunnar í Garði. Eins og áður er Skötumessan haldin í Gerðaskóla í Garði
og búist er við fullu húsi eins og alltaf áður.
Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra og við öll sem mætum erum
þátttakendur í því að styðja við bakið á þeim sem þurfa á aðstoð að halda.
Með því stígum við skrefinu lengra í samfélagslegri ábyrgð okkar og af-
hendum styrkina þegar við erum öll saman í lok skemmtunarinnar.
Í tilefni af 10 ára afmæli Skötumessunnar verður meira lagt í stuðning við
einstök verkefni en áður og höfum við fengið nokkur fyrirtæki í lið með
okkur á afmælisárinu til að gera meira en áður. Allt mun það koma í ljós í
lok dagskrár miðvikudaginn 20. júlí.
Dagskrá Skötumessunnar er hefðbundin og hefst kl. 19.30 með glæsilegu
hlaðborði; skata, saltfiskur, plokkfiskur og meðlæti.
Að venju er fjölbreytt skemmtidagskrá;
* Dói og Baldvin, harmonikkuleikur.
* Páll Rúnar Pálsson
* Davíð Már Guðmundsson og Óskar Ívarsson
* Andri Páll Guðmundsson
* Björn Ingi Bjarnason formaður Hrútavina, ræðumaður kvöldsins.
* Styrkir afhentir
* Hljómsveit Rúnars Þórs
Það er von okkar forsvarsfólks Skötumessunnar að eins og áður mæti fólkið
sem vill halda til haga þjóðlegum matarvenjum og siðum okkar Íslendinga
og slái tvær flugur í einu höggi og leggja góðum málefnum lið. Það er einfalt
að tryggja sér miða og er það gert með því að leggja 4,000- kr. inn á reikning
Skötumessunnar; 0142-05-70506, kt. 580711-0650
Munum að Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra.
Skötumessan í Garði
fagnar 10 ára afmæli